Page 1 of 2

Langar að starta 60l saltvatnsbúri, hvað er möst?

Posted: 06 Aug 2009, 02:36
by Salli
Er með tómt 60l búr ásamt loki m/1xT8 peru, dælu og hitari og langar að breyta því í nanóbúr m. rækjum og fleiru.

Getur einhver komið með það skref fyrir skref hvernig maður startar því og hvað maður þarf til þess? :)

Og annað, ég bý eiginlega í fjörunni, get ég sleppt því að kaupa salt og tekið bara sjó þegar vatnsskipti eiga sér stað?

Og hverju mælið þið með í það?

Posted: 06 Aug 2009, 11:08
by Squinchy
Sæll

#1 byrjar á því að finna góðan stað fyrir búrið þar sem sólinnær ekki í það
#2 Skolabúrið aðeins að innan ef það er skítugt
#3 sækir sjó þar sem engin báta umferð er og gott er ef góð vatnshreyfing er á tökustað
#4 Setur sjóinn í búrið, hitara og straumdælu (Er allt í lagi þótt að sjórinn sé óhreinn þegar búrið er sett upp þar sem auka efnin í vatninu hjálpa til með að koma búrinu í réttan farveg
#5 verslar þér sand sem er í kringum 3 - 4mm sem þú skolar og setur síðan í búrið
#6 Mælir seltuna í vatninu með flotmælir
#7 verslar nokkra steina af Live rock
#8 svo sirka 4 - 7 dögum eftir að sjórinn fór í búrið getur þú bætt við harð gerðum fiskum eins og black molly eða eitthverja dampsel

Leyfir búrinu að malla í 4 vikur með starter fiskunum áður en þú bætir við eitthverjum kóröllum

Þú getur gert vatnskipti með sjó, þarft 10 lítra fötu sem þú setur sjóinn í, straumdælu/Filter dælu til að hreinsa sjóinn aðeins og hitara til að hita upp vatnið í 25°C áður en þú gerir vatnskiptin

Aðal hluturinn sem þú þarft í byrjun er seltumælir / Hydromiter og 1-2 straumdælur

Posted: 06 Aug 2009, 11:25
by Arnarl
best að ná í sjó eftir mikið brim :-)

Posted: 06 Aug 2009, 13:23
by Salli
Takk fyrir góð ráð Squinchy, ég kem til með að pósta myndum af þessu hérna á spjallið. En er black molly ekki ferskvatnsfiskur? Og með sandinn, ertu þá að tala um livesand?

Posted: 06 Aug 2009, 14:12
by henry
Black Molly er brackish fiskur. Þolir saltvatn og ferskvatn en kann best við sig í örlitlu salti.

Info: http://www.wetwebmedia.com/fwsubwebindex/mollyfaqs.htm

Posted: 09 Aug 2009, 01:19
by Arnarl
ekki bara black molly getur verið með gull og silfur mollyar líka

Posted: 27 Nov 2009, 16:31
by rabbi1991
hvað um hvíta og appelsínugula?

Posted: 27 Nov 2009, 18:22
by Arnarl
Allar molly

Posted: 27 Nov 2009, 20:44
by M.Logi
þarf ekki skimmer?

Posted: 27 Nov 2009, 21:00
by Squinchy
Skimmer er ekki nauðsynlegur en getur verið góður aukabúnaður

Posted: 28 Nov 2009, 11:57
by EiríkurArnar
þú þarft nú eitthvað að bæta ljósabúnaðinn ef að þú ætlar að hafa kóralla.

Posted: 30 Nov 2009, 22:03
by rabbi1991
væri ekki hægt bara að hafa eitt svona ljós 6500kelvin fyrir kórala?
( aula spurning. Gæti maður bætt við ljósum einsog loftljósum í húsi við? )

Posted: 30 Nov 2009, 23:34
by Squinchy
Kelvin segir til um litahita perurnar en ekki hvað hún er öflug í W

Gætir örugglega komist upp með heimilis lýsingu fyrir mjög auðvelda kóralla/sveppi en það yrði ekki eins flott og með perum sem ætlaðar eru fiskabúrum

Posted: 30 Nov 2009, 23:45
by rabbi1991
var í lokinu 15watta t8 pera og þekki ekki fluorljós nóg til að vita hvort það þyrfti að skipta um startara eða eitthvað til að auka wattatöluna

Posted: 01 Dec 2009, 00:26
by EiríkurArnar
það eykur ekki wattatöluna, færðu þér bara tvær 24w t5 í lokið og reynir að setja mh kastara en það er ekkert must.

ég er reyndar með í mínu búri 1x15w 20.000k og sveppurinn og kóralla fröggin 3 eru ekkert sérstaklega mikið að fíla sig en lifa nú samt þarna. hafði hugsað mér að reyna að mixa 2xt5 og kastara en það er þegar að ég hef pening í það :)

Posted: 01 Dec 2009, 00:49
by rabbi1991
veit að startarinn breytir töluni ekki en meina ef ég myndi auka wöttin hvort startarinn myndi höndla það.

Posted: 01 Dec 2009, 01:33
by EiríkurArnar
hvernig ætlarðu að auka wöttin ?
teigja lokið ? :twisted:

færð aldrei stærri eða minni peru í wöttum án þess að fá lengri eða styttri peru...nema að skipta yfir í T5

Posted: 01 Dec 2009, 01:52
by rabbi1991
já ok. vissi það ekki. er því miður ekki enn orðinn sérfræðingur í perum.

Posted: 01 Dec 2009, 02:42
by EiríkurArnar
þetta sem ég sagði á reyndar bara við T8 perur, T5 eru til í mismunandi watta stærðum. :)

Posted: 01 Dec 2009, 10:37
by Squinchy
Þú getur farið í www.flurlampar.is og látið þá mixa fyrir þig 2x24W t5 (Jafnvel 4x24W þá getur þú verið með nánast hvaða kóralla sem er) stæði fyrir lítinn pening, svo er bara að búa til lítinn kassa sem stæðið er skrúfað í

Keðjur upp í loft og ljósið látið hanga yfir búrinu

Posted: 01 Dec 2009, 11:17
by Squinchy
Gerði smá verð könnun á svona pakka þar sem ég er sjálfur að fara uppfæra í 2x24W á 54L búrinu mínu

Ballast fyrir 2x24W T5 kostar 4491.kr og rakaþéttar fatningar kosta 405.kr stk, 405x4= 1620 Sem gerir þetta 6111.kr fyrir heildina

Svo er bara að kaupa perur

Posted: 01 Dec 2009, 11:34
by keli
Perur eru nota bene ódýrastar í osram umboðinu - getur amk fengið daylight perur þar en þarft hugsanlega að kaupa actinic í gæludýraverslun.

Posted: 01 Dec 2009, 14:24
by EiríkurArnar
Squinchy wrote:Gerði smá verð könnun á svona pakka þar sem ég er sjálfur að fara uppfæra í 2x24W á 54L búrinu mínu

Ballast fyrir 2x24W T5 kostar 4491.kr og rakaþéttar fatningar kosta 405.kr stk, 405x4= 1620 Sem gerir þetta 6111.kr fyrir heildina

Svo er bara að kaupa perur
Er þetta verð hjá flúrlömpum ?

Posted: 01 Dec 2009, 14:51
by malawi feðgar
hvað þarf að vatna svona nano búr oft, og þarf að vera að mæla saltmagn og vatnsgæði mörgum sinnum í viku?

Ég er að bæta við svona 2L annan hvern dag hjá mér í 54L búrinu

Ég mæli seltuna oftast svona 1x í viku en annars miða ég bara alltaf við að vatnshæðin haldist rétt fyrir ofan lokið og þá helst seltan stöðum, ert fljótur að læra inn á búrið til að halda seltunni

Posted: 01 Dec 2009, 14:54
by ibbman
EiríkurArnar wrote:
Squinchy wrote:Gerði smá verð könnun á svona pakka þar sem ég er sjálfur að fara uppfæra í 2x24W á 54L búrinu mínu

Ballast fyrir 2x24W T5 kostar 4491.kr og rakaþéttar fatningar kosta 405.kr stk, 405x4= 1620 Sem gerir þetta 6111.kr fyrir heildina

Svo er bara að kaupa perur
Er þetta verð hjá flúrlömpum ?
Án pera.

Posted: 01 Dec 2009, 17:08
by Squinchy
EiríkurArnar wrote:
Squinchy wrote:Gerði smá verð könnun á svona pakka þar sem ég er sjálfur að fara uppfæra í 2x24W á 54L búrinu mínu

Ballast fyrir 2x24W T5 kostar 4491.kr og rakaþéttar fatningar kosta 405.kr stk, 405x4= 1620 Sem gerir þetta 6111.kr fyrir heildina

Svo er bara að kaupa perur
Er þetta verð hjá flúrlömpum ?
Já svona næstum því, eitthvað var makað á krókinn á þeim 10 mín sem tók mig að keyra til þeirra og endaði þetta í 7878.kr
malawi wrote:hvað þarf að vatna svona nano búr oft, og þarf að vera að mæla saltmagn og vatnsgæði mörgum sinnum í viku?

Ég er að bæta við svona 2L annan hvern dag hjá mér í 54L búrinu

Ég mæli seltuna oftast svona 1x í viku en annars miða ég bara alltaf við að vatnshæðin haldist rétt fyrir ofan lokið og þá helst seltan stöðum, ert fljótur að læra inn á búrið til að halda seltunni
Ég er að bæta við svona 2L annan hvern dag hjá mér í 54L búrinu, svo er 125L búrið með sjálfvirkt kerfi sem bæti fersku vatni í það eftir þörf

Ég mæli seltuna oftast svona 1x í viku en annars miða ég bara alltaf við að vatnshæðin haldist rétt fyrir ofan lokið og þá helst seltan stöðum, ert fljótur að læra inn á búrið til að halda seltunni

Posted: 27 Jan 2010, 13:43
by siamesegiantcarp
þegar þið talið um að setja 2l af vatni, eruð þið þá að tappa 2lítrum af því first eða gufar þetta upp af því að þið eruð ekki með lok eða er lok?

Posted: 27 Jan 2010, 15:33
by Arnarl
Það gufar upp þrátt fyrir að það sé lok yfir og þar sem saltið gufar ekki upp þarf að bæti við ferskuvatni til að jafna út seltistigið

Posted: 27 Jan 2010, 22:33
by SadboY
Andskotinn hafi það, núna langar mig að starta litlu salti! :P

Posted: 28 Jan 2010, 09:37
by siamesegiantcarp
en hvað gerið þið þá ef þið farið í frí kanski 2 vikur?