Partar í Co2 kerfi

Búrasmíði, bakgrunnar, lok osf

Moderators: Vargur, keli, Squinchy

svavarm
Posts: 50
Joined: 07 Jan 2009, 23:27

Partar í Co2 kerfi

Post by svavarm »

Ég er búinn að vera leita að ýmsum pörtum í heimatilbúið Co2 kerfi en virðist ekki geta fundið það rétta þannig að ég ákvað að spyrja hér.

Hvar fæ ég á góðu verði slöngur? einhvern on/off rofa?

Ég hafði hugsað mér að setja slönguna í inn í dæluna og brjóta þannig co2 bólurnar. Er eitthvað út á þá leið að setja? Er betra að nota "crack-pípuna"? (og hvar er þá hægt að fá slíkt?)
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

þú ættir að fá co2 slöngur í "betri" fiskaverslunum, ekki láta selja þér venjulegar loftslöngur, þær þola ekki kolsýruna. on/off rofi er ekki sniðugur þú þarft að hleypa kolsýrunni út ef þú vilt ekki fá hana í búrið. ég pantaði svona "krakkpípu" án netinu, keypti reyndar slönguna þar líka. að tengja í dæluna er bara mjög sniðugt, það ætti að brjóta niður loftbólurnar og dreyfa þeim.

http://www.aqmagic.com/store/

ég hef pantað frá þessum, líka lifandi plöntur. ekkert vesen
Last edited by gudrungd on 29 Jan 2009, 20:06, edited 1 time in total.
svavarm
Posts: 50
Joined: 07 Jan 2009, 23:27

Post by svavarm »

Eru loftslöngurnar ekki miklu dýrari í fiskabúðunum?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Landvélar eiga þessar slöngur líklega á mun betra verði en búðirnar.
svavarm
Posts: 50
Joined: 07 Jan 2009, 23:27

Post by svavarm »

Ok, prufa Landvélar. Ef ekki gengur að brjóta loftbólurnar niður í gegnum dæluna eruði með einhverjar aðrar tillögur í þeim efnum sem fást á íslandi?
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

gudrungd wrote:on/off rofi er ekki sniðugur þú þarft að hleypa kolsýrunni út ef þú vilt ekki fá hana í búrið.
Hvernig færðu það út ?, ef hann er að nota Co2 kút þá er on/off segul loki það besta sem gefst

Einnig er hægt að nota hann við Bruggið ef flaskan þolir þrýstinginn yfir nóttina

Hef prufað að hafa 1L flösku lokaða í 2 daga og hún þoldi það þannig að 12 tímar ætti ekki að vera vandamál

Getur notað powerhead til að tæta loft bólurnar, setur slönguna bara í inntakið
Kv. Jökull
Dyralif.is
svavarm
Posts: 50
Joined: 07 Jan 2009, 23:27

Post by svavarm »

Já, er að plana bruggið til að byrja með. Hvar fengi ég svona rofa?
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

svona rofar eru frekar dýrir og óþarfir finnst mér í DIY kerfi þar sem þau framleiða það litla kolsýru að það ætti ekki að valda neinum vandamálum að hafa þau í gangi á nóttunni.

http://www.aquaristic.net/shop.php/sid/ ... 0Standart/
svavarm
Posts: 50
Joined: 07 Jan 2009, 23:27

Post by svavarm »

Endaði með að kaupa 2M af slöngu í Landvélum á 250kr og búa til DIY kerfi úr 2L kókflösku og með preform yfirfalli (preform er kókflaska áður en hún er blásin út). Þannig að ég slapp ágætlega frá þessu til að byrja með.

Ég setti í þetta á laugardaginn en mér finnst eins það sé ekki að endast nema í 2 daga.. virðist vera eitthvað lítill þrýstingur á þessu núna og ég sé ekki vera að koma loftbólur. Hinsvegar ef ég þrýsti aðeins á flöskuna þá koma loftbólur út.
Er ég að brugga eitthvað vitlaust? Bruggið mitt er 1 tsk þurrger, 100gr sykur, 1tsk matarsódi og 1/2L vatn við stofuhita.
svavarm
Posts: 50
Joined: 07 Jan 2009, 23:27

Post by svavarm »

Fan einhverstaðar hérna að 1L vatn við stofuhita, 1tsk ger og 1tsk matarsódi væri málið þannig að ég ákvað að prufa það
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Getur verið að stofuhitinn sé of lágur hjá þér ?
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

ég hef notað margreynda uppskrift héðan af spjallinu, hugsa að það sé 1 1/2 tsk. ger, matskeið af matarsóda, 1 1/2 dl. sykur og matskeið af maltextrakt, (séð að sumir nota sýróp í staðinn) og volgt vatn. það er meira eins og handarheitt en stofuheitt. dugir í ca viku og svo færi ég það í 12 lítra búrið.
svavarm
Posts: 50
Joined: 07 Jan 2009, 23:27

Post by svavarm »

Já, hugsanlega er stofuhitinn of lágur, hann er nefnilega ekkert ´serlega hár á morgnanna. Það sem sagt skiptir einhverju máli?

Ég skipti um blöndu áðan og hún er búin að vera á frussandi siglingu í allan dag en það gerðist svipað með hina, hún hætti einmitt eftir nóttina.
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

ég hef aldrei prófað að gera þetta án maltextraksins.... veit ekki hvort það brennur fljótar upp. hvernig ertu að brjóta niður loftbólurnar? önnur spurning.... ertu með vatnslás... loftbóluteljara á græjunum?
svavarm
Posts: 50
Joined: 07 Jan 2009, 23:27

Post by svavarm »

Er með eheim dælu í þessu búri sem er svipuð og þessi: http://www.eheim.de/eheim/inhalte/index ... 27471_ehen
Mín er reyndar aðeins öflugir og svo er loft inntak ofan á útganginum. Ég tengdi í loftbóluinntakið og það tætir co2 bólurnar niður í frekar litlar bólur.

Skiptir miklu máli hversu neðarlega í búrinu þetta kemur inn?
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

dælan ætti að spýta bólunum vel um búrið en hvað er þetta stórt búr? ég bætti við spurningunni um vatnslásinn.. ertu með svoleiðis? spurning um að geta fylgst almennilega með hvað er að fara mikið af kolsýrunni í búrið.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég nota í bruggið teskeið af geri og matarsóda, 100 gr sykur í 0.75 lítra.
Það dugir í 2 vikur hjá mér.

Ef hitinn er of lágur þá bruggast hægt og gerið drepst jafnvel.
svavarm
Posts: 50
Joined: 07 Jan 2009, 23:27

Post by svavarm »

Já ég skipti yfir í þína uppskrift í dag vartur, þ.e. 1 stk þurrger (danskt þurrger keypt í krónunni), 1tsk matarsóda, 100gr sykur og svo aðeins minna en 1L af vatni. Ég kíkti á þetta fyrir 10 mín og þá var hætt að koma loftbólur út þannig að það er spurning hvort að lágt hitastig sé málið þar sem ég get ekki fundið neitt annað til að skella skuldinni á :shock: :?:

Búrið er 60L, er ekki með vatnslás.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Áttu ekki hitamælir ?
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ger þarf allavega ca. líkamshita til að komast í gang. of heitt og þá drepst gerið og of kalt þá fer það líklega ekki almennilega í gang.

Minnir að það hafi verið annaðhvort Sven eða Hrafnkell hérna á spjallinu sem voru að tala um að maltextraktið lengi líftímann á blöndunni, kannski málið að prófa það.

Svo er það annað mál að þetta er alltaf öflugast fyrst. Spurning hvort þetta sé bara eðlilegt? Eða er þetta 100% stopp eftir 2 daga?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Hrafnkell kom með maltextaktið. Það er í raun næring fyrir gerið og ætti að auka framleiðsluna.
Svo er málið að ger er mismunandi, eftir því sem blandan eldist, þá hækkar áfengismagnið í blöndunni, við eitthvað visst áfengismagn, þá drepst venjulegt brauðger og blandan er þá dauð. Þetta er hægt að lengja með því að nota bruggger, lengstan líftíma gefur ger sem er ætlað til bruggunar á áfengi með hátt alkóhólmagn. Mundi prófa að kaupa ger hjá þeim í ámunni og sjá hvort það gefi ekki betri raun.
svavarm
Posts: 50
Joined: 07 Jan 2009, 23:27

Post by svavarm »

Já, þarf kannski að skoða þetta vínger. Ég kíkti á þetta áðan og þá var blandan dauð þannig að þetta er ekki að ganga nógu vel. Ég gruna sterklega hitastigið, spurning um að pakka þessu í ullarsokk og sjá hvað gerist :)
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

ég nota venjulegt brauðger, reyndar er hitastigið inni hjá mér alveg 24°. spurning hvort að þetta er eitthvað extra lélegt ger sem þú ert með.
svavarm
Posts: 50
Joined: 07 Jan 2009, 23:27

Post by svavarm »

já gæti verið, hvað heitir gerið sem þú ert með?
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

þetta er það sem ég hef verið að nota, fyrst í litlu pökkunum og síðan keypti ég þann stærri. þetta fæst hvorutveggja í flestum stærri verslunum. fyrst setti ég heilann stórann pakka (afsakið leiðrétt eftir á) HEILT BRÉF og það frussaðist upp í búrið, ég var sem betur fer að horfa á svo að ég gat afstýrt stórslysi. :oops:

Image
Last edited by gudrungd on 04 Feb 2009, 19:49, edited 1 time in total.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Heilan stóran pakka??? :shock:
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
svavarm
Posts: 50
Joined: 07 Jan 2009, 23:27

Post by svavarm »

hehe, það hlítur að hafa frussast all duglega eftir heilann pakka :)

Annars er þetta sama ger og ég er að nota (þ.e. þetta danska). Núna er ég búinn að prufa 3 blöndur, fyrstu tvær dóu eiginlega strax þannig að ég ákvað að prufa að hækka aðeins hitann á stofunni (enda sæmilega köld). Setti svo í aðra blöndu þar sem ég setti 1.5 tsk ger, 1.5 tsk matarsóda og 1,25L af vatni sem var frekar heitt (kannski 30 gráður) og þetta virðist vera eitthvað betra núna, allavega var þetta ennþá í gangi í morgun. Vei :)

Sjáum til hvað gerist. Ef þetta virkar ekki þá nenni ég þessu varla og fer alvarlega að spá í að fá mér kút :evil:
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég prófaði þetta gersull fyrir nokkrum árum og nennti því ómögulega núna. Splæsti bara í co2 kerfi :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

keli wrote:Heilan stóran pakka??? :shock:
nei keli.... sorry heilt bréf! (dugir annars í 2 SKIPTI) ég er ekki alveg eins klikkuð eins og skrifa! það kemur að því að ég kaupi kút, skoða verðið á því reglulega og fæ sjokk í hvert einasta skipti
svavarm
Posts: 50
Joined: 07 Jan 2009, 23:27

Post by svavarm »

Ég hringdi niðrí ísaga í gær og það er hægt að leigja kút (3kg) fyrir 11 þús árið, eða styttri tíma þá fyrir einhvern 40-50 kr daginn. Þannig að þú gætir keypt allt hitt draslið sem þarf og beðið aðeins með kútinn, þ.e. leigir þangað til þú getur splæst í einn :)
Post Reply