Gróður búrið mitt!

Almennar umræður um plöntur, lýsingu og annað sem viðkemur gróðurbúrum

Moderators: Vargur, prien, Sven, Stephan

Post Reply
Hrafnhildur
Posts: 107
Joined: 19 Jan 2007, 15:04

Gróður búrið mitt!

Post by Hrafnhildur »

Langaði til að sýna ykkur gróðurbúrið mitt, er með í því nokkra gúbbý fiska, molly, glersugur og snigla. Gróðurinn vex síðan alveg eins og arfi, eitthvað sem ég bjóst ekki við :)
Endilega ef þið hafið einhver comment að koma með þau :P
Image
Image
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

virðist vera fínt hjá þér, en myndirnar eru svakalega smáar :?

getur notað www.fishfiles.net til að setja þær inn í eðlilegri stærð á spjallið
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Hrafnhildur
Posts: 107
Joined: 19 Jan 2007, 15:04

Post by Hrafnhildur »

úff ég held að ég sé tölvuheft! var alveg örugglega hálftíma að setja þær inn og svo komu þær svona smáar :S
Hrafnhildur
Posts: 107
Joined: 19 Jan 2007, 15:04

Post by Hrafnhildur »

Image
Image

jú þær eru stærri, en kannski full stórar! :lol:
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

það sést þó hvað er á myndunum. :)

hvað er þetta stórt búr? sýnist fremsta lágvaxna plantan vera gerfi?

Sýnist þú vera með cabomba, Ludwigia Perennis og Hydrocotyle leucocephala..

veit ekki hvort hægt sé að kalla þetta beint gróðurbúr :) Í gróðurbúrum er gróðurinn yfirleitt númer 1,2 og 3 og fiskarnir meira svona auka.
En þetta er samt fínasta búr, hlakka til að sjá þróunina á því.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Hrafnhildur
Posts: 107
Joined: 19 Jan 2007, 15:04

Post by Hrafnhildur »

já þessi fremsta er gerfi, er líka með svona aftast fyrir seiði til að fela sig í.

En afhverju gæti þetta ekki kallast gróðurbúr? er með helling af gróðri og vildi ekki hafa búrið tómlegt og líflaust þannig að ég setti fiska í það líka

Það er reyndar ein önnur planta þarna sem ég veit ekki hvað heitir
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Flott búr hjá þér Hrafnhildur, held þó að það mundi koma enn betur út með dekkri möl, en það er náttúrulega bara smekksatriði.
Hrafnhildur
Posts: 107
Joined: 19 Jan 2007, 15:04

Post by Hrafnhildur »

takk fyrir það :) mölin er nokkuð ljós já, er reyndar dekkri en á myndinni
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Fallegt búr.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Hrafnhildur wrote:já þessi fremsta er gerfi, er líka með svona aftast fyrir seiði til að fela sig í.

En afhverju gæti þetta ekki kallast gróðurbúr? er með helling af gróðri og vildi ekki hafa búrið tómlegt og líflaust þannig að ég setti fiska í það líka

Það er reyndar ein önnur planta þarna sem ég veit ekki hvað heitir
það er nú bara þannig :)

gróðurbúr eru í flestum tilfellum svona http://www.blueaquarium.org/wp-content/ ... k_2006.jpg

http://www.plantedtank.net/imageh/image ... 02413b.jpg

http://i44.tinypic.com/20z6y5h.jpg

þar er gróðurinn í aðalhlutverki og kannski hafðir einhverjir hópfiskar eða aðrir smáir fiskar..
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Gróðurbúr eða ekki gróðurbúr
Í búrinu er mikill gróður þannig að það er hægt að segja að þetta sé gróðurbúr og sérstaklega hérlendis þar sem nánast engin gróðurbúr eru á landinu.
Ég man td. ekki eftir að hafa nokkurn tíma séð gott gróðurbúr hérlendis enda ekki hefð fyrir því en áhugi manna er að aukast á gróðri og kannski á þetta eftir að glæðast í framtíðinni sérstaklega með komu internetsins þar sem hægt er að sjá hvað er að gerast erlendis það var lítið flutt inn af gróðri hér áður fyrr og þekking enginn frekar en á fiskum á þeim tíma
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Gudmundur wrote:Gróðurbúr eða ekki gróðurbúr
Í búrinu er mikill gróður þannig að það er hægt að segja að þetta sé gróðurbúr og sérstaklega hérlendis þar sem nánast engin gróðurbúr eru á landinu.
akkúrat það sem mér finnst ekki :P
en miðað við að það eru fá þannig séð gróðurbúr hérlendis eins og þú segir, þá er alveg hægt að kalla þetta gróðurbúr, hehe.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
kiddicool98
Posts: 907
Joined: 04 Sep 2008, 16:13
Location: 104 rvk
Contact:

