Page 1 of 1

Polypterus..!

Posted: 08 Sep 2008, 21:02
by Fiskurinn
Mig langar að forvitnast um þessa fiska hjá fólki eilítið. þannig er það með mig að ég er með óendanlega dellu fyrir þessari ætthvísl. Sjálfur er ég með tvö fiskabúr í "stærri kantinum" fyrir þessi kvikindi. Ég á allveg þokkalegt safn þó að ég segji sjálfur frá! Aðrar tegundir allgengari en aðrar..!

Pínu njósnir...Hvaða tegundir eru í gangi hér heima?
Svo væri gaman að sjá myndir af gripunum einnig.. 8)
Digital vélin mín er biluð,þannig engar myndir héðan.

Posted: 08 Sep 2008, 21:12
by Jakob
Senegalus og Ornatipinnis hafa verið algengastir,Palmas Polli hefur komið stöku sinnum.

Hef sjálfur átt;
4x Senegalus á 2 enn í dag.
2x Ornatipinnis
3x Palmas Polli
1x Delhezi
1x Lapradei

Posted: 08 Sep 2008, 21:12
by Jakob
Sendu inn myndir af þessu 8)

Posted: 08 Sep 2008, 21:30
by Elma
hérna er smá þráður um senegalus, nokkrar myndir af algengustu tegundunum og einhverjar spurningar og svör http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?t=1930&start=0

Posted: 08 Sep 2008, 21:31
by Jakob
Treystu mér linda, maðurinn kann á þetta :wink:

Posted: 08 Sep 2008, 21:33
by Elma
já treysti því alveg :wink:

Posted: 08 Sep 2008, 21:51
by Fiskurinn
ÉG er með óstoppandi bakteriu fyrir þessari ætthvísl sjálfur.
Eg sjálfur er með:
4stk. ornatipinnis
1stk. delhezi
2. stóra lapradi, annar er með fallegar grænar rendur.
2 þokkalega stóra Polypterus endlicheri congicus
6stk. senegalus nokkra frekar stóra,allir úr sitthvori áttinni þ.e.a.s. ekki allir úr sömu búðinni né úr sömu sendingu. kaupi alltaf einn úr hverri sendingu (úr hvaða búð sem er) til að fá einhver frávik. semsagt aðrir eru grænni en aðrir,dekkri og fram eftir götunum...!! gaman að sjá muninn hvað enginn er í raun eins.
1.stk sem átti að vera palmas/(það komu tvö stk. einn hoppaði uppúr hjá mér eða öllu heldur hvarf, hans er minnst sem Houdini ,hann var pottþéttur "palmas,þessi venjulegi)" en er það líklega ekki samt! mynstrið passar ekki við þá palmas sem ég hef séð. En er mjög líklega Polypterus retropinnis.

Kveðja Fiskurinn

Posted: 08 Sep 2008, 21:52
by Fiskurinn
Svo má ekki gleyma fjórum Rope fish..

Posted: 08 Sep 2008, 22:23
by Arnarl
Já sæll! væri gaman að fá myndir af búronum og íbúa lista :D

Posted: 08 Sep 2008, 23:09
by Fiskurinn
1.Búrið= 400L
4stk. Ornatipinnis
1stk. Delhezi
6stk. Senegalus
1stk Retropinnis
6stk Hoplarchus Psittacus (Bara flottir)
1stk Channa obscura
4stk Rope fish
1stk Channallabes apus
1stk Plecostomus

2.Búrið = 300L
2stk Astronotus Ocellatus (35cm hrygnandi par,eru með seyði)
2stk Polypterus lapradei
2stk Polypterus endlicheri congicus

Posted: 08 Sep 2008, 23:14
by Elma
úúú þú verður að jibba á okkur myndir fyrst að þú ert búinn að segja okkur hvað þú ert með í búrunum hjá þér :D alveg möst! virkar mjög spennandi :P

Posted: 08 Sep 2008, 23:22
by Andri Pogo
eru þessir sem komu sem palmas og þú heldur að sé retropinnis þeir litlu sem voru uppí garðabæ um daginn ?

Posted: 08 Sep 2008, 23:34
by Fiskurinn
nope, þessir komu fyrr á árinu :P þeir fóru aldrei í sölu. bara3ja vikna sótthví og svo hjem í búrið mitt.

Posted: 08 Sep 2008, 23:48
by Fiskurinn
http://www.polypterus.info/p_retropinnis.htm þetta er málið.
Þetta er kvikindið,ekki nema ég sé kominn með gláku!!
Annars er aldrei 100% að maður fái akkurat "the one and only"fiskinn þegar maður er að sérpanta polypterus. það er svo mikið brengl með þessa ætthvísl einhverja hluta vegna í sambandi við unga fiska/ný veidda, þeir líkjast hver öðrum í vissri stærð. Svo maður tali nú ekki um þennan palmas rugling, þá aðallega útaf undirtegundum. Það er alltaf verið að laga,bæta og þrengja og víkka hringinn. Endalaust að vera hrófla í þessum fiskum. það er alltaf að finnast ný og ný týpa..Þess vegna er svo gaman að þessum fiskum (dýrt að vísu...!!!) stöðugt að finnast ný kvikindi.

