**Elmu búr**

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Setti upp eitt 180L búr um daginn, sem kærastinn er aðalega að nota, ég á engan fisk í því. Það breyttist snarlega í nótt. Í gær fór í það sætur´, lítill albínó tiger óskar. Átti bara að vera þar í skamman tíma. En í búrinu er einn c.a 20cm RTC. Í morgun sá ég að oscarinn væri horfinn. Grunaður um verknaðinn var Rtc. Og sannarninar voru ekki af verri endanum, því að stór og mikil bumba er komin á hann.

r.i.p litli oscar.

En einnig er í búrinu tveir feimnir parrotar, Pangasius, einn 20cm tiger oscar og nokkrir convict. Þessir fiskar eru þarna bara tímabundið
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

nokkrar myndir úr 60L búrinu


búrið
Image

altispinosa kvk, ekki litaglöð
Image

altispinosa kk
Image
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Flott búr og skynsamlegt
fín innrétting og fáir fiskar

er altispinosan að hrygna hjá þér ?
það er eins og hrygningartúpan sjáist þarna á kerlunni
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
pípó
Posts: 1172
Joined: 05 Apr 2007, 09:28

Post by pípó »

Fallegt búr hjá þér Elma :)
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Gudmundur wrote:Flott búr og skynsamlegt
fín innrétting og fáir fiskar

er altispinosan að hrygna hjá þér ?
það er eins og hrygningartúpan sjáist þarna á kerlunni
Takk, takk Guðmundur.

þeir fiskar sem eru í búrinu eru

Altispinosa par
2x Corydoras High Fin Albino

Þessa sér maður eiginlega aldrei.
einhver ancistruseiði
1x Banjo Catfish
1x Loricaria filamentosa
2-3 Pigmy corydoras

Nei hef ekki orðið var við að parið sé að hrygna hjá mér. Karlinn er ekki alveg sáttur með kerluna, þessvega er hún svona litlaus, alltaf eitthvað bögg í honum. Held að það sé út af því að hann vill fara að "make fishes" en ekki hún. En ég vonast til að þau nái sáttum og fari að fjölga sér. Mjög fallegir og skemmtilegir fiskar.

Takk, Pípó :)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
FiskaFan
Posts: 112
Joined: 30 Sep 2006, 06:04

Post by FiskaFan »

Er þetta búrið sem var/er á eldhúsborðinu?
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

já þetta er búrið á eldhúsborðinu

er með tvö önnur í eldhúsinu

stærsta búrið er 180L

íbúar þess eru

2Xancistrur
6X convict

hitt búrið er 4L og íbúi þess er bardagafiskur

langar að taka það fram að ég á ekki alla íbúana í 60L búrinu
ég á ekki convictana í 180L búrinu
en ég á bardagafiskinn :)

kem bara með reglulegar fréttir úr búrunum, því ég á búrin :)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

nokkrar myndir sem ég tók áðan

úr 180L búrinu - convict með seiði

Image
karlinn

Image
kerlingin

Image
þau bæði

úr 4L búrinu - bardagafiskur

Image
besta myndin sem ég náði af honum

Image
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Þegar þú tekur svona mynd eins og af Convictunum og desember myndina af óskurunum þegar allt er svona svart í kring og sést eiginlega bara í fiskana og kannski plöntu við hliðina á eins og myndirnar af Convict, tekuru með flassi og slekkur ljósin eða er þetta photoshop?
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

tek með flassi, og slekk kannski einhver ljós í kring ef ég man eftir því, kann ekki mikið á styllingarnar á myndavélinni, en er að læra:)
það er svartur bakgrunnur hjá convictunum sem hjálpaði til. Svo laga ég myndirnar aðeins til.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

En eins og með óskar myndina?
Slekkuru þá ljósið í búrinu og tekur með flassi.
Hvernig vél ertu með?
Fallegt búr hjá þér.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Birgir Örn
Posts: 207
Joined: 03 Jan 2008, 20:55
Location: 201 Kóp Aldur: 23 ára

Post by Birgir Örn »

Eru þetta convictar ættaðir frá mér?
Birgir Örn

396l Convict, Black Band, JD, RT, Marmara Pleggi,Gibbi og fl.
60l Tiger Shovelnose og ancistur(grow out búr)
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

flottir :D
Ekkert - retired
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Birgir Örn wrote:Eru þetta convictar ættaðir frá mér?
já, rétt er það.

