Ljós

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Ljós

Post by Anna »

Ég er með Juwel ljós sem er hætt að lýsa :?

Það byrjaði á því að blikka annarri perunni, svo fór að slökkna alveg á báðum perunum og kvikna svo aftur eftir smá stund. Núna er það alveg dautt.

Ég ætlaði að byrja á því að skipta um startara - en ég finn ekkert svoleiðis!!!
Eru bara báðar perurnar farnar samtímis??
Er perustæðið (ballestin?) kannski biluð?
Hvernig sé ég hvort perurnar eru T5 eða T8?
Er hægt að kaupa bara perur í Húsasmiðjunni? Þetta eru 2 30W perur.

Þoli ekki myrkvað fiskabúr :( :cry:
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Re: Ljós

Post by Anna »

Anna wrote: Hvernig sé ég hvort perurnar eru T5 eða T8?
Búin að finna útúr þessu atriði. Ég er með T8
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Þú ættir að fá startara í næstu ljósabúð eða BYKO.

Ég er með ljós frá Juwel og það eru einhver leiðindi í slökkvaranum sjálfum hjá mér, sambandsleysi. Ég þarf að opna þetta og tengja betur.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Post by Anna »

Ásta wrote:Þú ættir að fá startara í næstu ljósabúð eða BYKO.

Ég er með ljós frá Juwel og það eru einhver leiðindi í slökkvaranum sjálfum hjá mér, sambandsleysi. Ég þarf að opna þetta og tengja betur.
Það er málið, ég sé ekki að það sé startari í græjunni! Þarf að taka unitið sjálft eitthvað í sundur til að skipta um hann?
User avatar
Höddi
Posts: 176
Joined: 30 Jul 2007, 14:46
Location: Kópavogur

Post by Höddi »

Ef önnur peran er ónýt þá slökknar á báðum, ég lenti í því hjá mér að ljósið dó og ég hélt að það væri ónýtt, en þá var það bara ein pera.
ZX-6RR
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég hef aldrei lent í því að það slökkni á báðum perunum í Juwel ljósunum ef önnur fer.
User avatar
Höddi
Posts: 176
Joined: 30 Jul 2007, 14:46
Location: Kópavogur

Post by Höddi »

Það er allavega þannig í 110L Juwel búrinu hjá mér. Það er miði inní lokinu sem segir til um það.

Ég lenti í því í haust að ljósið hætti að virka, þá rak ég augun í þennan miða, svo ég fór þá og verslaði nýjar perur og þá var allt í lagi.

Svo prufaði ég gömlu perurnar og þá var bara önnur ónýt.
ZX-6RR
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það er þá líklega sitthvort systemið á Rio og Rekord búrunum.
User avatar
Junior
Posts: 128
Joined: 04 Feb 2009, 17:07

Post by Junior »

hvar er hægt að fá jewel ljósin?
-Andri
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Junior wrote:hvar er hægt að fá jewel ljósin?
Trítlu, Fiskó og hjá mér.
User avatar
Hrafnkell
Posts: 321
Joined: 16 Mar 2007, 21:03
Location: Kópavogur

Re: Ljós

Post by Hrafnkell »

Anna wrote:Ég er með Juwel ljós sem er hætt að lýsa :?

Ég ætlaði að byrja á því að skipta um startara - en ég finn ekkert svoleiðis!!!
Það eru ekki startarar í Juwel ljósastæðunum. Ballestin er elektrónísk, eða á íslensku: Straumfestan er rafeindastýrð.
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Post by Anna »

Vargur wrote:
Junior wrote:hvar er hægt að fá jewel ljósin?
Trítlu, Fiskó og hjá mér.
Jæja, það er búið að "kryfja" ljósið og það er ónýtt :moping:

Það lumar enginn á Rio ljósi fyrir 2 30W perur??

Er það annars bara Trítla og Fiskó - hver er með umboðið?
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

Vargur wrote:
Junior wrote:hvar er hægt að fá jewel ljósin?
Trítlu, Fiskó og hjá mér.
fínt að klára línurnar í póstunum!
Post Reply