Tanganyika búr Elmu

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Tanganyika búr Elmu

Post by Elma »

Ég var að setja upp 128L búr með Tanganyika fiskum.
Ég setti í það smá slettu af ljósum sandi og bjó til hella úr steinum og blómapottum. Það eru tvær tegundir af fiskum í búrinu, 10x Neolamprologus brichardi og 4x julidochromis marlieri. Fiskarnir eru allir frekar smáir. Það er yndisslegt að horfa á þá. Þeir eru strax búnir að finna sér sinn helli.
Hérna koma myndir.

Einn af stærri brikkunum
Image

Búrið
Image

Þetta búr verður bara notað tímabundið undir fiskana, þar sem ég fæ annað stærra undir þá eftir mánuð 8)

Ég skipti búrinu í tvennt, brikkarnir eiga ljósari helminginn og marlieri eiga dekkri helminginn.
Last edited by Elma on 16 Nov 2009, 17:55, edited 2 times in total.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Komstu nokkuð við í Trítlu? :P
Stórglæsilegt búr og vel uppsett.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

ég veit nú ekki hvort það sé stórglæsilegt, nánast berbotna og hitarinn bara einhvern veginn :) En takk.

er búin að breyta aðeins búrinu..Brikkarnir vildu endilega flytja yfir í steinahrúguna hjá Marileri, þannig að ég tók blómapottana og bætti við fleiri steinum og bjó til fleiri hella. Nú eru allir sáttir og allir vinir. Ótrúlega fyndið hvað ---------- svona lítill brikki getur verið með mikið attitude. Litlu brikkarnir eru stundum að sýna Marileri hverjir ráða.

Bætti við einum fisk í búrið.. það er stórfallegur pseudotropheus elongatus (kk) bara lítill, kannski 5cm.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Það fokkar enginn í Brichardi.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

Flott :) við hérna erum að pæla í að setja upp búr með bricardi. það er einhvað sjarmerandi og skemtilegt við þá :) verður gaman að fygljast með þessu :)
Ekkert - retired
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

já þeir eru mjög sjarmerandi og ekki skemmir útlitið
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Er búin að breyta búrinu, lítur bara ágætlega út. Var að taka nokkrar myndir. Það var frekar erfitt að ná myndum af fiskunum, þeir eru alltaf á hreyfingu og styggir, þessar myndir verða að duga :)

Image
Einn af stærri Brikkunum

Image
hellar og nokkrir fiskar

Image
Lítill marileri

Image
Heildarmynd
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Jaguarinn
Posts: 1141
Joined: 20 Oct 2007, 16:07

Post by Jaguarinn »

meiri sand :)
:)
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

ég myndi setja miklu meiri sand, ef ég ætti þetta búr :P 8)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Lindared wrote:ég myndi setja miklu meiri sand, ef ég ætti þetta búr :P 8)
Afríkubúr Elmu <-- ??
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Ég fékk að nota eitt af búrunum hans Hlyns sem eru í geymslunni, undir fiskana.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

hvar fékkstu þessa steina
.....................................ég er búinn að vera að leita
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
User avatar
sirarni
Posts: 624
Joined: 18 Jan 2009, 17:46
Location: Kópavogur

Post by sirarni »

Ég þori að gíska á að steinarnir til vinstri koma frá geldinganesi bara gíska.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

bara héðan og þaðan :)

steinana t.v fékk ég á geldinganesi, miðju steininn tók ég við dýraríkið í garðabæ og steinarnir t.h fékk ég hjá kærastanum, þeir koma örugglega úr einhverri fjöru.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Guðjón B »

þetta er geggjuð uppstilling á steinunum :shock: :)
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Takk :) fiskarnir eru allavega ánægðir
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

jæja ný mynd, soldið dökk en dugar :)

