Nýtt búr

Almennar umræður um plöntur, lýsingu og annað sem viðkemur gróðurbúrum

Moderators: Vargur, prien, Sven, Stephan

User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Nýtt búr

Post by Sven »

Jæja, þá er komið að því að setja búrið upp á nýtt eftir flutninga. Ég velti eitthvað vöngum yfir því að fara í eitthvað annað í plöntur, en eftir að hafa velt fyrir mér öðrum möguleikum þá kom ekkert annað til greina á endanum.
Búrið er 210 lítrar og þetta verður vel plantað community búr, ákvað að prófa þá leið að vera með nokkuð mikið af grjóti, er samt ekki viss með þessa uppsetningu, fer kanski alveg 360 gráður á þessu eftir einhvern tíma.
Var reyndar nokkurn tíma að breyta fram og til baka,
Image
Image

Endaði svo á þessari uppsetningu.
Image
vinstri hliðin
Image
hægri hliðin
Image

Ég ætla svo að skella 3 39W T5 perum og 2 30W T8 perum yfir búrið, verð svo með CO2 á kút og á svo eftir að finna út hvernig planið verðuð með næringuna, en mun nota EI, fyrir þá sem þekkja það.

Hvað fiska varðar, þá var ég að velta því fyrir mér hvort að ég ætti að prófa að fá mér nokkra rama, microgapheogus ramirezi, heita þeir það ekki?
Verð svo náttúrulega að fá mér svona 4-5 SAE, kanski nokkra Otoa, 2-3 ancistrur og svo hrúgu af einhverri tetrutegund, e.t.v. rummy nose, demanta tetru eða álíka. Hugmyndir og uppástungur vel þegnar. Geri svo ráð fyrir að fá mér 3-4 YoYo bótíur.

Ég ætla svo að reyna að pósta inn með framgangi verksins
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Það verður fróðlegt að sjá endanlega útkomu, það er ekkert að marka þetta svona án gróðurs.
Ertu með litaða möl eða rauðamöl eðagróðurmöl eða?? Mér finnst hún svo óvenjuleg.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Lítur vel út.
Þessi eini steinn sem stendur upp á endan í miðjunni stingur mig samt aðeins í augað.

Hvaða hreinsibúnaður verður í búrinu og hvenær fer vatnið í ?
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

voða flott...mér finnst þetta vera mjög haustlegt og flott :P
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Hehe, Vargur, ég var að ganga framhjá búrinu fyrir svona 5 mínútum og færði þennan stein, alveg sammála þér :)
Annars er ég með Eheim 2206 held ég að númerið sé.

Sandurinn er Flouride red, það eru í honum einhver steinefni og drasl sem hentar vel fyrir plöntur, rándýrt helvíti.
Vonandi að vatnið fari í á næstu dögum, þarf samt að redda nokkrum atriðum fyrst, þarf að tengja öll ljósin, og svo CO2 systemið við vatnsdæluna og kútinn, nokkur handavinna í kring um það, þetta ætti samt að fara að smella í vikunni.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Lýst vel á þessa uppsetningu :), verður gaman að sjá þegar plönturnar verða setta í 8)
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Helv*** vesen, það tefst væntanlega eitthvað að það fari vatn í búrið, ég þarf nýjar slöngur á dæluna 16/22mm og þær eru víst bara ekki til á landinu í augnablikinu.
Ef einhver veit um búð sem á svona slöngur, þá má endilega láta mig vita af því. Annars verður maður víst bara að leita út fyrir landssteinana.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

ertu búinn að tékka hvort byko eða húsasmiðjan eigi slöngur í þessari stærð ?
-Andri
695-4495

Image
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

eða mögulega barki
Ace Ventura Islandicus
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Minnir að þær séu til í Dýralíf, stórhöfða 15
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Takk Squinchy, slöngurnar vissulega til í Dýralífi, sem ég vissi reyndar ekki að væri til :shock:
Kristín F.
Posts: 158
Joined: 02 Apr 2007, 17:08

Post by Kristín F. »

