60L Skala Búr!

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Post Reply
napoli
Posts: 31
Joined: 24 Nov 2010, 02:06

60L Skala Búr!

Post by napoli »

Ég var að setja upp glæsilegt búr! :D
Það er miiiklu stærra en ég bjóst við haha .. ég er svo vön mínu 20L búri með gullfiskunum mínum :P :oops:

Ég setti mjög fínan ljósan sand í botninn en ég er að hugsa hvort ég hafi ekki skolað hann nógu vel því vatnið er enn frekar hvítlegt (gruggugt) eftir 7 tíma frá uppsetningu.

Ég prufaði að slökkva á hreinsidælunni til að sjá hvort það myndi jafna sig en ekkert breyttist svo ég kveikti aftur og ætla að sjá hvort þetta verði farið á morgunn, ef ekki hvað er best að gera?

Skipta bara um mest af vatninu? Ætti ég þá að setja Aqua Safe aftur ofan í vatnið? (má setja það ofan í á meðan skalarnir eru ofan í vatninu)?

NÝLIÐI í síkiliðum .. en vá hvað þeir eru fallegir :D
Ég fékk hjálp vinkvennana til að nefna þá

Litli hvíti heitir Techno
Zebra legi heitir Tiger Woods
Hvít, gul með svartar rendur heitir Gucci
Alveg svartur heitir Basílika :P

Set inn myndir við tækifæri þegar vatnsgæðin eru orðin betri!
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Ansi lítið búr fyrir svona marga skala, það er talað um 100 L á hvern skala, þar sem þeir verða frekar stórir. Alltaf samt gaman að fá myndir :)

Annars hef ég alltaf látið búrið ganga með engum fiskum í 1-2 daga ef ég get til að eimmitt, hreinsa grugg og annað sem kemur stundum með sandinum þrátt fyrir skol. Veit ekkert með þetta aqua safe dæmi, hef aldrei notast við svoleiðis enda með "notaðar" dælur við öll búr og "notaðan" sand.
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
napoli
Posts: 31
Joined: 24 Nov 2010, 02:06

Post by napoli »

100L á fisk?
ég hef ekki aðstöðu fyrir 400L búr einu sinni :lol:
gaurinn í fiskó sagði að þetta væri fín stærð enda alveg nóg pláss þarna fyrir þá hehe ..

ef þeir verða svo eitthvað svaka stórir þá bara íhuga ég annað hvort að halda uppáhalds og losa mig við hina eða eitthvað annað :roll:
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

http://www.tjorvar.is/html/pterophyllum_scalare.html
Hér er smá um skalara, er sjálf með eins og ég sagði í svari í þræði sem þú settir í alm umræður 6 stk í 250 L og það má bara alls ekki vera minna finnst mér, og ég er að fara setja um annað 220 L fyrir eitthverja af þeim því að þeir stærstu eru farnir að verða ansi stórir og svolítið ágangsharðir á þá sem eru minni en þeir. Þetta verða ansi stórir fiskar og þurfa mikið pláss. Hann hefur kannski verið að meina að það sé í lagi á meðan þeir eru litlir en þeir stækka ansi hratt (Verða tæpir 15 cm fullvaxnir)

Hér er talað t.d. um 150 L
http://animal-world.com/encyclo/fresh/c ... elfish.php

Endilega samt koma með mynd, alltaf gaman að sjá myndir :wink:
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

það er rétt sem Agnes er að segja.
60L er allt í lagi í stuttan tíma, en þeir verða að fá stærra búr.
240L væri fint fyrir þennan fjölda.
Í svona litlu búri, þá afmyndast þeir og verða bara ljótir, uggarnir bogna og fiskarnir verða skakkir.
Eina ráðið er að fá sér stærra búr eða skipta út fiskum og fá sér aðra sem passa í þessa búrstærð.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
napoli
Posts: 31
Joined: 24 Nov 2010, 02:06

Post by napoli »

Skalarnir eru alltaf úti í horninu aftast á búrinu eins og þeir séu að fela sig og þeir vilja varla borða, sumir narta smá en maturinn leggst bara á botninn .. eru þeir bara í shocki?

Ég skipti um alveg 70% af vatninu í dag út af hvítu slykjunni eftir sandinn, það er mikið betra vatnið núna og ég setti Aqua Safe og Easy Balance í vatnið ..

Skil ekki afhverju þeir eru svona :x
Gullfiskarnir mínir eru bara ofvirkir miðað við Skalana .. eru þeir að taka aðlögunartíma?

Og eitt annað, þeir eru allir rauðir í augunum nema minnsti, eiga þeir að vera þannig?

pósta mynd á eftir!
napoli
Posts: 31
Joined: 24 Nov 2010, 02:06

Post by napoli »

http://s1178.photobucket.com/albums/x371/napoli4/Fish/

hér er albúið .. sjá allir myndirnar??
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Ætli þeir séu ekki bara að venjast búrinu og eitthvað stressaðir, bara gefa þeim smá tíma.
Skalar eru oft með rautt í augunum, bara hluti af litnum á þeim og ekkert til að hafa áhyggjur af.

Gruggið fer bara með tímanum af þú hefur ekki verið nógu dugleg að skola sandinn, ætti að fara á nokkrum dögum og hægt að flýta fyrir með því að gera nokkur stór vatnsskipti.
Ég myndi annars ekkert vera að stressa mig á Aqua safe, Easy balance og þessum aukaefnum, vatnið okkar á Íslandi er fínt og það má alveg sleppa þessu þó það geri eflaust ekkert nema gott, bara skemmtilegara að kaupa sér fiska eða eitthvað meira spennandi fyrir peninginn :)
-Andri
695-4495

Image
napoli
Posts: 31
Joined: 24 Nov 2010, 02:06

Post by napoli »

Ó okey takk fyrir að segja mér það ! :)

Fiskarnir eru orðnir geðveikt happy núna og koma upp og borða :) yay :lol: :P
User avatar
liljanco
Posts: 31
Joined: 09 Apr 2011, 22:22
Location: Reykjavík

Re: 60L Skala Búr!

Post by liljanco »

Þetta búr gengur ekki nema í nokkrar vikur þá verður þú að finna þér stærra búr undir þessa skalla. kv: Gústi
kv: Gústi
846-0606
Post Reply