Óskar kannski gefins

Hér getur þú auglýst til sölu eða óskað eftir fiskum og fiskavörum

Moderators: Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Amything
Posts: 48
Joined: 02 Jan 2008, 11:57

Óskar kannski gefins

Post by Amything »

Daginn,

ég er að hugsa um að láta Óskarinn minn frá mér. Hann er eflaust tæplega 9 ára gamall. Ég er búinn að eiga hann í 8 ár eða síðan hann var kríli. Hann er full vaxinn núna og töluvert stór.

Félagi hans dó fyrir nokkrum mánuðum og hann er bara einn í búri.

Hérna er Youtube video með honum :)
http://www.youtube.com/watch?v=jYcvodtqMec

og mynd (til vinstri)
http://farm1.static.flickr.com/44/14987 ... d590_b.jpg

Hann er orðinn gamall, soldið skýjaður til augnanna en það virðist ekki há honum.

Ég vill helst ekki láta hann frá mér nema mér finnist viðkomandi hafa viðunandi aðbúnað fyrir hann, 300+ lítra búr etc...

Er einhver sem hefur áhuga?
User avatar
SteinarAlex
Posts: 293
Joined: 10 Feb 2008, 17:44

Post by SteinarAlex »

hvernig tímiru að láta frá þér fisk sem þu ert buinn að eiga i átta ár :?
User avatar
gunnarfiskur
Posts: 298
Joined: 18 Jun 2008, 15:30

óskar

Post by gunnarfiskur »

Hæ ég er með 300l búr og einn óskar sem er um 20cm vinur hans dó þannig ég er i svipaðri stöðu og þú... Ég myndi hafa áhuga að taka fiskinn og hugsa um hann. Hvað finnst þér?
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Re: óskar

Post by Sirius Black »

gunnarfiskur wrote:Hæ ég er með 300l búr og einn óskar sem er um 20cm vinur hans dó þannig ég er i svipaðri stöðu og þú... Ég myndi hafa áhuga að taka fiskinn og hugsa um hann. Hvað finnst þér?
Myndi samt vera viðbúinn því að þeir taki hvor öðrum ekki vel, er með einn sem er að nálgast 20 cm og hann hefði getað drepið einn á 2 klst, sem ég setti sem vin hjá honum og var aðeins minni. Þannig að ég bjargaði nýja uppúr. En svo var ég með tvo sem ólust upp saman og þeir voru ágætir vinir (en voru svo drepnir af fiski af annarri tegund). Bara svona að benda á að þeir verða ekki sjálfkrafa vinir þó að þeir hafi alist upp og verið með öðrum óskar í búri áður held ég :) En svo gæti þetta gengið vel , maður veit aldrei :) En minn hefur reyndar alltaf verið eini óskarinn í búrinu þannig að kannski er hann ekki eins félagslegur og ef hann hefði alist upp með öðrum :P.
200L Green terror búr
User avatar
gunnarfiskur
Posts: 298
Joined: 18 Jun 2008, 15:30

Post by gunnarfiskur »

já er samála þér sirius. Ef ég fæ hann þá rugla ég goggunnar röðinni fyrst breyti búrinu og tek minn uppúr set svo báða oní i einu þá á hvorugur búrið.
Amything
Posts: 48
Joined: 02 Jan 2008, 11:57

Post by Amything »

Takk fyrir áhugann allir. Hann "Gremlin" var búinn að bjóðast til að taka hann. En ég er haldinn mikilli ákvörðunarfælni í augnablikinu.

Síðasta og eina skiptið sem ég þurfti að flytja hann (1.5 ár síðan) borðaði hann varla í næstum 2 mánuði og ég veit eiginlega ekki hvernig hann bregst við ef hann verður með öðrum fiskum. Ég get samt ekki haft búrið þar sem það er núna og þarf þar af leiðandi að flytja hann hvort eða er. Gah!
Post Reply