128 lítra gróðurbúr Malawi feðga

Almennar umræður um plöntur, lýsingu og annað sem viðkemur gróðurbúrum

Moderators: Vargur, prien, Sven, Stephan

malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

128 lítra gróðurbúr Malawi feðga

Post by malawi feðgar »

jæja við feðgarnir erum komnir á fullt í gróður og breyttum því 128 lítra búri með 128 lítra sump í gróðurbúr, settum gróður sem við áttum fyrir.
Settum tetra plant næringu undir sandinn og tengdum co2 heimabrugg í til bráðabirgða þar sem verið er að fylla á co2 kútinn okkar, og setti upp svona diy difuser til að leysa upp co2 bólurnar( sjá mynd ), stefnan er að fá sér nokkrar plöntur í við bót og ná þeim vel upp.
Settum líka nokkrar ancistrur, 3 sae og 2 discusa sem við fengum í Trítlu og eru víst ræktaðir á Sauðárkróki hjá honum Svavari, fóru í búrið áðan og eru smá spéhræddir en eru á bakvið stóru plöntuna á myndinni.

Image
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Flott hjá ykkur feðgum.

Ég mæli með að þið fáið ykkur einhverjar skemmtilegar tetrur í torfu í búrið og ankistrur. Tetrurnar gefa Discusunum meira öryggi, þá fara þeir að tjilla meira þar sem þið sjáið þá.

Mínir héngu inni í gróðrinum hjá mér alveg þangað til ég fékk mér neona. Sást bara í glyrnur í frumskógi. Ekkert voða spennandi búrið þannig ;)
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Post by malawi feðgar »

það var á áætluninni að setja einhverja hópfiska með þeim, erum með ankistrur í búrinu nokkrar litla og eitt hryggnandi par.
En ég náði einni mynd af öðrum þeirra.

Image
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Líst vel á þetta :góður:
Hvað er þetta í horninu uppi vinstra megin? straumdæla?
Þið skuluð reyna að takmarka hreyfinguna á yfirborðinu, annars losnar kolsýran mjög fljótt úr vatninu. Það gæti reyndar líka verið erfitt að halda koslýrunni í búrinu með sump, allt sull í vatninu hristir alla kolsýruna úr því (eins og þegar maður hristir kókflösku)
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Post by malawi feðgar »

þetta hvíta og svarta uppi í horninu er yfirfallsskynjari ef affallið stíflast þá stoppar dælan þegar yfirborðið hækkar. Fyrir neðan hana er straumdæla tengd við hálfa kókflösku og er co2 leitt þar inn til að leysa það upp er bara að prufa útgáfu sem ég sá á netinu er með stiga sem fer í búrið um leið og kúturinn kemur fullhlaðinn af kolsýru.
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég sá þessa diskusa í Trítlu núna í seinustu viku, æðislega sætir.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Þetta lítur vel út og á eftir að vera enn flottara! Plöntubúr geta verið svo falleg, þetta er skemmtilegt verkefni hjá ykkur, gangi ykkur vel!
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Post by malawi feðgar »

er ekki sniðugt ef við látum nokkrar rætur í viðbót?
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ræturnar eiga að mýkja vatnið sem er gott fyrir diskusana.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Þetta lítur mjög vel út, en út af sumpinum hef ég mestar áhuggjur af því að kolsýran sem þú ert að setja í vatnið fari beinustu leið úr því aftur þegar vatnið fer úr búrinu, í sumpinn og til baka.
Ég styð hugmyndina með ræturnar heilshugar!
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Post by malawi feðgar »

ég er nú ekki með neitt svaka rensli úr búrinu í sumpin en það kemur bara í ljós hvort þetta virkar eða ekki, ef þetta kemur ílla út þá er ekkert annað en að sleppa sumpnum og breyta honum í annað gróðurbúr :-)
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Þetta kalla ég jákvætt viðmót!!!
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Update

Post by malawi feðgar »

jæja bætti við einni plöntu og rót, co2 kúturinn komin í gang en er ekki með nein mælir til að sjá hvað það er mikið co2 í vatninu, spurning hvort ég eigi að slökkva á kútnum þegar ljósið er slökkt eða bara láta þetta malla.
Discusarnir eru farnir að éta eins og herforingjar og eru að losna við feimnina.
En hér koma nokkrar myndir.

Image

Image

Image
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Hérna er einhver formúla. Þarft að mæla pH og KH.

http://www.csd.net/~cgadd/aqua/art_plant_co2chart.htm
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Post by malawi feðgar »

þetta er einhver hebreska fyrir mér :D en ég þarf að prufa mig áfram ég á svona ph test en þarf að fá mér kh test, en á að hafa þetta í gangi yfir nóttina? er ekki eðlilegt að það sé bara kveikt á kolsýruni þegar ljósin eru kveikt.
Hinsvegar ef einhver er að fara að panta fiska dót að utan þá væri ég rosalega glaður ef einhver gæti tekið svona co2 mælir fyrir mig er meira að segja til í borga eitthvað auka fyrir ómakið.
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Það er betra að hafa kolsýruna bara í gangi þegar ljósin eru í gangi. Plönturnar nota ekki kolsýru þegar þær hafa enga birtu þannig að það væri sóun að hafa þetta alltaf í gangi.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Sammála síðasta ræðumanni, best að vera bara með solenoid (veit ekki hvað það heitir á íslensku) á timer þannig að kolsýran kveiki á sér um klukkutíma á undan ljósunum og svo slökkni á kolsýrunni um klst áður en það slökknar á ljósunum.

Hvernig er reactorinn að virka? Er eitthvað af l0ftbólunum að sleppa upp á yfirborðið? Þú getur líka sett grófan svamp inn í hólkinn til að halda loftbólunum inni í hólkinum til að þær leysis alveg upp.

Þetta er farið að líta helvíti vel út hjá ykkur og lofar virkilega góðu.
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Post by malawi feðgar »

það fara nánast engar loftbólur út, ein og ein pínulítil sem sleppur ætla að gefa þessu smá tíma og sjá hvernig þetta kemur út er með stiga sem ég get notað en ég held að þetta sé ekkert síðra, hvar fær maður svona solenoid. Ég er bara með einhvern eldgamlan krana á kútnum þarf ég að skifta um hann ef ég fer í þetta solenoid og er þetta ekki rándýrt.
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Keli fann svona solenoid á sæmilegum prís einhversstaðar. Getur borgað sig fljótt að fá sér solenoid þar sem að þá getur maður sparað um 50% af kolsýrunni án þess að þurfa að vera að skrúfa fyrir kútinn á hverjum degi (getur líka haft slæm áhrif ef þú gleymir að opna fyrir kolsyruna öðru hverju, þá væri hætta á þörungavandamálum).

þú þarft ekki að skipta um kranann, solenoidinn er bara tengdur beint á kolsýruslönguna.

En nærðu annars að hafa flæðið stöðug á koslýrunni með krananum?

Annars held ég að svona reactor eins og þú ert með sé jafnvel betri en stigi. Þú getur þó prófað að tengja stigann og athugað hvort að loftbólurnar leysist 100% upp áður en þær sleppa í gegn.
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Post by malawi feðgar »

já Þetta er krani fyrir svona kerfi er bara gamall en virkar fínt get alveg fínstilt magnið á loftbólunum.
Þá er bara að reyna að grafa upp hvar keli fann svona solenoid.
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Post by malawi feðgar »

keypti svona tetra test sem er fyrir gh og kh en ég veit ekkert hvernig á að nota þetta það eru engar leiðbeiningar í pakkanum bara 2 glös og eitt svona fekantað tómt mæliglas er einhver sem getur sagt mér hvað ég geri við þetta.
Er líka búinn að googla en finn ekkert.
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Svona ph test í glasi er ekki nógu nákvæt til að finna út kolsýruna, þú þarft hels að vera með test sem er nákvæmt upp á 0,1, þ.e.a.s. þú þarft að sjá mun á ph7,2 og 7,3
Ég mundi mun frekar mæla bara með því að fá þér drop checker, svona nákvæm ph test eru dýr.
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Gróðurbúr

Post by malawi feðgar »

Gróðurbúrið er á góðri leið komin með solinoid á co2 og timer, mældi co2 í búrinu í dag og kom það mjög vel út þar að segja ef testin sem ég er með eru rétt, bættum við smá plöntum og settum fl. rætur sumar plönturnar eru byrjaðar að taka við sér sérstaklega þessi rauð fyrir miðju búri sem er farinn að nálgast toppinn á búrinu.

Image
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Brilliant! þetta lýtur vel út og lofar góðu. Fylgist spenntur með þessu hjá ykkur.

Hvar fékkstu solenoidinn og hvað þurftir þú að punga miklu út fyrir honum?
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Post by malawi feðgar »

fékk hann í loft.is sem er í kópavogi kostaði 7000 krónur, fannst það svolítið mikið en þetta léttir mikið á manni og sparast örugglega í kolsýru, nú vantar mig eiginlega bara svona co2 mælir svo ég þurfi ekki að vera alltaf að taka test.
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Frábært að sjá hvað gróðurinn er fallegur.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Post by malawi feðgar »

mikill partur af þessum gróðri er frá þér ásta.
orðinn virkilega fallegur.
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Post by malawi feðgar »

Kribba parið er komið með seiða hóp og ferðast þau um búrið með þau og passa fyrir öðrum fiskum, náði bara einni mynd þar sem seiðin sjást frekar erfitt að taka myndir af þeim þar sem þau eru pínulítil.

Image
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

þetta er glæsilegt hjá ykkur og alveg gullfalleg kribba kerling sem þið eruð með :) :góður:
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Jaguarinn
Posts: 1141
Joined: 20 Oct 2007, 16:07

Post by Jaguarinn »

mölin í búrinu er gg, hvar fenguð þið hana ?
:)
Post Reply