Verðlagning á notuðu

Hér getur þú auglýst til sölu eða óskað eftir fiskum og fiskavörum

Moderators: Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
biggihb
Posts: 222
Joined: 08 Oct 2006, 18:04
Location: kópavogur
Contact:

Verðlagning á notuðu

Post by biggihb »

Sæ öll

Ég ætla að taka mér pásu frá fiskunum í bili og ætla að selja allt heila klabbið ég er aðeins að vandræðast með verðlangningu á því hvernig á ég að meta það sem ég á til sölu ?

Á ég bara að byðja um tilboð í allan pakkann eða selja allt stakt og þá á hvaða verðum til að vera sanngjarn á þess að tapa þó sjálfur á þessu.

Ég er úti á sjó og á eftir að fara yfir hvað þetta er nákvæmlega en svona til hugmyndar er þetta

180L Jhonn Deer fiskabúr

10-15 Yello Lab
10 fullvaxnir brúsknefjar sem hafa einhverjir hrygnt
20-30 Demansoni

Rena 2þrepa tunnudæla
Öflug loftdæla nýleg
100w hitari nýlegur
bakgrunnur
flottir steinar, er að tala um einhver tugi kg líklega 20-30
stór rót
sýrumælistikur
og margt fl.
Semsagt allt til að byrja með Malvíbúr :o)

Endilega komið með smá skoðun annaðhvort hér eða í pm

kv.Birgir
Lífið er ekki bara salltfiskur
biggihb
Posts: 222
Joined: 08 Oct 2006, 18:04
Location: kópavogur
Contact:

Post by biggihb »

Jæja margir vilja kaupa en engin kemur með verðhugmyndir LoL.
Ég kem í land eftir viku og set þetta þá á sölu.

Endilega komið samt með verðhugmyndir.

Kv.Birgir
Lífið er ekki bara salltfiskur
User avatar
Fanginn
Posts: 406
Joined: 27 Jan 2008, 17:12

Post by Fanginn »

Málið er að ég held að þetta sé verðmætara heldur en fólk er tilbúið til að borga.

Mundi setja á þetta ca. 70 þúsund. Þá er kannski einhver möguleiki að þú losnir við þetta. :-)
jæajæa
biggihb
Posts: 222
Joined: 08 Oct 2006, 18:04
Location: kópavogur
Contact:

Post by biggihb »

þá borgar sig að selja þetta í sitthvoru lagi 10 stk. brúsknefjar fullorðnir á 2000 stk er 20.000kr
demansoni 20 til 30 stk á 1000kr stk 20-30þ
búrið eitt og sér 30-40þúsun
núbb þá er ég komin vel yfir 70 þúsund og allt annað sem ég sel er þá aukapeningur miðað við að selja í einu lagi.

Held miðað við þetta að ég selji fiskana fyrst og svo smám saman restina :-))
Lífið er ekki bara salltfiskur
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Málið er líka að fæstir eru til í að taka búr með fiskum. Flestir hafa sínar hugmyndir hvernig búrið á að vera og því er lítið stuð að fá fullbúið búr :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply