Okkar fyrsta diskus-hrygning
Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta
Okkar fyrsta diskus-hrygning
Við hjónin erum núna að upplifa fyrstu hrygningu hjá Diskusunum okkar, virkilega spennandi. Þetta er par frá Svavari (keypt hjá Trítlu), þau eru rúmlega 2ja ára gömul. Seiðini klöktust í gær, 27. febrúar.
Við erum með ca 530 l búr og gátum við sett upp heimagert skilrúm á milli þeirra og hinna fiskanna. Þeir eru: 4 diskusar, þar af einn villtur, 4 SAE, 3 ankistrur, 4 granar (einhver gerð af corydoras, líklega reticulatus), 2 kúlí-álar og um 30 kardinálatetrur. Svo eru nokkrir assassin-sniglar.
Gaman, gaman,
Guðbjörg og Dirk

Re: Okkar fyrsta diskus-hrygning
Big like á þetta
Væri gaman að sjá myndir
Væri gaman að sjá myndir
Re: Okkar fyrsta diskus-hrygning
Það er spennandi þegar discusar taka upp á því að hrygna hjá manni Ég hef komið upp nokkrum hrygningum. Það getur verið ótrúlega mikið puð að halda seiðunum frískum.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Re: Okkar fyrsta diskus-hrygning
Við vorum að átta okkur á því af hverju þeir tóku upp á því að hrygna núna og teljum við að vatnsgæðin hafi breyst svo mikið til hins betra núna vegna: 1. áttuðum okkur á því að gróðurpera hafði verið ónýt í dágóðan tíma, 2. þurftum að setja lyf til að meðhöndla sveppasýkingu í ankistru, 3. þarf af leiddu tíð vatnsskipti og 4. skiptum um útfjólubláa peru í hreinsibúnaði. Svo er kannski bara líka að fara að vora
Ég reyni að setja inn myndir (hef aldrei gert það áður hér).
Guðbjörg (sem sér um matargerð og almenna umhirðu um fiskana, Dirk um allt annað)
Ég reyni að setja inn myndir (hef aldrei gert það áður hér).
Guðbjörg (sem sér um matargerð og almenna umhirðu um fiskana, Dirk um allt annað)
Re: Okkar fyrsta diskus-hrygning
Hér er mynd af búrinu og sést vel skilrúmið sem við útbjuggum úr bút af svona plasthúðaðri víragirðingu sem við saumuðum svo moskítónet á.
Re: Okkar fyrsta diskus-hrygning
Gæti verið gott að byrgja fyrir dælu inntakið með svona neti
Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is
Re: Okkar fyrsta diskus-hrygning
Takk fyrir ábendinguna. Við höfum sett net utan um dæluinntakið þegar ankistrur hrygna hjá okkur (í öðru búri), en þessi seiði eru svo agnalítil að við slökktum á báðum dælunum. Settum svo auka hitara og loftdælu. Núna virðast reyndar bara ca 1/3 eftir af seiðinunum, ca 12 af 35 sem ég taldi í gær. Þau eru aðeins farin að hreyfa sig frá glerinu, en aðstæður eru ekki þeim í hag. Foreldrarnir eru reynslulitlir og stressaðir (og við líka) og svo eru allt of margar leiðslur akkúrat þarna í búrinu. Svona eftir á að hyggja hefðum við átt að færa segulinn í hinn enda búrsins á meðan hrognin voru óklakin.
Guðbjörg (matmóðir fiskanna)
Guðbjörg (matmóðir fiskanna)
Re: Okkar fyrsta diskus-hrygning
Nú vorum við ekki vitni að klakinu, en vitið þið hvernig við getum kyngreint fiskana?
Takið svo eftir hversu stór og myndarlegur annar þeirra er (mont, mont).
Takið svo eftir hversu stór og myndarlegur annar þeirra er (mont, mont).
Re: Okkar fyrsta diskus-hrygning
Þá er ævintýrinu lokið, engin seiði lengur sýnileg.
Re: Okkar fyrsta diskus-hrygning
Sástu fiskanna éta seiðin? Getur ekki verið að þeir hafi sett þau á botninn?Dirk wrote:Þá er ævintýrinu lokið, engin seiði lengur sýnileg.
Re: Okkar fyrsta diskus-hrygning
Það er erfitt að kyngreina Discus, en hérna er info:Dirk wrote:Nú vorum við ekki vitni að klakinu, en vitið þið hvernig við getum kyngreint fiskana?
