Er að leita mér að gullfiskum ódýrt
verða helst að vera kringum 7-8 cm.. því ég er núþegar með 3 10-15 cm gullfiska og langar svo afskaplega að bæta við nokkrum stykkjum..
hvorugan :/.. er að leita mér að svona gullfiskum sem finnast víða í tjörnum og þess háttar man ekki alveg hvað sú tegund heitir.. þeir eru a.m.k alls ekki feitlagnir, frekar grannir yfir allan búkinn en langir og með langt sporð.. og þetta er ekki koi ég veit það.. haha
veit e-r um hvaða gullfiskategund ég er að tala ?
Last edited by Gaby on 26 Jul 2010, 09:33, edited 1 time in total.
Gaby wrote:hvorugan :/.. er að leita mér að svona gullfiskum sem finnast víða í tjörnum og þess háttar man ekki alveg hvað sú tegund heitir.. þeir eru a.m.k alls ekki feitlagnir, frekar grannir yfir allan búkinn en langir og með langt sporð.. veit e-r um hvaða gullfiskategund ég er að tala ?
Þú ert líklega að meina Koi þeir eru stórir og eru oftast í tjörnum. En þeir þurfa held ég slatta stórt búr enda verða þeir mjög stórir.
Edit: Þar sem þú ert ekki að tala um Koi, þá hlýtur þetta að vera bara venjulegur gullfiskur.
Last edited by Sirius Black on 26 Jul 2010, 09:36, edited 2 times in total.
Gaby wrote:neibb ekki koi eru þeir ekki með svona "skegg" við munnvikið ?
Jú, þú ert þá bara að tala um venjulegan gullfisk, sem eru mjög ódýrir í búðum hérlendis yfirleitt.
tjaa ég get nú ekki sagt það.. ég fann gullfiska í mjög svipaðari stærð og ég vil hafa þá og þá kostuðu þeir tæplega 5000 kall stykkið.. vildi bara athuga hvort hægt væri að finna ódýrari hér
ef ekki, fer ég bara í fiskabúð
Veistu ekki hvað sú tegund heitir? Keypti báða mína gullfiska í dýragarðinum á undir 1000 kallinum allavega, er með einn normal með langan sporð og svo bollugullfisk.
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Gaby wrote:neibb ekki koi eru þeir ekki með svona "skegg" við munnvikið ?
Jú, þú ert þá bara að tala um venjulegan gullfisk, sem eru mjög ódýrir í búðum hérlendis yfirleitt.
tjaa ég get nú ekki sagt það.. ég fann gullfiska í mjög svipaðari stærð og ég vil hafa þá og þá kostuðu þeir tæplega 5000 kall stykkið.. vildi bara athuga hvort hægt væri að finna ódýrari hér
ef ekki, fer ég bara í fiskabúð
Það er eitthvað bogið við það, ég held að það sé ekki rétt, einhver ruglingur á verðmerkingu eða þetta hafa verið einhverjir voða fínir KOI.
Það er engin dýrabúð hér á landi sem selur VENJULEGA gullfiska á 5000kr.- Það er staðreynd.
jú ég get svo svarið það.. allavegana í dýraríkinu rétt hjá ikea í hfj.. þá kostaði stykkið 4900 og það var sagt skýrt og greinilega gullfiskarnir kosta 4900..
Það er til slatti af þessum fiskum í Trítlu og vel sæmilega stórum, ég þekki kvikindin því þeir komu frá mér. og meira af þeim væntanlegt í vetur. þegar að seiðin sem ég er með núna verða orðin nægilega stór.
Gaby wrote:Já þá er bara næst á dagskrá að tékka í trítlu
veistu c.a hvernig þeir líta út.. eru þeir flestir appelsínugulir og hvítir eða?
Var í Trítlu áðan og þeir eru appelsínugulir , hvítir eða svona gulir minnir mig. Ótrúlega flottir fannst mér. Er ekki hrifin af gullfiskum en hefði alveg verið til í einn appelsínugulan þarna, fannst þeir mjög flottir og eru ágætlega stórir.
úúúú.. jááá enda er planið að fara í Trítlu rúnt á morgun að tékka á þessum gullfiskum daaaaaauðvantar e-rja flotta og stóra gullfiska
en takk æðislega allir að hjálpa mér
spurning um að stofna þráð.. maður veit aldrei
Gaby wrote:jú ég get svo svarið það.. allavegana í dýraríkinu rétt hjá ikea í hfj.. þá kostaði stykkið 4900 og það var sagt skýrt og greinilega gullfiskarnir kosta 4900..
Samkvæmt þeim verðum sem ég fékk upp eru venjul. frá 1200 og upp og slör frá 1400-1800 ... ég skil ekki alveg verðlagninguna hjá þeim á gullfiska......

já en ég er að meina þessa sem þeir hafa í tjörninni í anddyrinu.. því gullfiskarnir mínir fyrir eru svona stórir ef ekki stærri.. og ég vildi fá gullfiska í svipaðari stærð.. og þá kostaði stykkið tæpan 5000 kall :/..