Vandræði að festa anubias???

Búrasmíði, bakgrunnar, lok osf

Moderators: Vargur, keli, Squinchy

Post Reply
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Vandræði að festa anubias???

Post by Sven »

Ekki lengur, snillingurinn hún konan mín pikkaði þetta upp í Tiger eftir að hafa fylgst með mér bölvandi og ragnandi við að festa ca. 15 anubiasa á rætur um daginn. Þetta er semsagt svona plasthúðaður vír, easy peasy að festa anubiasinn og þetta kostar skít og kanil. Ekki skemmir fyrir að þetta er grænt!
Image
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Of auðvelt! Myndi aldrei nota svona! Var að festa riccia á rúnnaðan stein með girni áðan, það er miklu skemmtilegra! :)

Ég var reyndar að panta mér 4x anubias barteri petite áðan, kannski maður prófi svona þegar þær koma í hús.

P.s.
Ég vil myndir af búrinu þínu með þessum anubias í :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

ég nota bara heftibyssu, miklu skemmtilegra :P
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Ég nota líka alltaf girni :P En þetta er svaka sniðugt :D
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Snædal
Posts: 202
Joined: 27 Apr 2009, 21:37
Location: Rvk

Post by Snædal »

Ég hef verið að nota teygjur. Fékk kassa frá systur minni. Kostar svona 2-300 kall og svona 100 teygjur myndi ég giska.
Hver teygja óstrekkt er minni í þvermál en litli puttinn á mér en hefur teygst alveg hátt í 10 cm hjá mér þegar ég hef þurft. Þær eru meirað segja í þremur misbrúnum litum. Algjör snilld.
Post Reply