Sverðdragafiskurinn búinn að gjóta - hjálp!

Guppy, endler, platy, sverðdragarar og aðrir gotfiskar

Moderators: Elma, Vargur

Post Reply
Róslín
Posts: 4
Joined: 13 Sep 2009, 23:33
Location: Hornafjörður
Contact:

Sverðdragafiskurinn búinn að gjóta - hjálp!

Post by Róslín »

Ég veit ekkert, við sáum að hún var eitthvað að fela sig í gær og settum hana í annað búr þar sem hún var bara ein, hún var rosalega ósátt en núna er ég búin að kíkja og er búi að sjá nokkur seiði, veit ekki hve mörg en allavega sá ég tvö í einu. Ég veit ekki hvort gotið sé búið hjá henni en á ég að færa hana yfir til hinna strax og hafa seiðin ein?

Ég veit nefnilega ekki neitt, og vil ekki að þau verði étin af sinni eigin móður! :P
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Færðu kerlu, annars étur hún seiðin ef hún nær þeim.
Róslín
Posts: 4
Joined: 13 Sep 2009, 23:33
Location: Hornafjörður
Contact:

Post by Róslín »

Ég færði hana, og hún er ekki lengur jafn þykk og hún var, en hún er samt enn að fela sig. svo er ég með rosalega stórt grjót í hinu búrinu hjá litlu krílunum, bara búin að sjá eitt í einu allavega núna. Fela þau sig ekki alltaf á botninum, eða þar sem þau geta falið sig? (Þó það séu ekki aðrir fiskar í búrinu..)
Post Reply