Monster-gotfiskur

Guppy, endler, platy, sverðdragarar og aðrir gotfiskar

Moderators: Elma, Vargur

Post Reply
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Monster-gotfiskur

Post by Vargur »

Rakst á umfjöllun um þennan ansi huggulega monster-gotfisk.

Image
Belonesox belizanus (pike killifish)

http://www.britishlivebearerassociation ... izanus.htm
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Sá þetta einmitt á MFK í gær... Og mig langar í!!
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

hann hefur verið á lista og einnig
Nomorhamphus liemi og Dermogenys pusillus
sem eru öðruvísi gotfiskar líka þótt tennurnar séu ekki í sama gæðaflokki og Belonesox belizanus
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Eftir hverju ertu að bíða? panta!! :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Bruni
Posts: 199
Joined: 30 Dec 2006, 20:57
Location: Reykjavík

Gedu tannkarpi

Post by Bruni »

Sælir drengir. Þessir eru keppnis. Gráðugri en andsk.... Éta held ég aðeins lifandi fæðu. Hrygnurnar geta orðið 20 cm. en hængarnir rétt um 10 cm. Þeir enda þess vegna oft í maga hrygnanna. Engin rómantík þar.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

skv því sem ég hef verið að lesa verða þessir fiskar max 12cm eða svo og kerlingarnar ekki alveg 2x stærri en karlarnir...
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég las grein í Practical fishkeeping og þar er sagt að karlinn verði 10 cm og kerlan 18 cm.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

fishbase segir 5.5" max... dno, það fer bara eftir hvaða síðu maður les :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Bruni
Posts: 199
Joined: 30 Dec 2006, 20:57
Location: Reykjavík

Belonesox

Post by Bruni »

Jæja, Mergus Atlas segir hrygnan 20 cm, hængur 12 cm. Nokkrir cm til eða frá, hverju skiptir það. Allt að 100 seyði frá einni hrygnu, líklega þá fullvaxinni, sem eru mjög gjarnan étin af móðurinni.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Og ekki nóg með að seiðin séu étin, oft endar faðirinn líka milli kjálkana á kerlu. :panna: Ljóta ofríkið maður.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég verð nú bara að segja að þetta sé góð lausn !
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Bruni
Posts: 199
Joined: 30 Dec 2006, 20:57
Location: Reykjavík

Belonesox

Post by Bruni »

Hvar er ungmennafélagsandinn ? Hvað með Dýrin í Hálsaskógi ?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Heppni að þetta er gamlingjaspjall, það þýðir ekki mikið að vitna í dýrin í Hálsaskógi annars staðar. :D
Bruni
Posts: 199
Joined: 30 Dec 2006, 20:57
Location: Reykjavík

Belonesox

Post by Bruni »

Þetta er alveg hárrétt, aldur og kennitala þarf samt ekkert endilega að fara saman ? Sé það núna að ég hefði frekar átt að vitna í Ávaxtakörfuna.
Eyjó
Posts: 298
Joined: 26 Mar 2007, 16:12
Location: Reykjavik

Post by Eyjó »

Ætliði að kaupa þessa inn til ykkar í fiskabúr.is
ef svo er þá langar mig virkilega í svona.

Hvað þarf stórt búr undir kannski 4 svona? 60l?
Hræðileg þessi söfnunarárátta sem maður er með, langar alltaf í meira og meira áður en ég veit af verð ég kominn með 17 búr.
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

sjáðu bara Hlyn (Vargur).. hann byrjaði bara skleisislega með lítið búr.. og BÚMM!.. 17 búr bara allt í einu.... :lol: :dansa:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Belonesox belizanus eru ekki á lista ef ég man rétt en við fylgjumst með því hvort þeir birtist hjá heildsalanum.

Já maður, í sakleysi byrjaði ég með 20 l búr 5 ára gamall, svo áður en maður veit af eru búrin orðin 17.
Post Reply