ca. 600ltr. búr í smíðum

Búrasmíði, bakgrunnar, lok osf

Moderators: Vargur, keli, Squinchy

User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

ca. 600ltr. búr í smíðum

Post by Sven »

Nú er þetta verkefni loksins komið á skrið hjá mér. Einhverjir muna kanski eftir vangaveltum um að smíða mér opið búr (með aðstoð vanra manna) á þessum þræði. http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php ... sc&start=0

Kominn svolítið í gang með skápinn og er að velta fyrir mér að fara að panta glerið fljótlega.

Image

Image
Efri ramminn, sem fer undir búrið.

Image
Neðri ramminn, með stoðunum.

Image
Passaði sem betur fer allt saman, beint og fínt. Það er reyndar örlítill halli á gólfinu frá vegginum, en ég held ég þurfi ekki að stressa mig á því, ekki einu sinni það mikill að loftbólan í hallamálinu fari út fyrir strikið, rétt snertir það.

Síðan bæti ég lóðréttum stoðum á milli rammanna á sama stað og láréttu stoðirnar eru inni í römmunum og ætla mér svo að festa lamir þar á.
Ég ætla að hafa svona ramma á skápnum sem verður úr eik og kemur á milli hurðanna líka (sem verða 3, eða mögulega 6, ef ég nota 2 í hvert bil)
En svo ætla ég að hafa hurðirnar og restina af skápnum úr einhverju hvítu efni. Hvað haldiði að sé best í þeim efnum?
Ég var að láta mér detta í hug að láta bara einhverja húsgagnaverslun smíða hurðirnar fyrir mig úr einhverju plastlögðu efni og biðja þá að sníða svo í restina af skápnum úr sama efni. Ætli það yrði dýrt spaug? Ætli sé ódýrara að fá bara mdf, saga það niður í rétta stærð og spreyja það svo hvítt? Allar tillögur varðandi þetta eru vel þegnar.
Ég ætla að hafa eikarrammann um 5cm breiðann (hjafn breiðan og þykktin á timbrinu), til þess hafði ég hugsað mér að ódýrasta lausnin væri jafnvel að reyna að fá gegnheilt eikarparket og saga það í rétta stærð. Gallinn er reyndar sá að ég fæ varla gegnheilt eikarborð sem er jafn langt og skápurinn, 2m.Örugglega rándýrt að láta sérsmíða svona lista?
Reyni svo að pósta framfrörum af smíðinni reglulega.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Glæsilegt lýst vel á þetta, 3 hurðir eru málið finnst mér, örugglega hægt að fá svoleiðis í einhverjum innréttinga verslunum sem myndi passa eða láta útbúa í þetta
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

já, ég held að það yrði svolítið crowded að hafa 6 hurðir á þessu.
Er að hugsa um að fara í björninn og fá verðhugmynd í þetta hjá þeim.
Finnur
Posts: 12
Joined: 13 Dec 2007, 20:46
Location: Reykjavík

Post by Finnur »

Það er hægt að fá hvítar plasthúðaðar spónaplötur í byko og húsasmiðjunni í ýmsum stærðum.
Held að þeir kalli það plasthúðað hilluefni.
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

ég keypti eldhúsinnréttingu fyrir nokkrum árum og hélt þá að björninn væri málið.... ég keypti innréttingu með stöðluðu og sérsmíðuðu í axis og það kom betur út en í birninum.... bara að benda þér á að fá tilboð á fleiri stöðum! :wink:
svavarm
Posts: 50
Joined: 07 Jan 2009, 23:27

Post by svavarm »

Hvernig botn ætlarðu að hafa á búrinu? PVC eða gler?
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Botninn verður úr gleri, með ca. 5 götum fyrir gegnumtök.

Takk fyrir að benda mér á þetta Guðrún, heyri þá líka í axis.

Kíki kanski líka fyrst á þetta hilluefni í byko, er bara hræddur um að ná ekki að ganga frá sárunum eftir að hafa sagað það til nógu snyrtilega. Það borgar sig þó e.t.v. að prófa að gera það fyrst, væntanlega talsvert ódyrara en að áta gera þetta allt fyrir sig.
diddi
Posts: 663
Joined: 16 Mar 2008, 23:49
Location: Reykjavík
Contact:

Post by diddi »

þetta er spennandi verkefni :góður:
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Er farinn að hallast að því að nota mdf í þetta, fékk tilboð í þetta frá einhverjum eldhúshúsgagnaframleiðenda, um 60. þús.

