Gotbúr hversu lengi í því ?

Guppy, endler, platy, sverðdragarar og aðrir gotfiskar

Moderators: Elma, Vargur

Post Reply
gassir
Posts: 16
Joined: 16 Jul 2008, 23:09

Gotbúr hversu lengi í því ?

Post by gassir »

Hæ hæ

Hvað er ráðlagt að hafa Gubbý kellu lengi í gotbúrinu vorkenni henni þetta er svo lítið :) þolir hún lengi við ég veit ekki hvenær hún á von á sér en hún er ber þess merki að fara að fjölga sér en mig langaði að vita hvað lengi má hafa þær í þessum litlu búrum :)

Takk takk
Korbui
Posts: 22
Joined: 15 Dec 2011, 13:39

Re: Gotbúr hversu lengi í því ?

Post by Korbui »

Tja mér var sagt að bíða þangað til að maður sér að hún er að fæða því annars gæti hún stressast upp og fætt of snemma eða haldið í sér...
gassir
Posts: 16
Joined: 16 Jul 2008, 23:09

Re: Gotbúr hversu lengi í því ?

Post by gassir »

Takk fyrir þetta

Hún er búin komin 3 seyði ég keyfti gotbúrið og setti hana í það síðan morguninn eftir komin 3 stk sem heilsast vel :)
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Re: Gotbúr hversu lengi í því ?

Post by Agnes Helga »

Já, best að setja þær í það eiginlega þær eru byrjaðar að gjóta eða alveg komin að því, maður lærir með reynslunni að þekkja hegðunina: Felugjarnar, éta lítið, halda sig frá öðrum fiskum, bumban breytist í laginu og það myndast voða spes horn við gotraufina samkvæmt googlinu, og það hefur yfirleitt passað við mínar kerlur.
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Re: Gotbúr hversu lengi í því ?

Post by Elma »

það ættu að koma fleiri ern þrjú seiði,
það getur tekið nokkra tima fyrir þær að gjóta.
það getur lika verið að hún hafi náð að éta nokkur.
það er best að setja smá java mosa eða annan flot gróður
með til þess að seiðin geti falið sig.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Post Reply