Byrjun frá grunni! Vantar ráðleggingar

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
maggik
Posts: 13
Joined: 29 Jan 2008, 23:07

Byrjun frá grunni! Vantar ráðleggingar

Post by maggik »

Sælt verið fólkið.
Ég er væntanlega að fara að fjárfesta í 220l búri, ég hef ekki verið með fiska í mörg ár :( og ætla að byrja aftur og reyna að gera eitthvað út þessu.

Mig vantar hjálp um val á fiskum, ég er orðinn frekar riðgaður í fiskategundum og þessháttar :oops:

Það sem ég er að leita að eru fallegir fiskar(að sjálfsögðu) ég er að hugsa um að hafa fáa en þokkalega stóra (miðað við búrstærð).
Er að leita eftir þokkalega lífseigum og þægilegum fiskum.

Ég bý útá landi þannig að ég hleip ekki beinlínis útí búð til þess að kaupa mér fiska :) þannig að ég ætla að vera buinn að undirbúamig vel og skoða allt áður en ég ákveð mig.

Endilega nefnið mér einhverjar skemmtilegar tegundir sem þið mælið með og ekki væri verra að senda link með myndum :oops:

-----------

Svo er það varðandi plöntur, eitthvað sem ég veit mjöööög lítið um, held að ég hafi lesið einhversstaðar hér að menn hefðu pantað plöntur í vagoomplasti að utan í gegnum netið.
Það væri einnig æðislegt ef þið gætuð bent mér á einhverjar fallegar og einfaldar plöntur til þess að hafa með :)


Allir að láta í sér heyra :)

Kveðja.
Magnús Karl.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

220 lítra búr bíður upp á nokkra kosti. Það er erfitt að mæla með einhverju sérstöku, best er að þú finnir í hvaða fiskum áhuginn liggur og vinnir út frá því með okkar hjálp. Það hljóta að vera einhverjir fiskar sem heilla þig meira en aðrir.
Það er gott að lesa sem mest hér á spjallinu og td http://fiskabur.is/myndir_vefur/Fiskar/ ... lokkar.htm

Ef ég ætti að mæla með einhverju þá væru það afrískar mbuna sikliður, þær eru litmiklar, harðgerðar og einstaklega fjörugar.

Plöntur er best að kaupa í verslunum hér á landi, það er ekki stórmál að fá þær sendar.
Í gróðurhorninu hér á spjallinu ættir þú að finna helstu grunnupplýsingar um gróðurbúr.
maggik
Posts: 13
Joined: 29 Jan 2008, 23:07

Post by maggik »

Hverstu stórt þarf búr að vera til þess að halda nokkra piranas?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Þú getur haft 2-4 fullvaxin stykki í 220l..
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
maggik
Posts: 13
Joined: 29 Jan 2008, 23:07

Post by maggik »

Gæti ég haft
2-3x Pirana
1-2 Ropefish
Saman? verður ekki bara fætingur úr því :/?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

piranha étur ropefish fyrr en seinna.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply