Page 1 of 6
					
				156.000.- kr. Asísk arowana
				Posted: 04 Mar 2008, 19:06
				by Vargur
				156.000.- króna Arowanan er kominn með framtíðarheimili.

Búrið eftir að það var gert klárt í gærkvöldi.

156.000 kallinn kominn í það.

Þessi longnose gar er líka í búrinu og einnig tveir asian up-side down kattfiskar, tveir stórir Sae, nokkrir pleggar og brúskar.

Grjótinu var skipt út fyrir rætur.

Einhverskonar Javaburkni á trjárót.
 
			
					
				
				Posted: 04 Mar 2008, 19:08
				by Inga Þóran
				ó mæ 
 
 
til hamingju með hana 

  þetta er svakalega flott!
 
			
					
				
				Posted: 04 Mar 2008, 19:09
				by Agnes Helga
				vá, svoldið dýr fiskur, þú hlýtur að tryggja hann!! svo þú missir ekki þennan pening algjörlega ef hann drepst! 
 
 
En flott er hún, hvað er hun stór?
Til hamingju!
 
			
					
				
				Posted: 04 Mar 2008, 19:30
				by JinX
				til lukku með þetta... magnaður fiskur þarna á ferð, ég sá hann reyndar í búðinni og hélt bara að þetta væri prentvilla þetta verð og flissaði að þessu, svelgdist svo á kaffinu mínu þegar ég las hér að þetta væri rétt verð  

 
			
					
				
				Posted: 04 Mar 2008, 19:42
				by Gudmundur
				ég vona að þú hafir gert Kidda tilboð sem hann gat ekki hafnað
			 
			
					
				
				Posted: 04 Mar 2008, 19:51
				by pípó
				Ertu ekki að grínast  

 
			
					
				
				Posted: 04 Mar 2008, 19:58
				by Ólafur
				Til hamingju Hlynur með eðalgripin 
 
 
Megi henni farnast vel hjá þér og lifa vel og lengi
 
			
					
				
				Posted: 04 Mar 2008, 20:00
				by keli
				Til hamingju með þetta vargur, líst vel á þetta kvikindi! Hrúgaðu nú í hana rækjum og krill, þá verður rauði liturinn geggjaður. Ég var búinn að vera að leita að krill í einhvern tíma og fann hann í dýraríkinu, nýju búðinni. Rándýr fjandi, en gott að gefa með, þetta dregur rauða litinn alveg fram 

 
			
					
				
				Posted: 04 Mar 2008, 20:09
				by Squinchy
				Til hamingju með gripinn 

 á síðan að skipta út báðum 400L fyrir 1000 long þegar hún stækkar 

 hehe
 
			
					
				
				Posted: 04 Mar 2008, 20:16
				by Vargur
				Gott að heyra með krillinn. ég hélt að hann væri ekki til hér.
Það er ekki á planinu að tryggja gripinn en væri gaman að kanna viðbrögðin hjá tryggingafélaginu.
Ég gleymdi að taka fram að í búrinu er líka tæplega 20 cm gullfallegur black ghost hnífafiskur, nú þaf ég að reyna að mynda hann.
			 
			
					
				
				Posted: 04 Mar 2008, 20:19
				by pípó
				Þegar ég var að skoða gripinn í búðinni og Gunni sagði að hann væri seldur þá grunaði mig ekki að þú værir sökudólgurinn,en til lukku með gripinn  

 
			
					
				
				Posted: 04 Mar 2008, 20:28
				by Agnes Helga
				hehe, sumir hundar sem kosta um 150.000 eru tryggðir, afhverju ekki fiskinn? 

 
			
					
				
				Posted: 04 Mar 2008, 21:21
				by Ásta
				 
 
Maður verður nú að fá að koma og kíkja á þetta við tækifæri, ég sá hana aldrei í búðinni.
 
			
					
				
				Posted: 04 Mar 2008, 21:23
				by ulli
				sælir...
til hamingju með dýrið.hvernig er það er ómögulegt að fjölga þeim í búrum?
ps þarftu ekki að fara að losna við rtc  
 
 
og er hún örmerkt?
 
			
					
				
				Posted: 04 Mar 2008, 21:45
				by Vargur
				Ég held að það sé alveg ómögulegt að fjölga þeim öðruvísi en í stórum tjörnum.
Já, hún er örmerkt og alles, eins og í X-files bara.  

