Hvað éta rækjur?

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
SandraRut
Posts: 118
Joined: 29 May 2008, 16:42

Hvað éta rækjur?

Post by SandraRut »

Ég er með 4 gráar pínulitlar rækjur (veit ekki tegundina) og eina rauða&hvíta rækju. Held að hún sé Red Crystal.

Ég er með þær saman í 16lítra búri, hvað í ósköpunum á ég að gefa þeim að éta.

Ég fékk þær í Dýragarðinum, en þeir svara mér ekki svo ég er í litlum vandræðum :-)
Sandra Rut
Tveir hundar
96lítra Blandað fiskabúr
84lítra Humrabúr
16lítra aukabúr
User avatar
sirarni
Posts: 624
Joined: 18 Jan 2009, 17:46
Location: Kópavogur

Post by sirarni »

Þær éta svona botntöflur sem fast i dýrabúðum , fóður leifar , þörung og eitthvað annars veit ég ekki kannski gúrku eða eitthvað annað grænmeti.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

best er að hafa rækjur í gróðurbúri og þá þarf varla að gefa þeim þar sem þær éta alls kyns þörung sem vex á gróðrinum

næst þegar þú kaupir fisk eða vatnadýr
vertu þá búin að kynna þér hvaða aðstæður og fóður þú þarft að hafa
og spyrja áður en þú kaupir ef þú veist ekkert um dýrið
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Það er líka til sérstakur matur fyrir þær, fæst amk í dýragarðinum.

Annars éta þær eiginlega allt.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

ég þarf yfirleitt að veiða botntöflurnar myglaðar upp úr rækjubúrinu mínu, þær éta bara þörunginn
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég gef reyndar rækjunum ekkert sérstakt hjá mér, þær fá bara korn og korn sem gúbbarnir éta ekki. Það þarf líklega ekkert að gefa rækjum sérstaklega nema þær séu mjög margar í búrinu.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
SandraRut
Posts: 118
Joined: 29 May 2008, 16:42

Post by SandraRut »

Takk :wink:
Sandra Rut
Tveir hundar
96lítra Blandað fiskabúr
84lítra Humrabúr
16lítra aukabúr
Post Reply