Page 1 of 3

30l Saltvatnsbúr með 36w af LED lýsingu

Posted: 06 Aug 2009, 09:45
by keli
Ég keypti mér nokkur LED um daginn.. Og núna er ég að pæla í að smella upp litlu nano búri með kóröllum. Lýsingin ætti að vera feykinæg, líklega sambærileg 250w MH þegar þetta er í botni.

Image

Image

Búrið verður 30l sem ég á og er ekki í notkun. Á eftir að setja það upp.

Posted: 06 Aug 2009, 09:57
by henry
Tja, er nokkuð gaman í saltinu?

Posted: 06 Aug 2009, 10:13
by keli
henry wrote:Tja, er nokkuð gaman í saltinu?
Tjah ég ætla bara að testa svona í smáum stíl. Ég get fengið kóralla og svona í vinnunni þannig að ég get gert þetta án mikils kostnaðar, amk með svona lítið búr.

Posted: 06 Aug 2009, 10:36
by henry
Örugglega næs að vera með tvo trúða og kóralla ef maður nennir þessu saltveseni :D

Trúðar eru ótrúlega flottir finnst mér..

Posted: 06 Aug 2009, 10:44
by Squinchy
Ég myndi :), ættir að fá góðan vöxt undir þessum led

Posted: 06 Aug 2009, 11:01
by keli
Jáhm, þetta er massa lýsing og harðir kórallar ættu að vaxa ansi vel. Væri kúl að vera með einhverjar acroporur og/eða montiporur.

Fyrsta myndin lítur út fyrir að vera tekin í myrkri, en í raun er hún tekin í dagsbirtu...

Posted: 22 Aug 2009, 21:46
by keli
Scrappaði fyrri hönnun og reif lokið í sundur til að geta dreift ljósdíóðunum betur og fengið betri kælingu:

Image

Image

Image



Og svo er kominn live sandur og vatn í búrið:
Image

Image

Ég er bara með 600l/klst powerhead og hitara eins og er.

Posted: 22 Aug 2009, 21:54
by Sven
Lofar góðu! Virðist vera flott birta frá díóðunum, örugglega 10 sinnum bjartara live?

Posted: 22 Aug 2009, 21:55
by keli
Já, búrið er gruggugt og díóðurnar eru bara í 50% krafti eða svo :)

Þetta á að geta supportað alla kóralla, clams og hvað sem mér dettur í hug. ca. sambærilegt 250w halide í par readings. Og liturinn ekki slæmur heldur

Posted: 22 Aug 2009, 22:43
by Squinchy
Vá þetta er ekki lítið flott!, hvað er búrið stórt ?

Posted: 22 Aug 2009, 22:54
by keli
um 30 lítrar.

Posted: 22 Aug 2009, 22:56
by Sven
:shock: = 250MH yfir 30 lítrum!!!, gamann að vera kórall hjá þér :)

Posted: 22 Aug 2009, 22:58
by keli
Sven wrote::shock: = 250MH yfir 30 lítrum!!!, gamann að vera kórall hjá þér :)
Tjah nei, ekki beint. 250w gæti coverað stærra búr, en par levels í búrinu eru sambærileg og ef það væri 250w mh yfir búrinu. Ég dimma þetta niður og fikta mig áfram með þetta.

Posted: 23 Aug 2009, 00:26
by EiríkurArnar
hvar færðu þessar díóður og hvað eru þær að kosta ?

Posted: 23 Aug 2009, 00:42
by keli
netinu. Þessi lýsing kostaði líklega um um $150 +vsk

Posted: 23 Aug 2009, 00:53
by EiríkurArnar
þú ert semsagt bara að dunda þér eitthvað, ekkert að reyna að spara :)

Posted: 23 Aug 2009, 08:11
by keli
Fer eftir hvernig þú skilgreinir spara. Ég þarf ekki að skifta um perur í þessu búri næstu 10 árin og rafmagnskostnaðurinn er minni.

Posted: 23 Aug 2009, 11:02
by EiríkurArnar
kannski kostar ekki mikið ef þú hugsar það þannig :)
en fyrir stærra búr væri þetta helvíti kostnaðarsamt og tæki því ekki nema maður ætlaði að hafa það uppi næstu 10 árin.
væri gaman að gera þetta fyrir litlu búrin mín 8)

Posted: 23 Aug 2009, 13:02
by Squinchy
Mig langar nú svolítið að skipta út mínu PC actinic fyrir svona LED actinic, er svo skuggalega ljótur litur af þessum PC perum sem ég er með

Posted: 23 Aug 2009, 14:16
by keli
Ég á nokkrar "royal blue" díóður og driver auka sem ég gæti selt þér ef þú vilt ;)

Posted: 23 Aug 2009, 14:35
by Jakob
Helvíti góð byrjun hjá þér.

Posted: 23 Aug 2009, 18:59
by ulli
hvar eruð þið að versla þessar high powered dióður?

er ekki 20w led helvíti öflugt?

Posted: 23 Aug 2009, 21:05
by animal
keli wrote:Ég á nokkrar "royal blue" díóður og driver auka sem ég gæti selt þér ef þú vilt ;)
er það þetta sama og er á myndinni?

Posted: 23 Aug 2009, 21:18
by keli
Úlli:
Færð þær t.d. á ledsupply.com. Þetta eru 3w díóður, þannig að þetta eru 36w total. Það er þó ekki hægt að bera orkunotkunina saman við flúrperur og svona. 20w LED væri líklega alltof mikið á litlum fleti. 5mm díóður sem eru í panelnum þínum eru 0.06w hver og þær eru ekki nærri því nógu kraftmiklar til að ná einhverjum krafti niður í vatnið. Þótt þær séu margar. Þær henta hinsvegar ágætlega til að bæta við smá lit uppá lookið eða sem moonlight. Þær ættu líka að endast ágætlega og þær hita afar lítið útfrá sér.

Animal:
Jebb, sömu bláu. Svo á ég reyndar hvítar líka auka ef einhver vill spreyta sig.

Posted: 23 Aug 2009, 21:31
by animal
væri alveg til í að kíkja á þetta hjá þér.

Posted: 23 Aug 2009, 21:38
by ulli
keli wrote: 20w LED væri líklega alltof mikið á litlum fleti.
sem þýðir að þær gætu brent?
hvaða led eru þeir að nota í Solaris ljósin?

Posted: 23 Aug 2009, 21:40
by keli
Ég þekki það ekki.. Líklega 1w eða 3w.

Posted: 23 Aug 2009, 21:46
by keli
Fékk um 10kg af liverock áðan hjá godofthunder. Hið fínasta grjót og fullt af lífi. Marflær, krossfiskur, sveppir, ormar og fleira gúmmelaði. Búrið er enn mega gruggugt eftir grjótið þannig að ég bíð með myndir þangað til á morgun.

Posted: 23 Aug 2009, 21:47
by Squinchy
Glæsilegt! :)

Posted: 23 Aug 2009, 23:09
by Elma
vóh!! Keli komin í saltið! :shock:

er ekki 30L of lítið búr fyrir tvo trúða? bara pæla.. Ætlaru að fá þér einhverja litla krabba? og kannski rækju? Væri alveg til í að fá mér 130L trúðabúr með blue hermit crab og hreinsirækju en úff. ég nenni ekki að standa í því, ég myndi drepa allt í búrinu :P