 
			
					
				
				Posted: 04 Mar 2008, 21:52
				by Jakob
				Vargur wrote:Ég held að það sé alveg ómögulegt að fjölga þeim öðruvísi en í stórum tjörnum.
Já, hún er örmerkt og alles, eins og í X-files bara.  

 
Allt hægt í nógu miklu plássi 

 
			
					
				
				Posted: 04 Mar 2008, 22:01
				by lilja karen
				til hamingu með fiskinn!!
álveg gullfallegur en smá í dýrarikantinum  
 
 
er veskið ekki orðið aðeins léttara  

 
			
					
				
				Posted: 04 Mar 2008, 22:51
				by jeg
				Til hamingju með rándýra dýrið  
 
 
Vonandi gengur allt vel.
Já endilega að tékka á tryggingu bara til að heyra viðbrögðin  

 
			
					
				
				Posted: 04 Mar 2008, 23:29
				by mixer
				TIL HAMINGJU Vargur !!!!!!!!! og svo bara smá pipar og örltila sítrónu þegar hún er orðin nógu stór  

 
			
					
				
				Posted: 04 Mar 2008, 23:31
				by Andri Pogo
				nohh til hamingju með þennan glæsifisk  
 
 
er þetta ekki örugglega Scleropages aureus ?
 
			
					
				
				Posted: 05 Mar 2008, 00:13
				by Amything
				Nau nau til hamingju!
Þetta er baraaaa flott.
Fékkstu þennan Gohst Knife nokkuð í Dýragarðinum? Hvenær þá? Kannski minn fyrrverandi.
			 
			
					
				
				Posted: 05 Mar 2008, 00:22
				by Vargur
				Amything wrote:
Fékkstu þennan Gohst Knife nokkuð í Dýragarðinum? Hvenær þá? Kannski minn fyrrverandi.
skamm, svona stóra Black ghost fer maður ekki með í búðina heldur auglýsir hér á spjallinu en nei, þennan er ég búinn að eiga síðan hann var bara lítill draugur.
 
			
					
				
				Posted: 05 Mar 2008, 09:19
				by Pippi
				Til lukku félagi með þessa glæsilegu Arowana.
			 
			
					
				
				Posted: 05 Mar 2008, 11:09
				by Brynja
				Ég er orðlaus  
 
 
Til hamingju, gangi þér vel með hana!  
 
 
Megi hún lifa lengi fyrir ALLAN peninginn.  

 
			
					
				
				Posted: 05 Mar 2008, 13:24
				by thunderwolf
				til hamingju með gripinn Hlynur, hann er mjög flottur og á eftir að vera flottari, ég er einmitt búinn að lesa bókin um þessari fiska og fræða aðeins um þá, þetta er magnaður og hjátrúin í kringum hann susss ... hann á eftir að lifa í langa tíma, ég held að þú verður orðinn AFI áður enn fiskur deyr. ég get skrifað bókin fyrir þig í disk ef þú á hann ekki...
			 
			
					
				
				Posted: 05 Mar 2008, 20:19
				by Mozart,Felix og Rocky
				Til hamingju með gripinn 

 Hann er ekkert smá flottur 

 
			
					
				
				Posted: 05 Mar 2008, 20:55
				by Ari
				
			 
			
					
				
				Posted: 05 Mar 2008, 20:58
				by Jakob
				Hvað kostaði longnose 
 
 
Svaka flott hjá þér og ég er að deyja úr öfund 

 
			
					
				
				Posted: 05 Mar 2008, 22:45
				by Vargur
				Longnose fékk ég að gjöf frá góðum manni. 
Ég var að monta mig af drottningunni áðan og tók eftir því að sporðurinn er orðinn ansi tættur á henni en upside-down kattfiskarnir hafa verið að angra hana aðeins, sá stærri er um 20 cm og er ekkert hrifinn að Arowönunni, ætli ég verði ekki að hafa kattfiskana upp á eftir.
...kannski maður sjái samt bara til og athugi hvað Arowana þolir.  

 
			
					
				
				Posted: 05 Mar 2008, 22:56
				by Ásta
				Sjá hvað Arrownan þolir!!
Hlynur, þú tekur þessa Upside-down úr búrinu áður en þeir ganga frá henni. Maður tekur ekki svona fúla sénsa með hundraðfimmtíuogsexþúsundkróna fisk.