þrif á búri

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
olith
Posts: 74
Joined: 07 Jan 2010, 10:17
Location: 110

þrif á búri

Post by olith »

er með gamalt búr sem er tómt, ekkert í því, hvorki vatn, sandur né annað.

Það er frekar skítugt og sóðalegt, hvernig er best fyrir mig að þrífa glerið að innan sem utan ? þeas hvaða efni má ég nota etc
User avatar
stebbi
Posts: 462
Joined: 30 Aug 2007, 19:05
Location: Breiðholt

Post by stebbi »

oft er nóg að nota bara vatn og svamp
Don´t drink water
fish f*** in it
http://madkur.bloggar.is/
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Vatn og stálull virkar hjá mér.
olith
Posts: 74
Joined: 07 Jan 2010, 10:17
Location: 110

Post by olith »

rispa ég það ekkert með stálull ?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég færi nú varla að mæla með stállull ef hún rispaði glerið.
olith
Posts: 74
Joined: 07 Jan 2010, 10:17
Location: 110

Post by olith »

Vargur wrote:Ég færi nú varla að mæla með stállull ef hún rispaði glerið.
hahahaha sennilega ekki
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

ég hef mikið notað hvítann scotsbrite svamp, fæst í Rekstrarvörum og er sérstaklega fyrir viðkvæm yfirborð. þegar segulhreinsirinn er hættur að virka á þörunginn þá nota ég hann. ég hef líka notað klór til að sótthreinsa, ef búrið, steinar og dælur er skítug geta verið einhverjar gamlar bakteríur og þörungaleyfar sem er gott að losa sig við, svo er bara að skola MJÖG vel á eftir. Klórinn skilur ekki eftir neinar leyfar eins og sápa gerir sem er algjört eitur í fiskabúr. (þú vissir þetta pottþétt, ég er bara að sýna hvað ég er klár!) :wink:
atlios
Posts: 27
Joined: 03 Mar 2010, 23:02

Post by atlios »

Er í lagi að nota stálull á plastbúr? Ef ekki hvað væri þá hentugt?
Byrjandi með 54l
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

nei ekki á plastbúr, þau rispast ansi auðveldlega. Líklega best að nota svamp eða mjúkan uppþvottabursta.
-Andri
695-4495

Image
atlios
Posts: 27
Joined: 03 Mar 2010, 23:02

Post by atlios »

Já ok takk, er einmitt með þennan fína uppþvottabusta :D
Byrjandi með 54l
Post Reply