passar saman?

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
M
Posts: 34
Joined: 23 May 2009, 23:23

passar saman?

Post by M »

2 discusar, 2 bardagafiskar (betta splendens) , neon tetrur og kattfiska botnsugur ( er ekki búin að ákveða hvaða ) í 125 L búr?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Nei. óþarflega lítið búr fyrir discusa og bardagafiskar geta bara verið stakir, ekki fleiri en einn í sama búri.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
M
Posts: 34
Joined: 23 May 2009, 23:23

Post by M »

oooo :(((

En bara discusa og neon fiskana?


og rækju... kæró finnst það alveg ofboðslega spennandi...
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Já hugsanlega, en 2 discusar eru afar slæm tala. Best væri 3, en búrið er bara of lítið fyrir það. 2 discusar og þá eru 90% líkur á því að einn böggi hinn í hel. Og einn discus í búri er hræddur discus í búri.

Ég myndi frekar skoða að setja skala, neon og rækjur (ath þó að eftir rækjutegund þá eru skalar og discusar líklegir til að drepa þær)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
M
Posts: 34
Joined: 23 May 2009, 23:23

Post by M »

ég er bara að míga í mig mig langar svo í discus... þeir eru svo ógeðslega flottir í litinn!!

átt alveg marga skala.. Átti alveg heljarinnar búr þegar ég val lítil alveg 200-300 L.... og milljón tegundir af fiskum... átti það frá svona 9-12 ára aldri og hugsaði sjálf um það síðan varð ég gelgja og allt svona datt upp fyrir svo það endaði tómt útí bílskúr ásamt öllu tilheyrandi(2dælum, hitara, sandi, loki með ljósi, standi... öllu!!) .. síðan tók pabbi sig til einn daginn þegar ég var og GAF!!! allt í dýrabúð sem var til þá en farin á hausinn í dag...

En ég er mjög ryðguð og er að rifja allt saman upp núna og er að verða búin að lesa alla þræði hérna á síðunni...



Hvað heldurðu að ég þurfi stórt búr fyrir 4 discusa (aldrei skal ég nota oddatölur!) rækju (var að spá bara svona rauða rækju) og svo þá nokkra neon... (var búin að heyra að þeir róuðu discusana)
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Rækjurnar munu líklegast hverfa ofan í discusana, reyndi hjá mér með skala og ekkert lifði, þetta er algjört lostæti, rækjur geta liggur við bara verið með neon tetrum eða álíka í búri því að þær eru svo litlar að þær komast upp í flesta fiska og hvaða fiskur fúlsar við ferskri rækjusteik :P.
Þarft örugglega um 250L búr fyrir 4 discusa, eða stærri, er ekki svo vel að mér í því hvað discusar þurfa mikið pláss en ef ég tek t.d skalana sem eru svipaðir og discusar þá myndi ég ekki setja 4 skala í minna en 250L búr, ég er með 3 skala (tvo stóra og einn minni) í 180L búri og mér finnst þeir mættu fá stærra pláss hjá mér :) og á næstu árum munu þeir fara í 400L búrið mitt :).
200L Green terror búr
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Rauðar rækjur verða étnar af discusum.

50-60 lítrar per fullvaxinn discus er ágætis þumalputtaregla, og þá er hægt að hafa smá fiska með, t.d. ryksugur og tetrur.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
M
Posts: 34
Joined: 23 May 2009, 23:23

Post by M »

hvar er best að kaupa discusana?

í búðum eða af einhverjum hérna á spjallinu?
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Post by malawi feðgar »

trítla hefur verið að selja discusa sem eru ræktaðir á Sauðárkróki
Held að þeir séu ódýrastir.
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

malawi wrote:trítla hefur verið að selja discusa sem eru ræktaðir á Sauðárkróki
Held að þeir séu ódýrastir.
Fiskó voru held ég með eitthvað frá sama ræktanda líka.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

vargurinn er líka með einhverja diskusa :P
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
M
Posts: 34
Joined: 23 May 2009, 23:23

Post by M »

er bara orðin pínu hrædd við discusana...... er búin að vera að hugsa og kannski er ég að hoppa í djúpulögina of snemma, er orðin viss um að ég klúðri þeim og þeir drepist hjá mér.... spurning um að vinna sig aðeins upp og byrja á skölum, myndu þeir ekki éta gullfiskana mína...


búin að vera að spá hvort ég eigi að fá mér bara stórt búr undir gullfiska og aðra rólega fiska....
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Hvorki Diskusar né Skalar passa með gullfiskum. Gullfiskar eru kaldavatnsfiskar og vilja vera í 18° til 23°. Á meðan skalar vilja vera í 24-28°, diskusar vilja vera í 26-28°.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
M
Posts: 34
Joined: 23 May 2009, 23:23

Post by M »

æjá auðvitað... get ekki ákveðið hvað ég á að gera... ætla að byrja held ég á skölum og einhveju í þá áttina... ef ég gat það þegar ég var lítil ætti ég nú að geta það núna..... gullfiska krúttin fá þá bara að halda sínu búri :))
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Hljómar eins og gott byrjunarplan :) Svo eftir nokkra mánuði bætirðu við stærra búri og færð þér discusa!
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
M
Posts: 34
Joined: 23 May 2009, 23:23

Post by M »

hvaða fiskum mynduði mæla með skölunum... hef yndi af öllu litríku....
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

M wrote:hvaða fiskum mynduði mæla með skölunum... hef yndi af öllu litríku....
Ég er t.d með nokkrar tegundir af börbum hjá mér, t.d gullbarbar og roðabarbar (á þá reyndar ekki) eru örugglega flottir með (svona gult og rautt). Svo er ég með fimmbandabarba með mínum skölum og það kemur vel út, en held að það sé stundum erfitt að fá þá, en gullbarbana er held ég auðveldlega hægt að fá og þeir eru alveg svakalega skemmtilegir og mikil átvögl :P. Hef prófað neon tetrur en meirihlutinn var étinn fljótlega :P
200L Green terror búr
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

rummy nose tetrur, congo tetrur, sverðdragarar, platy, neon eða cardinal tetrur, svart tetrur, svart neon tetrur, par af ramirezi, venusarfiskar....
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Post Reply