Skalarnir synda á hlið

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Post Reply
napoli
Posts: 31
Joined: 24 Nov 2010, 02:06

Skalarnir synda á hlið

Post by napoli »

Skalarnir mínir eru soldið í því að synda á hlið :/ svona eins og það sé straumur að ýta á þá en það er ekki út af dælunni .. hvað eru þeir að gera?

svo ef ég pikka á búrið þá hætta þeir :/

er hrædd um að það sé eitthvað að þeim
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Gætu verið léleg vatnsgæði.
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Líka þú ert með svolítið lítið búr fyrir alla þessa skala, rétt 60 L.
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
napoli
Posts: 31
Joined: 24 Nov 2010, 02:06

Post by napoli »

það eru MJÖG góð vatnsgæðin svo það er ekki það

en þeir eru enn mjög litlir og eru bara 3 þannig að búrið er ekki orðið vandamál strax, hef ekki tekið eftir að þeir hafi gert þetta í dag, kannski fannst þeim þetta bara gaman hehe
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

napoli wrote:það eru MJÖG góð vatnsgæðin svo það er ekki það

en þeir eru enn mjög litlir og eru bara 3 þannig að búrið er ekki orðið vandamál strax, hef ekki tekið eftir að þeir hafi gert þetta í dag, kannski fannst þeim þetta bara gaman hehe
Hefurðu mælt vatnið nýlega? Þeim fannst þetta alveg pottþétt ekki gaman. Það eru einhverjar aðstæður sem láta þá gera þetta, og allar líkur á að það sé ekki góðs viti.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

ég hef tvisvar séð skalla synda á hlið og þeir drápust báðir stuttu síðar.
En á meðan fiskar synda óeðlilega, þá er ekki allt í lagi með þá.
:wink:
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Er sterkt ljós við hliðina á búrinu eða meiri en lýsingin ofan á þá?. Eða jafnvel bara ljós á hlið þegar þeir gera þetta?.
Ace Ventura Islandicus
napoli
Posts: 31
Joined: 24 Nov 2010, 02:06

Post by napoli »

já það er ljós bæði í lokinu og svo er lampi hliðina á kommóðunni, getur verið að það sé málið hehe .. ætla að prufa að slökkva það en þeir hafa allavega ekki verið að gera þetta lengur, ætla að fylgjast náið með þeim á morgunn :) takk!

og já mældi vatnið, allt ph draslið var perfect :D notaði svona all in one próf
Post Reply