Ormar

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
dellukall
Posts: 29
Joined: 04 Dec 2006, 15:16

Ormar

Post by dellukall »

Hæ.
Það er búið að vera einhver sýking í fiskunum hjá mér,
Svo núna áðan rak ég augun í lítinn orm sem var ofan í sandinum
og þegar ég fór að athuga betur þá sá ég að sandurinn er fullur af þessum ófögnuði. þetta eru ca 1 cm langir óþokka en mjög mjóir.
Veit einhver ráð við að losna við þetta og hvort þetta séu einhver sníkjudýr í fiskunum.
Hjálp væri mjög vel þegin !!!!!!!!!!!!
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Eru þeir hvítir ? Þetta er mjög algengt en þrífst yfirleitt ekki í búri með fiskum þar sem fiskarnir éta þá yfirleitt með hraði.
dellukall
Posts: 29
Joined: 04 Dec 2006, 15:16

Post by dellukall »

Jamm þeir eru hvítir eða glærir lítið breiðari en mannshár.
og alveg upp í ca 3 cm langir.
Aaalveg hellingur við glerið í sandinum
Er ekki þetta málið sem er að hrella Borley fiskana ??
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég held ekki, þessir ormar sem vanalega eru að flækjast í sandinum eru að ég held vitameinlausir þó skelfilegir séu að sjá, yfirleitt éta fiskarnir þetta niður á nokkrum dögum og botnfiskar eins og bótíur og Synodontis eru sérstaklega duglegir við á skófla þessu í sig. Ég veit ekki hvernig þetta kemur í búrið en ég hef oft séð þetta í búrum sem eru nýlega uppsett og sérstaklega þar sem skeljasandur er notaður.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Getur myndast þegar það er verið að gefa of mikið að borða minnir mig er samt ekki viss
Post Reply