Posted: 08 Sep 2008, 23:50
by Andri Pogo
uss :góður:

Annars er ég núna með

2x Polypterus Palmas palmas 23 & 26cm
3x Polypterus Palmas polli ~25cm
2x Polypterus ornatipinnis ~23 & 30cm

hef líka átt senegalus og ropefish en lét þessa duga í bili því ég bætti við öðrum fiskum í staðinn.

Posted: 08 Sep 2008, 23:56
by Elma
eru ornatpinnis fljótir að stækka?

Posted: 09 Sep 2008, 00:00
by Fiskurinn
Annars er Hoplarchus Psittacus (true parrot) bara eitt það mesta augnayndi sem ég hef haft í búri á mínum fiska ferli..
En eins og sagt er "ALLT SPORT KOSTAR SITT"
Búrið sem fiskarnir eru í, er að minnka hratt :twisted: þetta er ALLS ekki bestu lítrarnir fyrir þessa fiska, en það er á jólagjafa planinu frá jóla að gefa mér tonn af vatni. þá kann ég bara ekki við að fækka búrunum, heldur bara auka á rakann..hahahah!

Posted: 09 Sep 2008, 00:00
by Andri Pogo
minn minni, var um 7cm þegar ég fékk hann fyrir rúmlega ári, þannig að það er svona 1-1.5cm á mánuði að meðaltali.

Posted: 09 Sep 2008, 00:01
by Fiskurinn
Já,ornatipinnis stækkar hratt myndi ég segja.

Posted: 09 Sep 2008, 09:25
by Elma
finnst ornatpinnis svo flottir :shock:

Posted: 09 Sep 2008, 20:22
by Fiskurinn
Hvað hafið þið svo verið að gefa polypt. ykkar?
Ég gef allan fjandan sjálfur s.s þurkað og frosið,krill,blóðorma,floating sticks,rækjur,krabbakjöt,ýsu og einnig margt annað. Og auðvitað grænfóður líka, þeir éta bókstaflega hvað sem er.

Posted: 10 Sep 2008, 23:43
by Andri Pogo
ég vil nota tækifærið og benda á skemmtilega grein sem ég skrifaði um umrædda tegund:
Monsterhornið - Polypterus

Annars gengur ekkert að segja frá svona flottu safni án þess að sýna myndir!
Ég kíkti því við hjá Fiskurinn og tók nokkrar myndir, það voru þó ekki jafnmargar góðar og ég hélt en hér er smá:

Polypterus Endlicheri congicus:
Image

Polypterus Ornatipinnis:
Image

Image

Ornatipinnis, Senegalus, Parachanna Obscura ásamt Polypterus Retropinnis fyrir miðju, ég vil þó koma með það gisk að þetta sé frekar Polypterus Mokelembembe, ekki nógu góð mynd hjá mér samt:
Image

Og ein af óskaraparinu fyrrnefnda:
Image

Ég náði því miður ekki nógu góðum myndum af Lapradei.

Posted: 11 Sep 2008, 07:37
by Jakob
Mér sýnist þetta vera Mokelebembe ekki Retropinnis. Flottur Congicus :oops: Ég dauðöfunda þig :oops:

Posted: 11 Sep 2008, 10:59
by Fiskurinn
Síkliðan wrote:Mér sýnist þetta vera Mokelebembe ekki Retropinnis. Flottur Congicus :oops: Ég dauðöfunda þig :oops:

Þessi fiska ætthvísl er ekki kominn á hreint..það er ekki hollt að öfunda!! :twisted:
p.s þessi fiskur er ekki líkur þessum http://www.polypterus.info/p_mokelembembe.htm %&$&$$ hafi það!

Posted: 11 Sep 2008, 23:21
by Andri Pogo
þetta er lika frekar léleg mynd á síðunni þarna..

en mér finnst hann nokkuð líkur þessum Mokelembembe:
Image

Posted: 12 Sep 2008, 00:07
by Fiskurinn
Sjæse.. Ef þetta ruglar mann ekki...þá veit ég ekki hvað gerir það, ég er kominn í marga hringi.

Posted: 28 Sep 2008, 10:45
by Fiskurinn
Ég kikti við í þessa fínu dýrabúð Fiskó og bætti við fjórum polypterus palmas ....? þeir eru helv. sprækir. Lengi getur maður við sig blómum bætt :twisted:

Posted: 28 Sep 2008, 14:45
by Jakob
Fiskó eru með palmas Polli, hvað áttu þá marga Poly núna :-)

Posted: 28 Sep 2008, 16:58
by Fiskurinn
Palmas polli... hver veit.
Allavega, ég með 19stk af ýmsum Polypt.
Polypterus palmas buettikoferi (2stk) eru á leiðinni á mitt heimili í næstu viku.
sem og fleiri delhezi (3stk)
Ég get svarið það..maður er nú orðinn hálf klikk í þessari polypterus söfnun :roll: