Heimsókn í Fiskó

Guppy, endler, platy, sverðdragarar og aðrir gotfiskar

Moderators: Elma, Vargur

Post Reply
Bruni
Posts: 199
Joined: 30 Dec 2006, 20:57
Location: Reykjavík

Heimsókn í Fiskó

Post by Bruni »

Ég kíki reglulega í fiskabúðir og lít eftir einhverju sem freistar mín. Nokkrar þeirra hér á höfuðborgarsvæðinu hafa nokkuð stöðugt og mjög gott úrval fiska. Metnaður virðist vera fyrir hendi að bjóða upp á gott úrval fiska og fylgihluta og sumsstaðar er fagþekking mjög góð hjá eigendum og starfsfólki. Ein þessara verslana er Fiskó. Ég nefni hana sem dæmi þar sem ég kíkti þar inn í dag. Þar er alltaf gott að koma, kaffi á könnunni og alltaf eitthvað sem gleður augað. Vert er að minnast á verulega gott tilboð á neon tetrum, 99 kr. stykkið, gott úrval regnbogafiska, gotfiska, og fyrir cichliðu unnendur hér á spjallinu ættu einhverjir að finna eitthvað við sitt hæfi. Þarna voru t.d. rosalega flottir Pelvicachromis teaniatus frá Moliwe. Margir eiga staka ancistrus og yfirleitt eru það hængar sem verða stakir. Er það eitthvað náttúrulögmál ? Í Fískó sá ég heilan helling af kynþroska ancisrus hrygnum, eitthvað sem gæti vonandi glatt einhvern. Allavega labbaði ég út með tvær flottar hrygnur og þrjár sérlega glæsilegar Botia macracanta sem fóru í sóttkví til öryggis. Bíð bara eftir að setja þessa flottu fiska í mitt 700 l. kar. Það greinilega alveg ómaksins vert að taka smá rúnt í fiskabúðirnar hér á svæðinu. Fer þess vegna fljótlega aftur á stjá og skrifa vonandi smá greinarstúf um næstu heimsókn.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég var eimitt þarna í kvöld og var að spá í að taka 100 neon og setja í ameríska búrið og hafa smá fjör. :D
Bruni
Posts: 199
Joined: 30 Dec 2006, 20:57
Location: Reykjavík

Fiskó

Post by Bruni »

sona, sona, þetta má ekki. Verð eins og þessi á neon sá maður um "miðbik" síðustu aldar. Líkurnar á að fólk kaupi sér hóp verða meiri ef verðin eru lág. Sumir virðast ekki gera sér grein fyrir því að tetrur eru allflestar hópfiskar. En fyrst þú minntist á S- ameríku cichliður þá spái ég því að þú hættir fljótlega að bjástra við þá og komir til með að snúa þér að gotfiskum sem í raun eru toppurinn á þessu hobbyi ef grannt er skoðað. Sannaðu til.
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

já ég hef stundum velt því fyrir mér afhverju gotfiskar eru "toppurinn" maður hefur séð nokkra af þessum gömlu hundum byrja í gotfiskum fara svo í gúrama og bettur síðan í síkliður og monster/oddballs sumir í saltið og fara svo aftur í gotfiskana. . og eru hel sáttir með 100+ gúbba og platty. .
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég er ekkert að grínast, ég var í alvöru að hugsa um það !

...að mínu mati toppar ekkert Afríkusikliðurnar, s- Ameríku eru ágætar en Afríka er málið hjá mér....en ótrúlegt en satt þá eiði ég mestum tíma fyrir framan gotfiskabúrin mín þessa dagana.
Bruni
Posts: 199
Joined: 30 Dec 2006, 20:57
Location: Reykjavík

Fiskó

Post by Bruni »

Ég er búinn að fara allan skalann nema í saltið. Þetta hefur allt sinn sjarma en, það kemur að því að maður vill ró í búrunum en ekki þessi eilífu slagsmál um yfirráðasvæði og ruddaskap margra cichliða. Auk þess er fjölbreytileikinn mestur innan gotfiskanna, þá á ég við liti, lögun sporðs og ugga svo eitthvað sé nefnt. Sumir auðveldir í meðförum aðrir ekki. Gæði misjöfn, auðvelt að rækta nýjar línur. Það er ekki sama gubby og gubby
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

nei nei ég er ekkert að grínast heldur.
ég hef áhuga á að vita hvað er svona merkilegt við gotfiskana því ég sé það ekki . kannski maður ætti að setja upp gotfiskabúr til að upplifa þetta . . . það eru nú komin nokkur ár síðan..

