gróðurmold og sandur

Almennar umræður um plöntur, lýsingu og annað sem viðkemur gróðurbúrum

Moderators: Vargur, prien, Sven, Stephan

Post Reply
siamesegiantcarp
Posts: 123
Joined: 11 May 2007, 23:33

gróðurmold og sandur

Post by siamesegiantcarp »

Er að byrja með 54 lítra gróðurbúr,

Ef ég set gróðurmold undir sand

hvað á hún að vera þykk? 1cm

en sandurinn 2cm?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Gróðurmold er líklega ekki alveg það sniðugasta til að setja í búr - oft eru einhver aukaefni í henni, s.s. áburður og eitthvað gúmmelaði sem fiskar fíla ekki. Ég myndi frekar mæla með því að setja mó undir mölina.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
siamesegiantcarp
Posts: 123
Joined: 11 May 2007, 23:33

Post by siamesegiantcarp »

hvar er best að ná sér í mó á höfuðborgarsvæðinu?
siamesegiantcarp
Posts: 123
Joined: 11 May 2007, 23:33

Post by siamesegiantcarp »

ný spurning líka, er í lagi að setja skeljasand eins og er í sjóbúrum yfir móinn. Fíla t.d. sverðdrekaplöntur það?
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

siamesegiantcarp wrote:hvar er best að ná sér í mó á höfuðborgarsvæðinu?
http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?t=3528
-Andri
695-4495

Image
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

Talaðu við Bruna, hann á eitthvað til! ég reyndar endaði með Sera Floredepot og sand yfir, so far so good.
siamesegiantcarp
Posts: 123
Joined: 11 May 2007, 23:33

Post by siamesegiantcarp »

en hvað með bara venjulega mold,

ég þyrfti líka fá að vita ef ég er með 54 l búr hversu marga centimetra af mold á að hafa
og síðan hversu marga sentimetra af möl

og fíla plöntur að hafa fínann skeljasand?
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

siamesegiantcarp wrote:en hvað með bara venjulega mold,

ég þyrfti líka fá að vita ef ég er með 54 l búr hversu marga centimetra af mold á að hafa
og síðan hversu marga sentimetra af möl

og fíla plöntur að hafa fínann skeljasand?
Myndi bara kaupa svona sérstaka gróðurmöl úr dýrabúð :) held að búrið þitt verði ansi brúnt ef að þú ferð að troða mold undir mölina :P mátt ekkert hreyfa við því. Verður bara eins og drullupollur eða álíka.
200L Green terror búr
User avatar
haffi85007
Posts: 185
Joined: 31 Mar 2008, 21:09
Location: Njarðvík

aha

Post by haffi85007 »

ég heyrði hérna á spjallinu að það væri fínt að kaupa sér bara kattarsand og setja hann undir mölina..hef ekki enn prufað en geri brátt :P
70 ltr og 21ltr
12x stk gúbbí (21ltr)
1xalbínóa koparryksuga (21ltr)
1x Gibbi (70ltr)
1xAnchistrur (4-5.cm) (21ltr)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Re: aha

Post by keli »

haffi85007 wrote:ég heyrði hérna á spjallinu að það væri fínt að kaupa sér bara kattarsand og setja hann undir mölina..hef ekki enn prufað en geri brátt :P
Það hef ég aldrei heyrt :shock:


Ég nokkuð viss um að næstum allur kattarsandur sé óhæfur í fiskabúr, enda með efnum til að minnka lykt og til að hann "klumpist"
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

Kattasandur og kattasandur er langt frá því að vera það sama. Það eru gjörólík efni í mismunandi gerðum frá því að vera frekar venjulegur sandur með einhverjum lyktareyðandi efnum út í að vera leir sem dregur í sig vökva og kögglast. Ég get ekki ímyndað mér að það sé neinn eiginleiki kattasands sem gerir hann hentugann í fiskabúr.
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

gudrungd wrote:Kattasandur og kattasandur er langt frá því að vera það sama. Það eru gjörólík efni í mismunandi gerðum frá því að vera frekar venjulegur sandur með einhverjum lyktareyðandi efnum út í að vera leir sem dregur í sig vökva og kögglast. Ég get ekki ímyndað mér að það sé neinn eiginleiki kattasands sem gerir hann hentugann í fiskabúr.
Já er svo sammála :) sé ekki að kattasandur eigi að vera eitthvað stútfullur af næringarefnum fyrir plöntur í fiskabúr þegar hann á að vera notaður til að skíta í :P allavega er þá betra að kaupa bara sérstaka gróðurmöl í dýrabúð frekar en kattasand með efnum í sem að hæfa örugglega ekki í fiskabúr enda ekki gerður fyrir það.
200L Green terror búr
Post Reply