Þökk sé Jökli þá fer að styttast í það að við getum fengið MYNDIR af búrinu fullu af vatni & fiskum ... er það ekki annars, Sven??
-þetta verður glæsilegt hjá þér :)
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Ekkert mál ;)
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Ætla nú ekkert að lofa neinu með flóru og fánu, ég hef nú ekki séð mikið af þeim plöntu og fisktegundum sem mig langar í í búðum. En það verður vonandi komið eitthvað líf í búrið eftir helgi.
Talsvert eftir að ganga frá ljósabúnaði og CO2 uppsetningunni.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Djölli, fór og fékk 2*1m slöngur hjá þeim, frá einhverjum A-Evrópskum framleiðenda og líta ekki út fyrir að vera gæða slöngur, mjög harðar og leggjast auðveldlega saman ef maður beygir, þær kostuðu 1200 kall!!, mér líður vægast sagt illa í afturendanum núna!!!!
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Ég er með svona slöngur á mínu 170L búri, það þarf bara að hita þær með heitu vatni úr krananum og síðan bara að Beygja þær og halda þeim í þeirri stellingu sem maður vill hafa þær, þá festast þær í þeirri stöðu þegar þær kólna
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Súper, prófa það, takk enn og aftur squinchy.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Ekkert mál, bara hita þær mikið alveg þangað til þær verða alveg linar og síðan að halda þeim í þeirri stöðu sem þú vilt hafa þær í, mjög gott að nota einhverja góða uppþvottar hanska eða einhverja sem verja mann við hitanum á slöngunum meðan maður hitar þær

Ég gerði þetta t.d. svona með mitt búr
  • 1. náði mér í 10L fötu (Hægt að nota hvaða fat sem er svo lengi sem slöngurnar passa alveg ofan í það en samt helst með loki)
    2. byrjaði á því að fara í bílskúrinn þar sem það er stór vaskur þar með rugl heitu vatni :P þar byrjaði ég á því að hita slöngurnar þangað til þær urðu virkilega mjúkar
    3. síðan setti ég heita vatnið í fötuna og slöngurnar líka og setti lokið á
    4. fór með fötuna að búrinu og náði mér í einangraða/fóðraða vinnu hanska
    5. opnaði fötuna og tók eina slönguna úr heita vatninu og setti lokið aftur á
    6. kom slöngunni fyrir eins og ég vildi hafa hana og stytti eftir þörf, hélt síðan við slönguna (og aðalega þá þar sem hún lagðist saman eins og hún var í pakkningunni) þangað til þetta kólnaði og varð hart aftur
Síðan bara það sama með hina :P
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Jæja, verkefnið heldur áfram,
ljósaunitið sett upp, gekk snyrtilega frá þessu í þetta skiptið, var allt í hrúgu í skápnum síðast.
Image
Allt logaði
Image
Nennti ekki að þrífa speglana að ofan, en þeir voru orðnir vel skítugir að innan og hafa örugglega ekki gert mikið gagn undir það síðasta í búrinu áður en ég tók það niður.
Image
Svo réðst ég í að ganga frá CO2 unittinu, hér er kúturinn og reactorinn sem verður tengdur við útganginn á dælunni þannig að CO2 leysist upp í vatnið áður en því er skilað í búrið úr hreinsidælunni.
Image
Hér er svo tímarofinn á kolsýruflæðið og loftbóluteljarinn til að fylgjast með flæðinu, sem ætti að verða um 1 - 1,5 loftbóla (kolsýrubóla?) á sekúndu.
Image
Svo var komið að því að fylla búrið, fingur krossaðir í von um að ekkert grjót mundi velta á hliðina.
Image
Ekkert hrundi
Image
vinstri
Image
hægri
Image
Fann svo þessa laumufarþega sem hafa væntanlega smyglað sér ofaní ílátin sem notaði undir sandinn á fiskadraslið var í geymslu þegar ég flutti, vona að kvikyndin hafi ekki smyglað sér inn í þvottahúsið hér, sem ætti að vera rakt og fínt fyrir helvítin.
Image
Hér er svo sönnun á því að Malaysian trumet sniglar eru harðgerð kvikyndi, sá þennan eftir að sandurinn hafi verið í geymslu í um 3 mánuði án nokkurs vatns, bara raka, og ég hafði skolað allan sandinn með ísköldu vatni, annars er mér nokkuð sama, þeir gera svosem sitt gagn og ég ætla hvort sem er að fá mér 3-4 YoYo botíur.
Image
Svo er bara að fara að spýta í lófana og tengja dæluna með þessum rándýru slöngum, 600 kall fyrir 1 meter af plastslöngu...... detti nú af mér allar.....
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Eru þetta silfurskottur?
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