Síklíðan: tek myndirnar á Canon EOS 400D, linsan er 16-35mm. Hafði ljósin kveikt, en slökkti öll ljósin í kring. Notaði flass. Myndunun er ekki breytt í photoshop.


takk, Bob :)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Lindared wrote: Image
var að fá skalla seiði, undan þessu pari sem er á myndinni.kK er svartur en kvk er gul. Seiðin klöktust út í gær og hafa stækkað mjög mikið síðan í gær. Það eru um 50-60 stk, sprikklandi á laufblaði, (amazon sverðplanta) en foreldranir hafa fært seiðin allavega 3x svo ég viti til, á milli blaða. Parið hefur hryngt svona 7-10 sinnum en þetta er í fyrsta skiptið sem þau éta ekki hrognin áður en þau klekjast út en þau virðast taka foreldrahlutverkið alvarlega. Allavega eru nokkrar hræddar tetrur reknar út í horn, af foreldrunum.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

Geggjað :D til hamingju með þetta :)

vildi að ég gæti fengið mín til að hrigna. maður er farinn að efast um að þetta sé par hehe. :roll:

Væri alveg til í að fá skala hrigningu
Ekkert - retired
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

takk, ég er mjög spennt yfir þessu, fyrsta sinn sem þetta heppnast hjá þeim. Hef aldrei séð svona litla skalla :) bara augu og hali og bumba (kviðpokinn) hef mestar áhyggjur þegar hann er farinn og seiðin þurfa að finna sér mat sjálf. :roll: er að pæla í að kaupa einhvern mat í vökvaformi handa þeim, er það ekki rétt hjá mér að það sé til?
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

hvernig geingur með Polleni?
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

bara ágætlega, nema &%$#" butterkoferii tekur hann í bakaríið. En þetta er mjög fallegur fiskur. Er frekar hrifin af honum, einn af mínum uppáhalds :)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

Er ekki bara málið að taka seiðin þá frá þegar þau verða frísindandi. væri svo til í að sjá hvenrig svona seiði þróast og stækka :)

veit ekki með mat í vökvaformi hvernig það er..

good luck :)
Ekkert - retired
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

nei vil sjá hvernig þetta þróast hjá þeim, annars reyna þau bara aftur seinna. Ætla mér ekki að skipta mér of mikið af þeim, enda eru þau niðri vinnu hjá mér, vissi ekki einu sinni að þau voru búin að hrygna fyrr en seiðin voru komin :)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

er hann í sama búri og stóri butter er í niðri aðstöðu?.sá hann nebla ekki :?:
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

já polleni er þarna með butta í búri, en felur sig alltaf bak við bakgrunninn, en kemur út þegar maður gefur. Butti er eins og mesta hrekkjusvín, böggar alla minni máttar, en ekki 20cm oscarinn, en oscarinn svarar fyrir sig, þannig að butti lætur hann alveg vera. :)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

Já allveg.hann hékk altaf í horninu á búrinu hjá mér svo sá maður hann gera skindi árasir á alla.hann er snillingur :!: :lol:
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Skalla seiðin eru orðin frísyndandi og borða vel af artemíu. Ég fjarlægði tetrutnar því að skallarnir voru orðnir mjög ágengir að verja seiðin sín.
Hefur einhver reynslu af skalla seiðum og veit einhver hve oft á að gefa þeim á dag?
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Flott hjá þér. Verður gaman að sjá þau stækka.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

það sést strax lita munur á þeim, sum eru ljós önnur eru dökk.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

nokkrar myndir af seiðunum og foreldrunum

Image
seiðin á laufblaði

Image
kvk með seiðin

Image
kk skallinn, seiðin orðin frísyndandi

Image
þau bæði.
Ekki bestu myndirnar en þær verða að duga :)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

geggjað :) gaman að sjá þetta hehe. hugsa að þetta myndi seint ganga með mína. þeir myndu bara sjá mat úr þessu :roll:

til hamingju :)

láttu mig vita ef þú vilt láta ættleiða svona eins og 2-3-4 stk hehe fínt pláss fyrir svona kríli í seiðabúrinu hérna hjá okkur :wink:
Ekkert - retired
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ansi flott.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Post Reply