en er sammála fiskó er þrælfín verslun og ein af mínum 3 uppáhalds.
ég er mikill pelvicachromis aðdáandi og er búinn að dást töluvert af þeim í fiskó og svo er eitt par í dýragarðinum sem er með þeim fallegri sem ég hef séð man nú ekki eftirnafnið svona í svipinn . .
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Já ég er sammála þessu og oft hálfhissa hvað margir átta sig ekki á hvað gotfiskaræktun er heillandi.
Það væri nu gaman að fá smá pistil hér á spjallinu um búrið þitt Bruni.
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Re: Fiskó

Post by Hrappur »

Bruni wrote:allt sem bruni sagði :)
ég skil hvað þú átt við . .
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

Vargur wrote:Já ég er sammála þessu og oft hálfhissa hvað margir átta sig ekki á hvað gotfiskaræktun er heillandi.
Það væri nu gaman að fá smá pistil hér á spjallinu um búrið þitt Bruni.
en jú auðvitað skilur maður að fólk hafi áhuga á einhverju misjöfnu ;) eða þannig ehh. .

sumir rækta rósir td. . eða elta fiðrildi og aðrir safna fiskum í búr ??
ég er sko ekkert hálfhissa á því ég er þvílíkt svakalega undrandi að ég er eiginlega bara steinhissa hvernig sem það er nú hægt ? . !! :)

hmm seinast þegar ég var með gotfiska þá var það nú bara til að síkliðurnar fengu aukaprótein á mánaðarfresti . en það er klárlega minn feill að falla ekki fyrir þessum elskum . . þarf að skoða þetta nánar og langar að heyra meira frá þér bruni ,þetta er áhugavert.

úff ég er farinn í háttinn . orðinn þreyttur og leiðinlegur.
Bruni
Posts: 199
Joined: 30 Dec 2006, 20:57
Location: Reykjavík

Fiskó

Post by Bruni »

Sælir aftur. Smá info um mitt búr, er reyndar með tvö, eitt 700 l. og annað 50 l. þar sem ég reyni að koma seyðum í örugga stærð þannig að þau verði ekki étin þegar þau fara í stærra búrið. Í því stærra er ég auðvitað með sverðdragara af nokkrum litafbrigðum. Hængarnir eru allir rauðir Simpson en orðið Simpson er notað þegar bakugginn er óvenju hár, það er ríkjandi gen sem veldur þessu útliti. Þá er ég með Limia nigrofasciata sem er "villtur gotfiskur" tegund sem er náskyld mollyum. Mjög skemmtilegir og duglegir fiskar. Tvo ancistrus hænga, sex Congo tetru hænga sem ég fékk í fyrra í fiskabúr.is, þeir eru orðnir mjög stórir og alveg rosalega fallegir, fimm rosalega flott eintök Melanotaenia boesemani regnbogafiska sem ég fékk í Dýragarðinum og sex Bala hákarla, eina rauða simpson maculatus hrygnu og coral platy hrygnu, fengna á sama stað. Dýragarðurinn er reyndar mjög flott verslun, þar er einnig mjög gott að koma, kaffi að sjálfsögðu á könnunni. Ég ætla þangað mjög fljótlega, Þarf að launa Kristni stóran greiða, mikill öðlingur þar. Þá er ég með sex stóra skalla, að öllum líkindum þrjú pör. Tunnuhreinsir af Sacem Marathon gerð sér um að sía óhreinindin frá, dælir 1500 l/klst. Í minna búrinu er svo ungfiskar, aðallega fyrrnefnd Limia og endlers sem ég fékk fyrir skömmu í fiskabúr.is. Þeim svipar mjög til villtra gubbya en eru litmeiri og flottari en flesta "villitypur" af gubbyum. Ekki má svo gleyma tuxedo maculatus platyum, afkomendum platya sem ég fékk um árið í Gallery skrautfisk, ef ég man rétt. Held bara að allt sé upptalið. Lenti annars í mjög skæðri blettaveiki í fyrra sem nánast þurrkaði allt heila "klabbið" út. Fyrsta lyfið sem ég gaf virkaði ekki hætishót. Stórar töflur frá Kristni, þá á öðrum stað, björguðu því sem bjargað varð. Er smám saman að auka við eignina eftir það.
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Gamli. Ég skora á þig að setja upp sérþráð um búrið þitt.