Post by kiddicool98 »

Lindared wrote:
Hrafnhildur wrote:já þessi fremsta er gerfi, er líka með svona aftast fyrir seiði til að fela sig í.

En afhverju gæti þetta ekki kallast gróðurbúr? er með helling af gróðri og vildi ekki hafa búrið tómlegt og líflaust þannig að ég setti fiska í það líka

Það er reyndar ein önnur planta þarna sem ég veit ekki hvað heitir
það er nú bara þannig :)

gróðurbúr eru í flestum tilfellum svona http://www.blueaquarium.org/wp-content/ ... k_2006.jpg

http://www.plantedtank.net/imageh/image ... 02413b.jpg

http://i44.tinypic.com/20z6y5h.jpg

þar er gróðurinn í aðalhlutverki og kannski hafðir einhverjir hópfiskar eða aðrir smáir fiskar..
sammála. annars rosalega flott og fallega innréttað búr.
kristinn.
-----------
215l
Hrafnhildur
Posts: 107
Joined: 19 Jan 2007, 15:04

Post by Hrafnhildur »

Takk fyrir falleg comment :)
Ég er alveg sammála þér Guðmundur. Að mínu mati telst þetta sem gróðurbúr, en ef það væri meira um á íslandi að fólk væri með búr sem væru meira og minna bara gróður þá fyndist mér mitt búr vera á mörkunum
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

langar samt að bæta við að annars eru Malawi feðgar, Sven og ég t.d með ágætis metnað í þessum gróðurmálum. :)

En að öðrum málum, hvað er búrið þitt stórt? Ertu með gróðurperur? Ætlaru að hafa co2 kerfi í búrinu?
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Hrafnhildur
Posts: 107
Joined: 19 Jan 2007, 15:04

Post by Hrafnhildur »

Já en fjórar manneskjur geta varla talist mikið þegar tekið er mið af því hvað margir eru með fiskabúr :)

Ég hef annars ekki grænan um það hversu stórt búrið sé, þetta er biocub búr frá rena, er ekki með gróðurpera, bara peru sem fylgdi búrinu, en hún virðist vera gera sitt gagn því ég er alltaf að klippa gróðurinn. Ég á svo co2 sístem en á bara eftir að setja það upp
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

það er nefnilega málið, það eru svo fáir sem hafa metnað fyrir gróðri eða bara finnst það of mikið vesen að þurfa alltaf að klippa hann á viku fresti. Flest allir fá sér bara fiska og skraut.
En það eru einhverjir hérna á spjallinu sem hafa verið með mjög falleg búr, með slatta af gróðri í.
Ég vil eiginlega bara vera með gróðurbúr, finnst það svo flott, svo finnst mér svo gaman að þessu öllu stússi í kringum þetta.
En eins og ég sagði, þá hlakka ég til að sjá þróunina á búrinu þínu. :)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Junior
Posts: 128
Joined: 04 Feb 2009, 17:07

Post by Junior »

þetta er mjög vel innréttað búr hjá þér Hrafnhildur, gaman að sjá hvernig þú hefur breytt búrinu frá upprunalega biocub. langar að sjá þig setja co2 system í þetta og modda lokið fyrir gróðurperu, en engu að síður skemmtileg viðbót við dýragarðinn.
-andri


annars langar mig að bæta við að Melur nokkur hér á spjallinu er að vinna í gróðurbúri. hann vill samt ekki kaupa neinar plöntur heldur er að vinna útfrá afleggjurum sem hann hefur sankað aðsér héðan og þaðan, efnilegur grasakarl að mínu mati.
-Andri
Post Reply