Fiskabúr með innbyggðri dælu

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Fiskabúr með innbyggðri dælu

Post by Anna »

Ég keypti notað fiskabúr, bara 60 l búr sem ég ætla að leyfa skalaseiðunum að vaxa í - ef þau komast á legg.

Ég er nú ekki búin að starta því ennþá, en var að spá í þessari dælu... ég finn EKKERT um það frá hvaða framleiðanda þessi dæla gæti hugsanlega verið. En þetta er innbyggt í búrið, svona þriggja hólfa, vatnsinntak að neðan, fer upp í næsta hólf sem síar vatnið niðr og svo ferð það upp í því þriðja, og þar er powerhead. En þetta powerhead virðist ekki vera með neinni festtingu, og það er enginn stútur framaná það eins og í Juwel, bunan bara beint útúr unitinu sjálfu. Og það er bara bómull og biologisk filtration.

Á ekki að vera stútur framaná? Hvar ætli ég fái svoleiðis? Og borgar sig ekki að reyna að festa þetta powerhead einhvernveginn eða á ég bara að troða bómull svo það skorðast af?

Ég fékk kol í pakka og afgang af möl og það er merkt "A Quality". Þetta mun hafa verið keypt í einhverri gæludýraverslun í Kópavogi, nærri Smáralind.
User avatar
naggur
Posts: 494
Joined: 29 Aug 2007, 21:05
Contact:

Post by naggur »

talaðu við þá í fiskó, það er eina dýrabúðin nálægt smáralind (smáratorg er nær núna)
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Endilega koma með mynd af þessi unit, hjálpar mikið :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Post by Anna »

Engin mynd enn. Ég er búin að komast að því að búrið er Rena. Og það er ekki keypt rétt hjá smáralind, heldur rétt hjá Kringlunni, líklega í búðinni í húsi Verslunarinnar.

Er einhver með svona? Sú hlið sem dælan er fest á (öll hliðin nánast) er með svona filmu í þannig að hún er dökk með rákum (já já, ég skal taka mynd bráðum).

Allavegana, þá vantar mig að vita hvernig þetta powerhead er fest, hvort það á ekki að vera stútur á því, svo er svona lítið gat sem vísar upp, grunar að það sé fyrir loftbólur eða eitthvað.

Ég komst bara ekki í búðina í dag.
User avatar
Arnarl
Posts: 1233
Joined: 15 Feb 2008, 22:26

Post by Arnarl »

það er líka svona unit í búrinu mínu og jú það á að vera stútur á power headinu og ég er bara með smá plexygler bút á milli en það er til powerhead í trítlu sem kostar 1200 kr og dælir 450-900 l/h
Minn fiskur étur þinn fisk!
Post Reply