Page 1 of 2

DNA myndir.

Posted: 03 Apr 2010, 21:51
by DNA
Smellti af mynd fyrir ykkur.
Búrið á eftir að taka talsverðum breytingum næstu mánuði og ár.
Hef fengið minn skerf af áföllum en nú er góð spretta í sps kóröllum og framtíðin björt.

Bæti svo við þráðinn smátt og smátt en það gæti hæglega liðið langur tími á milli.

Image

Posted: 03 Apr 2010, 21:52
by Guðjón B
fallegt búr :-)

Posted: 03 Apr 2010, 21:55
by DNA
Hér eru svo tvæ nýjar í viðbót.

Image

Image

Posted: 03 Apr 2010, 21:59
by Guðjón B
Jæja Guðmundur :P

Posted: 03 Apr 2010, 22:17
by Squinchy
Geðveikt búr!, hvað er þetta stórt og hvaða búnað ertu að nota, hvernig lýsing er yfir búrinu ?

Posted: 03 Apr 2010, 22:24
by grilli
Glæsilegt búr hjá þér!

En þú segist hafa orðið fyrir áföllum sem virðast vera ansi mikil miðað við gömlu myndirnar á heimasíðunni þinni?? eða er ég að bulla?

Posted: 03 Apr 2010, 22:38
by Jakob
Fallegt búr. Hvað er það stórt, 7-800L? Hvað er sumpurinn stór?
Getur einhver gefið upp link að heimasíðunni.

Posted: 03 Apr 2010, 22:44
by Gunnar Andri
Síkliðan wrote:Fallegt búr. Hvað er það stórt, 7-800L? Hvað er sumpurinn stór?
Getur einhver gefið upp link að heimasíðunni.
http://frontpage.simnet.is/dna/

Posted: 03 Apr 2010, 23:14
by jaguar1957
Ó MÆ GOD....
ertu ekki að grínast með sjúklega flott búr :shock:... ég er ástfangin :oops: :D :wub:

Posted: 03 Apr 2010, 23:19
by DNA
Það gekk ferlega vel fyrstu árin en svo fékk ég agnarsmáan leka sem þurfti að gera við innan frá, tæmdi búrið og missti þrjá sæfífla við bröltið. Við tók mjög langur tími þar sem búrið var í gíslingu af flatormaplágu og bannað var að flytja inn lyfið við því í mörg ár. Ekkert óx og sumt hnignaði en hélt þó lífi.

Svo fann ég lausn við því fyrir tilviljun og losaði mig við flatormana á einu bretti en þrátt fyrir að hafa staðið mjög svo fagmannlega að því var eitrunin af dauðum flatormum það mikil að margt lifði það ekki af. Missti þar megnið að SPS kóröllunum og nokkra fiska.

Síðasti sæfífillinn fór á langt flakk í fyrra og var alltaf í baráttu við kóralla og sífellt að flytja sig og drepa nágrannana í leiðinni. Hann endaði svo í dælunum og það var lítil efirsjá þar sem hann hafði valdið verulegum usla.

Ég á samt gott úrval af kóröllum en vantar aðeins af SPS en þannig búr er næst á dagskránni þar sem vatnsgæðin eru kominn í lag að nýju loksins.

Posted: 04 Apr 2010, 15:13
by EiríkurArnar
hvernig eru flatormar og hvernig losaðirðu þig við þá ?

það er slatti af einhverjum leiðinlegum ormum hjá mér sem fara í taugarnar á mér.

Posted: 04 Apr 2010, 15:24
by ulli
EiríkurArnar wrote:hvernig eru flatormar og hvernig losaðirðu þig við þá ?

það er slatti af einhverjum leiðinlegum ormum hjá mér sem fara í taugarnar á mér.
http://www.liveaquaria.com/general/gene ... agesid=362

minnir samnt að það sem menn voru að berjast við héti Red planarian

hér eru myndir og faqs um þá.
Dýragarðurinn hefur átt lif við þeim.

http://www.melevsreef.com/flatworms.html

Posted: 04 Apr 2010, 17:06
by DNA
EiríkurArnar wrote:hvernig eru flatormar og hvernig losaðirðu þig við þá ?