Hvernig er samt að mála mdf-ið þannig að yfirborðið sé alveg slétt og fínt. Maður þarf víst að nota sérstakann grunn á þetta er það ekki?
Hefur einhver reynslu af því að mála/lakka mdf?
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

plötunnar á skápnum hjá mér eru mdf.ellveg slétt.

er yfir borðið á mdf ekki slétt?mig minti það.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

jú það er það. Bara spurnin hvernig er best að mála/lakka þetta hvítt þannig að það myndist ekki rákir, ætli maður geti það einhvernvegin án þess að sprauta/spreyja það?
Ég er ekki mikill málari, spennandi að sjá hvernig mér á eftir að takast með það?
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

sprauta eða rúlla myndi ég halda.
svavarm
Posts: 50
Joined: 07 Jan 2009, 23:27

Post by svavarm »

Hvað ætlarðu að hafa þykkt gler í þessu? Hvernig kítti muntu nota?

Ég er einmitt búinn að vera skoða svona rammalaus búr síðustu vikur og næsta búrið mitt verður klárlega með þessu sniði, stærsta búrið sem ég fann var 180 gallon (680 lítrar) og var tryllt flott :)
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Ég verð með 19mm gler í búrinu, heilmiklar pælingar um það á þræðinum sem var linkað á í fyrsta póstinum hér að ofan.
Ætla svo að hafa framhliðina úr starphire gleri. Nota svart kítti.

Ulli, væri þá málið að rúlla þetta með svamprúllu?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ein pæling með hallann á gólfinu. Þar sem þetta er opið búr og enginn rammi, þá getur hallinn orðið frekar greinilegur þegar maður horfir á vatnsyfirborðið og búrið sjálft úr fjarlægð. Líklega gott að jafna hallann út svo þetta fari ekki í taugarnar á þér seinna meir :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Finnur
Posts: 12
Joined: 13 Dec 2007, 20:46
Location: Reykjavík

Post by Finnur »

Þegar ég málaði skápinn minn fór ég í málningarbúð og hélt að svamprúllur væru toppurinn, afgreiðslumaðurinn hló að mér og lét mig hafa einhverskonar microfiber rúllu.
Fann samt alveg út að maður þarf að hafa nokkuð góða aðstöðu til að þetta verði rennislétt. Málningin saug í sig ryk af stofugólfinu þessa nokkra daga sem það tók mig að mála.
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

Finnur wrote:Þegar ég málaði skápinn minn fór ég í málningarbúð og hélt að svamprúllur væru toppurinn, afgreiðslumaðurinn hló að mér og lét mig hafa einhverskonar microfiber rúllu.
Fann samt alveg út að maður þarf að hafa nokkuð góða aðstöðu til að þetta verði rennislétt. Málningin saug í sig ryk af stofugólfinu þessa nokkra daga sem það tók mig að mála.

spurning um að ryksuga áður þá? :D
svavarm
Posts: 50
Joined: 07 Jan 2009, 23:27

Post by svavarm »

Sven wrote:Ég verð með 19mm gler í búrinu, heilmiklar pælingar um það á þræðinum sem var linkað á í fyrsta póstinum hér að ofan.
Ætla svo að hafa framhliðina úr starphire gleri. Nota svart kítti.
Jamm las hann, þessvegna spurði ég. Varstu búinn að sjá http://www.barrreport.com/general-plant ... s-far.html og http://www.plantedtank.net/forums/diy/2 ... -tank.html ?

Í seinni þræðinum býr hann til 75g búr á svipaðann hátt og þú ert að fara gera og notar eitthvað venjulegt byko kítti og hann byrjar að leka þegar hann er að prufa að setja vatn í hann. Ákveður svo að laga þá hlið sem lekur með einhverju ofurkítti sem fiskabúrsframleiðendur nota (GE RTV108 segir hann að það heiti) en lagar ekki hinar. Síðan eftir ár í notkun, eftir að hann er búinn að vera þrífa þörung af bakhliðinni losnar um kíttið og 300L af vatni fara á gólfið, úbbs. Það er annar þráður, sem er linkað í efst, þar sem er farið í gegnum mistökin. Fín lesning ef þú ert ekki núþegar búinn að skoða þetta allt saman.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Ég skil, þakka ábendinguna. Annars var ég búinn að lesa þráðinn af plantedtank. Stórsniður gaur þessi Scolley, með marga skemmtilega þræði þarna.

Þetta búr hjá Tom Barr er alger snilld. Skil samt ekki eitt, hann er með hatchet fiska í svona opnu búri, ég hélt að þetta væru algerir stökkvarar :shock:

Varðandi tegundina af kíttinu, þá er ég ekki viss með það, ætlaði að ákveða það í samráði við einhvern vanari mann, sennilega Guðmund, geri ráð fyrir að hann þekki þetta sundur og saman. Það eina sem ég treysi mér ekki í að gera sjálfun er einmitt kíttunin. Þessi þráður sem þú linkaðir á er m.a. ábyrgur fyrir því :)
User avatar
drepa
Posts: 136
Joined: 16 Feb 2009, 09:46
Location: Hafnarfjörður 220

Post by drepa »

með hurðarnar , gætir reynt að díla við bílasprautara, og setja alvöru lakk á þetta , láta hann sprauta filler sparstli á þetta og renna yfir þetta og svo sprauta og lakka.

veit að þegar dufthúðunn var að fara byrja þá talaði ég við gæjann sem var með það og hann sagði að það eru til tæki til að poly húða mdf við, fannst það doldið flott , og hann ætlaði að vera með þau tæki , enn svo fór hann bara á hausinn áður enn hann opnaði rekstur almennilega, svo að ég veit ekkert um hvort það sé hægt hér á landi.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Held að hallinn sé það lítill að maður taki varla eftir þessu. Rétt tók eftir þessu með gamla búrið sem var á sama stað og það var ekki það mikið að það færi í taugarnar á mér.

