Nýir Piranha

Fyrir þá sem þora. Ránfiskar, botn- og kattfiskar í stórum númerum

Moderators: Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
AndriK
Posts: 7
Joined: 10 Feb 2009, 19:58

Nýir Piranha

Post by AndriK »

Er rétt að fara að fá piranha fiska í hendurnar, og langar að vita hvort það sé í lagi að hafa 3 ~4cm síkliður í búrinu á meðan piranha fiskarnir eru svona ungir og að vaxa. Líka það að ég held að þessar síkliður væru ekkert rosalega góður matur fyrir fiskana.

Vill einfaldlega fá að vita hvort þetta séu óþarfa áhyggjur og hvort þær myndu bara tínast ein og ein út án nokkurra galla.

Losa mig fyrst við síkliðurnar?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ef piranha eru litlir, þá er hætt við að síkliðurnar drepi þá. Ef stórir, þá drepa þeir síkliðurnar.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
AndriK
Posts: 7
Joined: 10 Feb 2009, 19:58

Post by AndriK »

einmitt eitthvað í þeim dúr sem ég var hræddur um, vildi bara fá annað álit.
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Heldurðu að það séu einhverjar aðrar Síklíður sem eru betri matur fyrir Piranana þína???. Hvaða síklíður eru þetta sem eru svona vondar (á bragðið??) :lol:
Ace Ventura Islandicus
User avatar
stebbi
Posts: 462
Joined: 30 Aug 2007, 19:05
Location: Breiðholt

Post by stebbi »

pírananarnir eru nú skæðastir þegar þeir eru littlir uppá að ráðast á aðra fiska.
Hinsvegar eru þeir hálfgerðar gungur ef þeim er svarað til baka
Don´t drink water
fish f*** in it
http://madkur.bloggar.is/
AndriK
Posts: 7
Joined: 10 Feb 2009, 19:58

Post by AndriK »

animal wrote:Heldurðu að það séu einhverjar aðrar Síklíður sem eru betri matur fyrir Piranana þína???. Hvaða síklíður eru þetta sem eru svona vondar (á bragðið??) :lol:
Var nú meira að pæla uppá hollustu fyrir piranha fiskana ;) Annars eru þetta regnboga síkliður.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

hvað heldur þú að þeir éti í náttúrunni ?
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
AndriK
Posts: 7
Joined: 10 Feb 2009, 19:58

Post by AndriK »

Gudmundur wrote:hvað heldur þú að þeir éti í náttúrunni ?
Það sem ég held er það að það sé ekki mælt með að gefa þeim of mikið af lifandi fóðri, og af hverju þá að byrja á 3 lifandi fiskum?

Vill líka alls ekki að síkliðurnar fari að narta eitthvað í hina fiskana ef það er minnsti möguleiki á því.

Fyrir utan það væri ég alveg til í að sjá það gerast ;)

Er einfaldlega að leita annahvort að

"Það ætti ekki að vera neitt mál, þeir myndu bara éta þessar síkliður og hafa líklega engan skaða af"

Eða

"Væri líklega ekki svo sniðugt, myndi allavega sleppa því að setja þá svona littla með þessum síkliðunum"

Vill helst halda þeim í búrinu sjálfur, en sleppi því ef það er eitthvað vitlaust. Eina svarið sem hefur svarað þessu almennilega var það að ef piranha væru littlir þá gæti gerst að síkliðurnar myndu vera vondar við piranha fiskana mína.
Post Reply