mér langar að fá mér eitthvað flott í mitt búr!..

óskararnir að koma til pabba eftir helgi (me being pabbi) og það verður gaaaman..:D
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Já Ásta, þetta eru silfurskottur, Skúli, beilaðu bara á þessum óskörum, ég skal senda þér 2 skottur, þér að kostnaðarlausu!
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

ojj bara.. fynnst silfuskottur alveg hryllilega ógeðslegar!!!. :oops:
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Jæja, þá er loks komið eitthvað líf í búrið, skellti mér í fiskabur.is í dag og fékk mér 7 demantatetrur til að starta búrinu og tók nokkrar vesælar plöntur með í leiðinni.

Alternanthera rubra
Image

Ludwigia repens
Image

Óþekkt planta sem ég er ekki einu sinni viss um að sé á lífi, fékk hana gratís og svo er bara að sjá hvort hún taki við sér.
Image

Hydrocotyle leucocephala
Image

Demantatetrurnar eru þarna hægra megin, sjást þó varla. Eru hvort sem er ekki mikið fyrir augað rétt eftir flutninga, næ vonandi betri myndum af þeim í nánustu framtíð.
Image

Svo er á döfunni að fá í búrið 16 rummy nose tetrur, jafnvel fleiri, 4 SAE, 3 YoYo botíur og kanski nokkra demanta í viðbót.
Svo er að sjá til hverju maður getur sankað að sér að plöntum. Þeir sem gætu séð af afleggjurum mega gjarnan bjóða sig fram, ég skal glaður launa greiðann þegar það er komin einhver spretta í búrið hjá mér.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

mér finnst þetta mjög fallega uppsett búr, vildi að ég gæti gert bara copy - paste yfir í mitt :lol:

ég á eina plöntu hérna sem þú mátt eiga ef þú vilt, ég tók hana uppúr búrinu í nokkra daga og mörg blöð voru orðin ónýt en það eru strax farin að vaxa ný. Hálf drusluleg svona hálfnakin :P
Image
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Takk fyrir það Andri, viltu ekki sjá hvort að plantan taki við sér hjá þér? Ég gæti e.t.v. fengið að bjalla á þig þegar ég á næst leið í Hfj, og fengið bara afleggjara, get þá látið þig hafa afleggjara af einhverjum af þessum plöntum sem ég er kominn með í staðinn. Eða ert þú e.t.v. ekki með svo gróðurvæna fiska?
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

neinei hún fær alveg að vera í búrinu en mér fannst hún ekki passa vel inní hjá mér, ég var kannski bara líka orðinn pirraður þarna um daginn þegar ég tók hana úr búrinu því walking catfish var að róta öllu upp.

Ég er með gróðurvæna fiska, ég er bara ekki alveg búinn að ákveða hvort ég fari að þyngja niður plönturnar með einhverju móti eða bara hreinlega losa mig við kattfiskinn. Hann er orðinn svo sterkur að hann nær að róta öllu til.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

skilðig, ég fæ þá kanski að bjalla á þig þegar ég er á ferðinni næst og við getum þá gert eitthvað smá bítterí?
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

endilega
-Andri
695-4495

Image
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Sven, kíktu í Fiskó það er svona sæmilegt úrval af ágætis plöntum þar.
Ace Ventura Islandicus
Post Reply