neontertu ræktun?

Guppy, endler, platy, sverðdragarar og aðrir gotfiskar

Moderators: Elma, Vargur

Post Reply
fiskar:*
Posts: 73
Joined: 24 May 2008, 13:32

neontertu ræktun?

Post by fiskar:* »

hvernig ræktar maður neon þarf að vera eikkað sérstakt í búrinu þurfa þeir að vera einir í búri hvernig þekkir maður kynjamuninn?
85l 8 neontertur
1 black molly
3 villtir gúbbí
5 rummy nose

30l tómt
User avatar
Hanna
Posts: 478
Joined: 10 Feb 2008, 16:55
Location: Álaborg Danmörk

Post by Hanna »

það á víst að vera rosalega erfitt að rækta neon.... ætla samt ekki að staðhæfa það en þetta er það sem ég hef heyrt
What did God say after creating man?
I can do so much better
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Neon Tetrur fjölga sér ekki í búrum, þó að komið hefur fyrir að þú fáir kannski par (þó að það sé MJÖG ólíklegt).
Það er ekki hægt að sjá kynjamun :)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hmm.. furðulegt að fólk sé að fullyrða eitthvað sem það veit greinilega ekkert um. :?

Það er auðvelt að þekkja kynin á Neon tetrum, kerlan fær ávalalan kvið, nokkru stærri en á karlinum og bláa línan er beinni á karlinum.

Það er nokkuð auðvelt að rækta Neon tetrur en til þess þarf samt sæmilegt búr og líkja þarf eftir aðstæðum á náttúrulegum hrygninga tíma fiskana og gæta þess að fiskarnir éti ekki hrognin jafnóðum.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Algjört myrkur er líka möst fyrir eggin og seiðin.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
fiskar:*
Posts: 73
Joined: 24 May 2008, 13:32

vá :Þ

Post by fiskar:* »

hvernig fara þeir þá að fjölga sér :shock: (í náttúruni)en vitiði af hverju þær kippast til í hringi utanum hvor aðra :lol: ? hvað er hrygnangartímin langur?takk kærlega fyrir svörin synd að það sé svona erfit að rækta þá ógeðslega flottir fiskar
85l 8 neontertur
1 black molly
3 villtir gúbbí
5 rummy nose

30l tómt
User avatar
stebbi
Posts: 462
Joined: 30 Aug 2007, 19:05
Location: Breiðholt

Post by stebbi »

ég horfði nú bara síðast í fyrradag á neontetrurnar mínar hrygna í búrinu hjá mér, asskoti skondið að fylgjast með þeim fara í gegnum javamosann og svo kom strollan af tígrisbörbum á eftir og hreinsaði allt upp
Don´t drink water
fish f*** in it
http://madkur.bloggar.is/
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Er ræktun möguleg í 140L búri?
Ef að ég mundi setja 15stk í 140l búr og setja slatta af gróðri s.s. valisneria americana og javamosa væri það þá hægt?
Hvernig er umhverfi þeirra á hrygningatíma?
400L Ameríkusíkliður o.fl.
fiskar:*
Posts: 73
Joined: 24 May 2008, 13:32

Post by fiskar:* »

ég fór inn á www.tjorvar.is og ég komst af þössu : :D Cardinal Tetra
Paracheirodon axelrodi

Stærð: 2,5 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er kraftlegar vaxinn.

Um fiskinn: Kardínálatetran er friðsöm og lyndir vel við aðra rólega fiska. Hún líkist neóntetrunni en er með heila rauða rák undir en ekki hálfa. Hún er hinn mesti gimsteinn, sérstaklega á dökkum bakgrunni. Ekki er ráðið að setja þær í nýuppsett búr, og þarf að passa upp á vatnsgæðin. Best að hafa þær í 5-6 fiska torfum.

Uppruni: S-Ameríka: efra vatnasvæði Orinoco- og Negrofljóts í Brasilíu.

Æxlun: Þessir fiskar æxlast yfirleitt ekki nema í náttúrunni. Það er þó hægt með mikilli natni. Hrognin klekjast út á 24-30 tímum og seiðin eru frísyndandi eftir 3-4 daga. Oftast veiddir í þverám Orinoco- og Negrofljóts.

Búrstærð: 80 l

Hitastig: 23-27°C

Sýrustig (pH): 4-6

Harka (gH): 5-12

Fóður: Þurrfóður, blóðormar.
85l 8 neontertur
1 black molly
3 villtir gúbbí
5 rummy nose

30l tómt
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Fiskar:*
Hvað kemur þetta neontetruræktun við?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
fiskar:*
Posts: 73
Joined: 24 May 2008, 13:32

Post by fiskar:* »

sorry ég hélt að þetta myndi kanski hjálpa :oops: Æxlun: Þessir fiskar æxlast yfirleitt ekki nema í náttúrunni. Það er þó hægt með mikilli natni. Hrognin klekjast út á 24-30 tímum og seiðin eru frísyndandi eftir 3-4 daga. Oftast veiddir í þverám Orinoco- og Negrofljóts.
85l 8 neontertur
1 black molly
3 villtir gúbbí
5 rummy nose

30l tómt
Post Reply