Ropefish-arnir mínir

Fyrir þá sem þora. Ránfiskar, botn- og kattfiskar í stórum númerum

Moderators: Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Karen
Posts: 880
Joined: 15 Aug 2007, 21:48

Ropefish-arnir mínir

Post by Karen »

Ég keypti mér tvo Ropefish á Skrautfiskafundinum í Fiskó, og ég er að deyja úr ánægju, nema það að þeir fóru ofan í dæluna og neituðu hreinlega að koma upp úr :?
Miðað við frábæran þráð sem Andri Pogo gerði, þá sýnist mér ég vera með karl og kerlu.
Karlinn er í kringum 24cm og kerlan ca 20cm.

Og hér koma tvennar myndir af þeim :wink:
[Þær eru svolítið úr fókus]

Image

Image
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

til hamingju með skemmtilega fiska :)
-Andri
695-4495

Image
Karen
Posts: 880
Joined: 15 Aug 2007, 21:48

Post by Karen »

Takk Andri :wink:
Þeir eru ferlega skemmtilegir, gaman að fylgjast með þeim liðast um búrið :D
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Til hamingju með þessa og endilega leyfðu okkur að fylgjast með :-)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Mozart,Felix og Rocky
Posts: 409
Joined: 03 Jan 2008, 17:33
Location: 116 Kjalarnes
Contact:

Post by Mozart,Felix og Rocky »

til hamingju með þá :D endilega koma með fleiri myndir :D
Kv.Dízaa og Co. ;)
Karen
Posts: 880
Joined: 15 Aug 2007, 21:48

Post by Karen »

Ég þakka :)
Þegar ég kom heim úr vinnunni var kellan aftur farin ofan í dæluna, og þá ákvað ég að skella þeim í 85L búrið.
Þá byrjuðu leiðindi í kallinum þegar ég reyndi að ná honum í háfinn, svo hann ákvað að stökkva upp úr búrinu því hann var sko ekki á leiðinni í háfinn! Það endaði svo með eltingarleik á gólfinu og greyið allur út í ryki :lol: . En þá var komið að því að ná í "Dælu-dvellerinn" (aka kelluna) og það endaði með sömu ósköpum en hún fór á bak við kommóðuna en ég náði henni með háf og skellti henni í búrið með kallinum.
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Ég er búin að eiga þessa tegund og þeir áttu það til að hverfa ofani hreinsidæluna oft og mörgu sinnum.
Þeir eru frekar felugjarnir en samt gaman að eiga þá og vekja athygli margra.
Frekar svona ormslegir :)
Kv
Ólafur
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Karen
Posts: 880
Joined: 15 Aug 2007, 21:48

Post by Karen »

Haha, í sambandi við að vekja athygli þá var vinkona mín svo hrædd við þá að hún öskraði (bókstaflega) :lol:
Og mömmu var ekki vel við þá í byrjun en hún fylgist reglulega með þeim :-)
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

:D já það er eins gott að fylgjast með þeim þvi þeir eiga það til að stökkva uppúr sé búrið ekki vel lokað :)
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Post Reply