Image
(það eru ekki svona fáir fiskar í búrinu, fiskarnir hrukku allir í kút þegar ég ruddist inn með myndavélina og földu sig undir steinunum)

fiskarnir eru búnir að vera duglegir að dreyfa sandinum út um allt búr, bjó til stærri steinahrúgu fyrir þá og hafi hraunsteininn sér, þannig að núna er meira botnpláss. Fækkaði aðeins í brikkunum, þeir voru svo svakalega frekir við marileri-inn að þeir hengu eiginlega bara út í horni og einn var drepinn... svakaleg harka í þessum fiskum :shock: en núna ættu allir að vera sáttir. Þeir þora allavega að láta sjá sig, eins og sést á myndinni.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

smá fréttir.. það fór peran fyrir ofan búrið og það er búið að vera ljóslaust í búrinu í c.a 2 vikur en það eru ljós annars staðar í kompunni þannig að það er samt ágætis birta í búrinu. Var að gefa fiskunum í gærkveldi og sá þá einhverja hreyfingu.. Það eru komin seiði!! Alveg hellingur af brikka seiðum :D
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

jæja, brikkarnir hafa núna hryngt hjá mér 3x. Finnst svolítið skemmtilegt að það eru þrír fullorðnir fiskar sem hjálpast að við að passa seiðin.

Image
þarna sjást seiðin

Image
og svona lítur búrið út núna. Brichardi eru ekki skemmtilegar fyrirsætur :? fela sig ef einhver nálgast búrið.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Hafa einhver seiði komist upp?
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Það eru allavega um 60-80 seiði þarna í búrinu. Sem sagt, seiðin úr tveimur fyrstu hrygningunum komust upp (sjást fremst á myndinni) og yngstu seiðin eru allavega enn á lífi(sjást sem litlir punktar fyrir miðju, aftast)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Brichardi (kvk) með seiði

Image
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
guns
Posts: 359
Joined: 30 Nov 2006, 01:04
Contact:

Post by guns »

Góð mynd, og mjög lýsandi fyrir Brichardi :)
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Takk. Ég var nú bara voðalega hissa að ég myndi ná mynd af brikkunum (fullorðnu fiskunum) þar sem þeir flýja í felur við minnstu hreyfingu, en ekki í þetta skiptið, þessi felur sig vanalega undir steininum sem er fyrir aftan hana, en í gær synti hún (þetta er kvk) um og sýndi sig og ég varð svo stressuð að hún myndi synda í felur að ég náði eiginlega engum góðum myndum af henni :lol:

Image
þarna sést hún betur og nokkur af elstu seiðunum

Image
svona lítur búrið út, er með þrjá fullorðna brikka og seiði, karlarnir voru ekki til í að láta sjá sig, fela sig á bak við stóra steininn.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Ótrúlega góðar myndirnar orðnar hjá þér, mig vantar DSLR.... :x
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

orðnar? :lol: ég get alveg tekið ágætar myndir ef ég nenni því, en því fleiri myndir sem maður tekur og ef maður prófar sig áfram, þá kemur þetta hjá manni :-)
t.d innleggið sem ég setti inn 8.nov. þá notaði ég ekki flass, bara hátt iso og ljósið sem er fyrir ofan búrið.. sést varla hvað er á myndunum, svo myndirnar sem ég setti inn 15 og 16. nov, notaði ég flass. Rosalegur munur og auðvitað betri myndir.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Lindared wrote:orðnar? :lol: ég get alveg tekið ágætar myndir ef ég nenni því, en því fleiri myndir sem maður tekur og ef maður prófar sig áfram, þá kemur þetta hjá manni :-)
t.d innleggið sem ég setti inn 8.nov. þá notaði ég ekki flass, bara hátt iso og ljósið sem er fyrir ofan búrið.. sést varla hvað er á myndunum, svo myndirnar sem ég setti inn 15 og 16. nov, notaði ég flass. Rosalegur munur og auðvitað betri myndir.
Myndirnar hjá þér hafa alltaf verið góðar.
En ef að þú ert að meina að "orðnar" sé stafsetningalega rangt er það ekki rétt (tekið af orðinu að verða). :wink:
400L Ameríkusíkliður o.fl.
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

Myndi ekki einn Lamprologus tetracanthus passa þarna ínni.... :roll:
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

ulli wrote:Myndi ekki einn Lamprologus tetracanthus passa þarna ínni.... :roll:
neee... vil bara hafa brikkana þarna :Þ
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

hann verður horfin eftir svona viku :S
Post Reply