Já, ég er svolítið nervus með að mála/lakka þetta sjálfur, vill síður hafa þetta subbulegt. Kanski að maður reyni að fá einhvern málara til að lakka þetta bara, eða bílasprautara eins og þú leggur til drepa. Verð allavega að fara að liggja í símanum
Alli&Krissi
Posts: 331
Joined: 28 Oct 2008, 16:21
Location: rvk

Post by Alli&Krissi »

það væri best að grunna þetta og síðan mála er í húsasmiðinum í fb:D
500L,60L,30L,25L.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Smá update, get ekki látið drepa rústa mér alveg í DIY update-um, þó ég eigi nú talsvert langt í land með að standa honum jafnfætis í þessum efnum.

Fékk gegnheila eikarparketsafganga á slikk hjá parketsölunni, hélt ég hefði fengið alveg nóg, en þarf sennilega að sleppa eikarlistunum aftan á skápnum, ekki að það skipti miklu máli. Sagaði þetta svo niður í rétta stærð, tók sinn tíma (var mjög varkár við þetta eftir að ég rak 3 putta í borðsögina sem ég gerði þetta í fyrir um 2 mánuðum við parketlagningar, var nokkuð heppinn að halda þeim öllum).
Image

Pússaði svo herlegheitin og bar olíu á listana, tímafrekt að dunda sér við þetta með takmarkaðan tækjabúnað.
Image

Image

Svo koma hvítar sprautulakkaðar mdf plötur á milli eikarlistana. Vona að ég geti farið að panta það núna eftir helgi. Er að bíða eftir tilboði í að sprauta þetta.

Fékk í vikunni loc-line slöngurnar sem ég mun svo tengja beint í bulkheadana í botninum og fela í kring um rætur og annað drasl (return úr tunnudælunum). Er annars mjög ánægður með dílinn á þessu, pantaði frá www.savko.com, mjög fín þjónusta, rukkuðu mig bara um þann sendingarkostnað sem þeir borguðu og svo kom upp úr krafsinu að þetta er tollfrjálst, þannig að það var bara vaskur og tollafgreiðslugjald af þessu.
Image

Strax og ég er búinn að fá mdf-ið og senda það í sprautulökkun panta ég glerið í búrið. Er kominn á þá niðurstöðu að panta 15mm gler í þetta, setja það upp án þess að brace-a það. Ef löngu hliðarnar fara svo að svigna eitthvað af ráði, þá tæmi ég búrið bara og eurobrace-a það. 19mm glerið er alveg tvöfalt dýrara en 15mm :x
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Þetta er farið að looka mjög vel :), snilld með lock-Line, nýti mér þetta í næsta DIY búr hjá mér
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Tókstu bulkheadda frá savko líka? Hvað kostaði locline total?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Nei, ég tek bulkheadana frá aquaristic.net loc-lineið kostaði alls um 15 þús hingað komið, það var reyndar smá meira en kom fram á myndinni og smá pvc og fittings með í því. Bara loc-lineið hefur sennilega verið svona 11 þús.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Vá það er ekkert smá verð á þessu
Kv. Jökull
Dyralif.is
diddi
Posts: 663
Joined: 16 Mar 2008, 23:49
Location: Reykjavík
Contact:

Post by diddi »

þú segjist vera fara hvítlakka mdf....afhverju ekki bara að spónleggja með eik í stíl við listana ?
User avatar
drepa
Posts: 136
Joined: 16 Feb 2009, 09:46
Location: Hafnarfjörður 220

Post by drepa »

var einmitt að hugsa það sama, gæti komið alveg vel flott út, og ábyggilega ekkert sérstaklega dýrara , u know i know a guy ;P

btw mjög flott hjá þér , gott að þú ert byrjaður að spýta í lófana útaf mér , hehe
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Ég hafði hugsað þetta með eikina líka. Vill samt ekki fara overboard í eikarmálunum. Parketið er líka eik, eldhúsborðið og sófaborðið í stofunni. Ég er hræddur um að mér fari að líða eins og í sumarbústað ef ég kem með meiri eik inn á heimilið.
Fyrst ætlaði ég ekki að hafa neina eik í þessu, bara allt spratulakkað ADA style. En ákvað svo að hafa listana til að tengja þetta svolítið við gólfið.
Post Reply