Óskarar í 245L + búrfélagar

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Karen
Posts: 880
Joined: 15 Aug 2007, 21:48

Óskarar í 245L + búrfélagar

Post by Karen »

Nú er ég mikið að spá í 245L búri og langar í óskara, og þá spyr ég hversu marga fullvaxna óskara get ég sett í búrið + hvaða búrfélagar geta verið með þeim, án þess að overstocka búrið?

Og, hversu marga óskara get ég sett í búrið án búrfélaga (nema kannski gibba eða plegga)?

Veit svosem að þeir eru ekki margir fiskarnir sem komast í búrið, en nú ríkir forvitnin :wink:

Ég er einnig að spá í polypterus í búrið, gætu orðið vandræði að hafa óskara og polypterus saman (eða ropefish)?

Með fyrirfram þökk
User avatar
Petur92
Posts: 193
Joined: 15 Dec 2008, 18:12
Location: Reykjavík

Post by Petur92 »

full vaxinn ? þeir þurfa amk 75 gallon á mann sem eru sirka 284 Lítrar, en það gæti sloppið einn í 245L búr, og ég myndi ekki setja ropefish með þeim vegna þess að þeir geta borðað þá. þú þarft að vera með mjög vel lokað búr ef þú ætlar að fá þér polypterus ættina. vegna þess að þeir eiga það í sér að hoppa uppúr á fáránlegustu stöðum.

þú getur sett 2-4 polypterus

ég mæli samt með þá : Polypterus Senegalus.
þeir eru mjög skemmtilegir
Pétur
8455242
---------------------------------
mikill áhugamaður hér á ferð
Karen
Posts: 880
Joined: 15 Aug 2007, 21:48

Post by Karen »

Mér var nú sagt í dag í Dýraríkinu, að ég gæti verið með 4 óskara í þessu búri, vildi bara fá það staðfest hér, en maður veit svosem aldrei hvað maður heyrir frá þessum blessuðu dýrabúðum. :roll:
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Karen wrote:Mér var nú sagt í dag í Dýraríkinu, að ég gæti verið með 4 óskara í þessu búri, vildi bara fá það staðfest hér, en maður veit svosem aldrei hvað maður heyrir frá þessum blessuðu dýrabúðum. :roll:
Held að Dýraríkis menn séu meira að spá í að selja fleiri fiska en ekki að spá í hvað fiskum hentar :S ,maður heyrir svo oft algjöra vitleysu frá þeim og treysti ég engu sem þeir láta út úr sér. Fer frekar og afla mér upplýsinga á netinu :)

En nafnið á þessum þræði ætti að vera 1 óskar í 245L búri og engir búrfélagar :P

Er með einn óskar og 3 polypterusa í 400L búri, en óskarinn er enn frekar lítill en ég myndi aldrei troða honum í t.d 180L búrið mitt þó hann sé enn svona lítill, þetta verða svo hrikalega stórir fiskar. Ef maður horfir á youtube myndbönd á netinu af fullvöxnum óskurum þá sér maður að maður á ekki að setja þá í minna en 400L finnst mér :S verða svo svakala þykkir og langir að þeir geta örugglega lítið hreyft sig í minna búri.

En maður hefur heyrt sögur af óskurum sem taka plegga, ég er með einn hjá mínum óskar sem er reyndar stærri en óskarinn enn sem komið er :P, og hefur ekki verið vandamál, eins er ég með einn ropefish en þessi óskar étur svo hrikalega mikið að þegar hann stækkar meira þá gæti litla ancistran (sem er þarna líka) og ropefishinn verið í hættu. Þessir fiskar éta og éta og stækka eftir því :P minn er örugglega búinn að fjórfaldast á 2 mánuðum :O. Hann er líka ekki með neina samkeppni og fær því mikið að borða :P og varla hægt að komast hjá því, maður er búin að gefa honum alveg helling og ætlar svo að gefa hinum fiskunum en hann tekur helminginn af því líka :P.

En já 1 óskar í búrið eða engann segi ég :) og þá með engum búrfélögum held ég :S alltof lítið til þess. T.d þurfa held ég senegalusar stórt búr þar sem þeir verða svo svakalega langir, en eru reyndar lengi að vaxa upp í þá stærð.

Ef ég væri þú myndi ég spá í bara öðruvísi fiskum, þar sem þetta er svo engan veginn nóg fyrir svona stórann fisk að mínu mati.
200L Green terror búr
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég myndi segja að 2 óskarar væru alveg í lagi í þetta búr, en þá er lítið annað með, og þú þarft gott dælukerfi.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply