óskarinn minn

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Flutsí
Posts: 9
Joined: 28 Jan 2010, 23:33

óskarinn minn

Post by Flutsí »

Ég veit ekki alveg hvort þetta sé rétti þráðurinn en ég ætla að láta þetta vaða hérna..

Ég held að óskar minn sé veikur og búinn að vera það að undanförnu, hann er með voða litla matarlist og eyðir megnið af tímanum sínum á botninum, og er lítið fyrir að hreifa sig en gerir samt e-ð að því og svo var ég að taka eftir því að hann er kominn með svona holur í hausinn, rétt fyrir ofan augað. þetta virðist vera pínu djúpt, hann er búinn að vera í soldinn tíma voða lítið fyrir að hreifa sig og svo tekur hann uppá því að gera skrítna dansa, rótar e-ð í botinum og snýr sér í hálfgerðann hring og fer hratt að yfirborðinu.
það er nýbúið að skitpa um vatn í búrinu,

Lét fylgja með mynd af honum og þessum holum..

Image
User avatar
Flutsí
Posts: 9
Joined: 28 Jan 2010, 23:33

Post by Flutsí »

Ég var að vonast til þess hvort það væri einhver fróður sem gæti sagt mér hvað amaði af óskarnum mínum.. finnst rosalega leiðinlegt að sjá hann svona.
eddi
Posts: 117
Joined: 17 Aug 2010, 00:15
Location: Álftanesi

Post by eddi »

hér er eithvað sem ég fann.
neðst á síðunni er talað um þetta

http://www.oscarfishlover.com/helpful-a ... th-disease :)
Kv:Eddi
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hvað er óskarinn stór og hvað er búrið stórt ?
Hvaða hreinsibúnað ertu með og hvernig er vatnskiptum háttað ?
Hefur þú mælt nitrat, nitrit og ammoniak ?
Þetta virðist klassiskt dæmi um léleg vatnsgæði.

Meiri vatnskipti, salt og aukið súrefni gæti lagað þetta.
User avatar
Flutsí
Posts: 9
Joined: 28 Jan 2010, 23:33

Post by Flutsí »

Óskarinn er svona 10 cm og búrið er 240 lítrar, það er skipt um vant í búrinu einu sinni í mánuðu og dælan þrifin, og það eru svona 2 - 3 vikur síðan það var skipt síðast um vatn og dælan þrifin, það stendur á dælunni Eheim professinal 2, sem ég bíst við að sé nafnið á henni, tunnidæla, ég tók svona nitrate (NO3) próf og það kom milli 12,5 - 25 mg/l, ég hef ekki mælt hitt tvennt, en ég er með annan óskar í þessu búri, hann er svona 6,5 cm og hann lítur út fyri rað vera hress.

en þessar holur í hausnum á honum, ég skoðaði þetta sem hann eddi setti inná að svona holur væru algengar í þessum fiskum "ensory pits" en mér finnst þær vera svo djúpar e-ð, Þessi hvíti óskar virðist vera sá eini sem er svona í búrinu
Brocollid
Posts: 26
Joined: 24 Oct 2010, 23:03

Post by Brocollid »

Þetta er alveg solid dæmi um léleg vatnsgæði og svo getur oft verið gott að salta aðeins :wink:
Kv, Arnar
User avatar
Flutsí
Posts: 9
Joined: 28 Jan 2010, 23:33

Post by Flutsí »

Takk fyrir svörin :) , ætla að prófa að skitpa um vatn hjá þeim á mrg, læt ykkur vita ef hann skánar ekkert,
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Post by malawi feðgar »

Mæli með vatnskiftum einu sinni í viku. og hreinsa dælu á 3-4 vikna fresti.
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Ég veit ekki með aðra en ég þríf tunnudælurnar mínar á nokkra mánaða fresti frekar en á nokkra vikna fresti.
Fékk þær leiðbeiningar þegar ég fékk mínar fyrstu tunnudælur (líka eheim proII) að skola innihaldið á 6 mánaða fresti en ég bíð þó ekki alveg svo lengi.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Flutsí
Posts: 9
Joined: 28 Jan 2010, 23:33

Post by Flutsí »

Ég var að spá hvað það taki fiska langa tíma að hressast við, eins og þið voru að tala um að hann væri svona út af léilegum vatnsgæðum, en núna eru 12 klst síðan ég skipti um vatn þá er fiskurinn minn ennþá "leiður" hann liggur ennþá bara í sínu horni.. og ég var að spá með þessar holur í hausnum á honum, getur þetta verið veikin, ekki þessir sensors sem óskar fiskar fá. og ef svo er ræst þá þessi veiki bara á einn fisk í búrinu eða fer það á alla?
Post Reply