Takið svo eftir hversu stór og myndarlegur annar þeirra er (mont, mont).
http://www.aquariumlife.net/articles/ne ... lid/96.asp
Re: Okkar fyrsta diskus-hrygning
Um það hvort fiskarnir hafi sett seiðin á botnin (takk fyrir ábendinguna), þá erum við með sand í botninum og ég held að við höfum leitað gaumgæfilega allsstaðar áður en við settum dælurnar aftur í gang. Svo sýndist okkur líka á hegðun parsins að þau væru ekki að passa neitt og þau voru ekkert að slást, eins og þau gerðu á meðan hrognin og seiðin voru sýnileg.
Hvort þeir hafi étið seiðin, veit ég ekki.
Hvort þeir hafi étið seiðin, veit ég ekki.
Re: Okkar fyrsta diskus-hrygning
þau koma aftur með seiði.
þau eru bara óreynd og vita ekki hvað á að gera.
Eftir nokkrar æfingar þá kemur þetta hjá þeim.
þau eru bara óreynd og vita ekki hvað á að gera.
Eftir nokkrar æfingar þá kemur þetta hjá þeim.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Re: Okkar fyrsta diskus-hrygning
Þetta var svo sannanlega rétta hjá þér, í dag hrygndu þau aftur, en núna á miklu hentugri stað, lengst frá dæluinntökunum.Elma wrote:þau koma aftur með seiði.
þau eru bara óreynd og vita ekki hvað á að gera.
Eftir nokkrar æfingar þá kemur þetta hjá þeim.
Svo sýnist mér jafnvel að par númer tvö sé að undirbúa hrygingu; bara fjör!
Guðbjörg
Re: Okkar fyrsta diskus-hrygning
Nú er parið búið að hrygna þrisvar sinnum og ekkert gengur En þetta brölt hjá þeim hefur haft slæmar afleiðingar fyrir hið "andlega" jafnvægi í búrinu. Núna eru allir 6 diskusarnir úttaugaðir, fyrst voru mikil slagsmál, en núna eru þeir allir ein taugahrúga og éta varla. Fá ofsahræðslu-köst og missa jafnvel meðvitund stundum. Ekki gott ástand. Við erum að velta því fyrir okkur að taka parið úr stóra búrinu og setja það í ankistru-ræktnarbúrið okkar og sjá hvernig það gengur.
Annars er þessi taugaveiklun í diskus að verða dálítið þreytandi...
Annars er þessi taugaveiklun í diskus að verða dálítið þreytandi...
Re: Okkar fyrsta diskus-hrygning
diskusar eru svoddan taugahrúgur
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Re: Okkar fyrsta diskus-hrygning
Hefur orðið eitthvað framhald á hrygningum?
Ég held að nánst eina leiðin til að kyngreina fiskana sé við hrygningu, þið sjáið hver hrygnir og svo hænginn þegar hann er að skvetta úr sér yfir.
Ég held að nánst eina leiðin til að kyngreina fiskana sé við hrygningu, þið sjáið hver hrygnir og svo hænginn þegar hann er að skvetta úr sér yfir.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Re: Okkar fyrsta diskus-hrygning
Jæja, núna er diskussa parið búið að hrygna og hrygna síðan í byrjun 2011 (allavega mánaðarlega) og eru loksins 22 spræk, ca 1 cm stór seyði komin í eigið 80 l búri og þrífast vel Eftir nokkrar tilraunir með fóður, fundum við það rétta handa þeim þangað til þau eru orðin nógu stór til að njóta heimalagaða matarins okkar, þe nautshjörtu með fiski og spínati.
Það er reyndar mikil frjósemi í gangi hjá okkur: fyrir utan diskusanna hafa ankistrur, Jack Dempseys og skallar hryngt. Seyði skallanna komast aldrei á legg, líklega eru þau étin af kardinálatetrunum, sem geisla af heilbrigði
Varðandi kyn fiskanna, þá er núna ljóst að stærri fiskurinn er hængurinn.
Kv, Guðbjörg fiska-matmóðir

-
- Posts: 16
- Joined: 10 Aug 2012, 18:42
Re: Okkar fyrsta diskus-hrygning
má ég keupa diskus hja þér?
Re: Okkar fyrsta diskus-hrygning
flottasta ferskvatns fiskategundin að mínu mati:)