Annað: hvernig sótthví ertu með í gangi? Hvað gerir hana frábrugðnari öðrum búrum á heimili þínu?

Setur þú alla nýja fiska í hví áður en þeir fara í aðalbúrin?
Bruni
Posts: 199
Joined: 30 Dec 2006, 20:57
Location: Reykjavík

Fiskó

Post by Bruni »

Sæll Birkir.
Þetta er óvitlaus hugmynd með þráðinn. Er ekki alveg sáttur við myndirnar af búrinu en það er eitthvað sem hægt er að redda. Sóttkví er algert lykiatriði. Jafnvel þótt fiskarnir sem keyptir eru virðist frískir í alla staði getur óværa smyglað sér með. Ég hef fiskana í sérbúri í viku og tékka þá reglulega af með sérstaklega með tilliti til blettaveiki. Ég er annars á móti því að gefa lyf nema sjúkdómseinkenni séu augljós, en ég held að rétt sé að meðhöndla gegn húðsníklum, "svona just in case" Hitt getur verið dýrt spaug.
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Ég, eins og Birkir, skora á þig að stofna þráð.
Ég sé að þú ert með Congo tetrur, þú villt ekki bæta við 3 flottum kk í safnið?
Bruni
Posts: 199
Joined: 30 Dec 2006, 20:57
Location: Reykjavík

Fiskó

Post by Bruni »

Sæll Guðjón.
Takk fyrir áskorunina. Þetta með tetrurnar er alveg ræðandi. Það er alveg pláss. Annars er ég mjög kræsinn á "lúkkið" á þeim. Mega ekki vera stuttir og feitir, heldur frekar grannir og slörmiklir. Hvað eru þessir höfðingjar annars gamlir ?
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Ég er ekki klár á aldrinum, fékk þá hjá Sliplips
Þetta eru litmiklir kappar, hef reyndar ekkert til að bera þá saman við
forsetinn
Posts: 305
Joined: 10 Oct 2006, 13:32

Post by forsetinn »

Sammála með gotfiskana....eins og sumir hérna kannski vita þá er ég forfallinn guppyræktandi - og þeir fiskar heilla mig allveg upp úr skónum.

Ég er reyndar allveg ósammála því sem að hérna kom fram að það væri auðvelt að rækta upp ný og góð afbrigði í gotfiskum. Það tekur langan tíma ekki spurning.

Þess vegna fór ég til USA og náði mér í 100% hreina stofna og þeir stofnar sem að ég rækta eru

Moscow blue
Image

Russian metal
Image

Fully red
Image

Alla þessa stofna fékk ég hjá aðila sem að heitir Luke Roebuck og eru myndirnar af síðunum hans.

Ég er á leiðinni til USA í mars og er aðhugsa um að koma með enn eina hreinræktaða línuna í ´viðbót ????? kemur í ljós.

Einnig er ég að hugsa um að fara í sverðdraga ???

Ég skora á ykkur að fara í allvöru guppyræktun...virkilega spennandi og skemmtilegt
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Ég hef einmitt verið að fylgjast með gubby ofurpælingum þínum á öðrum spjöllum. Þetta er alveg makalaust!
Bruni
Posts: 199
Joined: 30 Dec 2006, 20:57
Location: Reykjavík

Fiskó

Post by Bruni »

Sæl aftur, Gaman að þessum pælingum, menn sammála og ósammála, það er eðlilegt. Ég ætla hins vegar að halda fast í það sem ég sagði varðandi það að gera ný afbrigði eða línur. Tíminn þarf ekkert að vera langur. Það skiptir máli eftir hverju verið er að sækjast, þarftu að koma einu geni inn í stofninn, eða þarftu að taka fiskana til gagngerra breytinga. Hvað eru fiskarnir góðir sem unnið er með í upphafi. Glöggt auga þess sem ræktar er hugsanlega mikilvægasti þátturinn ?
forsetinn
Posts: 305
Joined: 10 Oct 2006, 13:32

Post by forsetinn »

Það að búa til nýja stofna eftir eigin höfði er sjálfsagt ekkert mál og þarf engan tíma þar sem að engin almennileg viðurkennd viðmið eru til staðar um það hverju á að ná fram í ræktuninni. - Hitt að ná fram viðurkenndum góðum afbrigðum er mun flóknara mál og tekur alltaf sinn tíma
Post Reply