það er slatti af einhverjum leiðinlegum ormum hjá mér sem fara í taugarnar á mér.
Eftir að hafa haft þetta vandmál fáránlega lengi vissi ég hitt og þetta um það og þar á meðal hvaða virka efni er í þessu lyfi. Ég las fyrir forvitnissakir innihaldslýsingu á öðru óskyldu lyfi notað í öðrum tilgangi og sá þar að svipað efni var verið að nota. Fór svo í rannsóknarvinnu á netinu fékk smá af lyfinu prófaði það í tilraunaglasi með nokkrum ormum, fann út skammtastærðir og framdi svo snilldargjörning á búrinu.

Posted: 03 Jun 2010, 20:39
by DNA
Hef haft Mandarinpar í nokkra mánuði og ekki er annað að sjá en nóg sé að éta fyrir þá báða. Hér er kallinn en þeir þekkjast á þessum langa sprota á bakugganum.

Image

Image

Posted: 03 Jun 2010, 21:15
by Squinchy
Án efa fallegustu fiskar jarðar að mínu mati :)

Posted: 04 Jun 2010, 02:47
by Arnarl
Squinchy wrote:Án efa fallegustu fiskar jarðar að mínu mati :)
Gæti ekki verið meira sammála! ekkert smá flott búr!

Posted: 04 Jun 2010, 10:57
by Elma
Holy moly!
Geðveik mynd af Mandarin karlinum.

Posted: 04 Jun 2010, 22:03
by rabbi1991
já sæll. Holy molly. Þarf að kaupa svona ( og stærra búr :P )f Svaka flott búr.

Posted: 05 Jun 2010, 00:29
by animal
Arnarl wrote:
Squinchy wrote:Án efa fallegustu fiskar jarðar að mínu mati :)
Gæti ekki verið meira sammála! ekkert smá flott búr!
Já hef velt þessu fyrir mér hver tæki 1sta sætið og þessir fara í topp 10.

Posted: 05 Jun 2010, 10:02
by vikar m
animal wrote:
Arnarl wrote:
Squinchy wrote:Án efa fallegustu fiskar jarðar að mínu mati :)
Gæti ekki verið meira sammála! ekkert smá flott búr!
Já hef velt þessu fyrir mér hver tæki 1sta sætið og þessir fara í topp 10.
samála

Posted: 14 Jun 2010, 22:43
by DNA
.
Þessir hafa eitraða bakugga en hann sem betur fer heldur sig fjarri þegar ég er með hendina ofan í.
Image

.

Haltu þig fjarri eða illa fer!
Image

Posted: 15 Jun 2010, 00:12
by Squinchy
Þetta eru aðeins of góðar myndir, hvernig linsu ertu að nota ?

Posted: 15 Jun 2010, 01:07
by Jakob
Spyr þess sama og Squinchy, hvaða myndavél og linsu ertu að nota, og hvernig ertu að vinna myndirnar. Þetta eru alveg brilliant myndir hjá þér.

Posted: 16 Jun 2010, 23:22
by DNA
Nota fjölbreyttar aðferðir til að að draga fram það besta úr hverri mynd. Tel mig vera nokkuð seigan bæði að ljósmynda og í eftirvinnslunni.

Posted: 22 Jul 2010, 13:07
by DNA
Hér er einn eldhress.

Image

Posted: 23 Jul 2010, 14:33
by Elma
Þetta sem er upp á hausnum á honum..
er þetta "The white tree of Gondor" úr The lord of the Rings - the return of the King?

Flottur fiskur
Er þetta einhver Goby?

Posted: 23 Jul 2010, 16:06
by Agnes Helga
Æðislegar myndir hjá þér

Posted: 24 Jul 2010, 17:49
by Jakob
Elma wrote:Þetta sem er upp á hausnum á honum..
er þetta "The white tree of Gondor" úr The lord of the Rings - the return of the King?

Flottur fiskur
Er þetta einhver Goby?
Þetta er blenny sýnist mér frekar en goby. Frábær mynd af bráðskemmtilegum fisk.

Posted: 15 Aug 2010, 12:28
by DNA
Síðasta mynd er af stjörnu-blenny.

Hér er svo neon-goby að veita þjónustu sem flestir fiskar kunna vel að meta.

Image

Re: DNA myndir.

Posted: 28 Feb 2011, 19:23
by Ási
Sorry
Að ég sé að vekja upp gamlan þráð enn gat ekki staðist því þetta er svo flott búr enn ef það er enn þá í gangi nenniru þá að koma með fleiri myndir?