Gryfjan 2008

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

forsetinn
Posts: 305
Joined: 10 Oct 2006, 13:32

Gryfjan 2008

Post by forsetinn »

Jæja ákvað að setja upp hérna þráð þar sem að ég mun leyfa ykkur að fylgjast með ræktuninni hjá mér.
Er að fara aftur af stað eftir að hafa hætt í þessu síðasta vor.

Byrja með guppy - sverðdraga og ancistrur...og er svo opinn fyrir hugmyndum.

Er búinn að fylla eitthvað af búrum af vatni - ekki komið mikið af fiskum í þau ennþá - en sjáum hvað setur á næstunni. Ætla ekki að láta eitthvað æði fara með mig og fylla öll búr...eins gott að hafa pláss þegar ræktunin dettur í gang.

Set hérna inn eitthvað af myndum sem að ég tók áðan - myndir af aðstöðunni sem að þið hafið eflaust séð áður - en mig langar að halda þessu til haga núna á einum stað og fylgjast með þróuninni.

Markmiðið er að vera með
500 l búr
3 x 250 lítra búr
14 x 40 lítra búr
4 x 75 lítra búr

Er búinn að vera taka til í gryfjunni að undanförnu og hún fer að nálgast að ástand sem að ég vill hafa á henni þ.e.a.s. snyrtilegt og hreint.

500 lítra búrið
Image
250 lítra búr
Image
5 x 40 lítra búr
5 45 lítrar og 4 x 70 lítrarImage
Image
Séð ofaní gryfjuna
Image
Image
Last edited by forsetinn on 19 Oct 2008, 18:48, edited 1 time in total.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Andskoti er þetta flott maður.
Hvað varstu að spá í að byrja með mörg pör af ancistrum? :-)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
gunnikef
Posts: 281
Joined: 01 Mar 2008, 10:42
Location: keflavik

Post by gunnikef »

helviti fott hjá þér ,eg er lika að reyna að koma mer upp aðstöðu til ræktunar en konan er að slá á heldurnar á mer en þetta kemur
gunni
forsetinn
Posts: 305
Joined: 10 Oct 2006, 13:32

Post by forsetinn »

Á eitt albino par - er að fara af stað með það ... þ.e.a.s ef að ég næ kallinum úr stofubúrinu hjá mér....það er svo mikill gróður þar.

Annars ætla ég mér að vera með ca 100 ancistrur í búrunum mínum til að vinna gegn þörungi...gerði það síðast og það svínvirkaði...þannig að ég þarf að byrja á að rækta fyrir sjálfan mig.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Hvað varð til þess að þú hættir?
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
forsetinn
Posts: 305
Joined: 10 Oct 2006, 13:32

Post by forsetinn »

Fjögur börn - golfmanía - mótorhjólaáhugi - vinnan -

semsagt allt allt of mikið að gera....sé þetta fyrir mér meira sem vetrarsport :-) hætti samt ekki næsta vor heldur kem þessu í auðveldari farveg - eins og td. að hafa ræktunarfiska í tveimur búrum með sjálfvirkum gjafarbúnaði ofl...
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Verst hvað vinnan tekur mikinn tíma frá manni :D

Um að gera að hafa þetta eins einfalt og hægt er, um leið og þetta fer að verða kvöð er það ekki eins skemmtilegt.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

laglegt! væri gaman að eiga svona "gryfju" til að dundast í fiskastússinu :)
forsetinn
Posts: 305
Joined: 10 Oct 2006, 13:32

Post by forsetinn »

Datt í Dýragarðinn í dag og hitti þar fyrir ansi góða menn....

Fór heim með keisaratetru par...sem að Bruni talaði mig inná...alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt...ætla fá fjölgun hjá þessu pari...kem með upplýsingar og myndir þegar að því kemur :-)

Bruni /nafni....það er svakalegt að hitta þig....maður smitast bara meira og meira af dellunni...
audun
Posts: 228
Joined: 24 Apr 2008, 00:57

Post by audun »

ég hef svo svakalegan áhuga á báðu bæði bílum og fiskum að ég veit ekki hvort ég hefði tímt gryfju í þetta, en mjög sniðugt ef maður notar hana ekki
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Magnað, væri ekkert á móti svona gryfju :D, hvað er þetta stórt pláss m2 ?

skemmtilegir þessir filterar, eru þeir seldir hérlendis ?
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ef Bruni getur ekki kjaftað mann inn á svona lagað getur það enginn.
Vonandi gengur vel með tetrurnar.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
forsetinn
Posts: 305
Joined: 10 Oct 2006, 13:32

Post by forsetinn »

Gryfjan er í kringum 6-7 fermetrar...
Filterarnir svínvirka...keypti þá í USA
forsetinn
Posts: 305
Joined: 10 Oct 2006, 13:32

Post by forsetinn »

Er að fara smíða 280 lítra búr á morgun og bæta við flotann....er samt ekki enn búinn að ákveða hvort ég skipti því í 2 x 140 lítra...ræðst bara á morgun.

Nú fer bara að vanta einhverja spennandi fiska í flotann :-)
forsetinn
Posts: 305
Joined: 10 Oct 2006, 13:32

Post by forsetinn »

Búrið sem að ég smíðaði endað sem eitt stórt 280 lítra búr...myndir seinna.

Fékk mér annars sex hrikalega flottar guppy kellur í Dýragarðinum í dag.

Eins og þið kannski vitið þá hef ég mikið pælt í guppy og ég verð að segja að þessar kvk sem eru til núna í Dýragarðinum eru einstaklega flottar og STÓRAR...þið sem eruð fyrir guppy eða eruð að rækta...ég myndi drífa mig í ykkar sporum og ná ykkur í nokkur eintök áður en þau klárast.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

forsetinn wrote: Fór heim með keisaratetru par...sem að Bruni talaði mig inná...alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt...ætla fá fjölgun hjá þessu pari...kem með upplýsingar og myndir þegar að því kemur :-)
.
kíkti á Forsetann í dag og skoðaði herlegheitin
keisaratetrurnar búnar að hrygna og augu farin að myndast í hrognunum
þannig að ég tók mynd af tilvonandi keisaratetru seiðum

Image
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Vá þetta er magnað.
Á að reyna að koma þessu á legg (eða sund) ?
User avatar
pípó
Posts: 1172
Joined: 05 Apr 2007, 09:28

Post by pípó »

Bara gamana,gúd lökk :)
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Voru bara þessi 2 sem örarnar benda á keisaratetruhrogn? :?
Ace Ventura Islandicus
User avatar
pípó
Posts: 1172
Joined: 05 Apr 2007, 09:28

Post by pípó »

Ég sé fleiri bletti ( eins og mamma gamla sagði hér áð'ur fyrr þegar hún skammaði soninn fyrir að hirða upp _______)en kannski þarf Gummi glassiss ?
forsetinn
Posts: 305
Joined: 10 Oct 2006, 13:32

Post by forsetinn »

Þetta er nú í fyrsta sinn sem að ég prufa þetta með keisaratetrunar.
Maður kemur þessu vonandi eitthvað á legg...annars ætla ég að láta þær gjóta aftur - mér skilst að það sé nú ekki mikið mál þegar þær eru komnar af stað....

Fékk stórt got hjá einni af stóru kvk guppy kellunum sem að ég keypti í Dýragarðinum.....ekki lengi að borga sig upp sú kvk :-)

Setti annars vatn í nýja búrið í kvöld..þ.e.a.s 280 lítrana...smá leki í því sem að verður lagaður á morgun.
forsetinn
Posts: 305
Joined: 10 Oct 2006, 13:32

Post by forsetinn »

Ekki gekk þetta upp með keisaratetru hrognin í þetta sinn...að mér sýnist. Ég geri aðra tilraun bráðlega.

Er annars komin með þá hugmynd ð setja upp fimmtán 20-25 lítra bbúr fyrir got hjá gotfiskum....sjáum hvað setur...
Bruni
Posts: 199
Joined: 30 Dec 2006, 20:57
Location: Reykjavík

Keisaratetrur

Post by Bruni »

Sæll Nafni. Hvað klikkaði ?
forsetinn
Posts: 305
Joined: 10 Oct 2006, 13:32

Post by forsetinn »

Tja nú er ég ekki viss....það var kominn fungus í nokkur hrogn...annað ekki.....er ég kannski aðeins og óþreyjufullur....eða ættu þau ekki að vera komin á stjá seiðin ?

Annars búinn að fá fullt af guppy gotum þannig að gryfjan fyllist smá saman :-) Tek svo líklega eitthvað af frontosum í fóstur fyrir gumma...þannig að þetta fer að verða "heimsóknarvert"
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

rólegur seiðin eru frekar glær og róleg til að byrja með
gefa þessu nokkra daga

ég er viss um að það verði allt á yði þegar ég kíki með frontuseiðin um helgina
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
forsetinn
Posts: 305
Joined: 10 Oct 2006, 13:32

Post by forsetinn »

Ekki gekk þetta upp með keisratetrunar ....
Setti þær samt aftur saman í gær - og viti menn eitthvað af hrognum aftur - sjáum hvernig gengur í þetta skiptið.

Setti nýja búrið upp - set hérna inn mynd af því.
Nú er nóg af búrum en allt allt of lítið af fiskum :-(

Image

Og svo hérna ein sem að sýnir rekkana saman...set búr í neðstu hilluna bráðlega....er með þrjú fuglabúr þarna þannig að ef einhverjum vantar fugla búr...bara hafa samband :-)
Image
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Djöfull dauðöfunda ég þig af þessu plássi :) Ég kæmi ekki svo mikið sem einu búri enn fyrir hérna á heimilið :roll:
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
forsetinn
Posts: 305
Joined: 10 Oct 2006, 13:32

Post by forsetinn »

Gummi fiskabúr...kom í gær með 11 seiði sem enn eru föst við hrognin - þetta eru frontosuseiði sem að fá að hefja líf sitt í gryfjunni.

Gaman að auka aðeins fjölbreytnina :-)
User avatar
pasi
Posts: 287
Joined: 03 Mar 2008, 22:54
Location: selfoss
Contact:

Post by pasi »

þetta er allveg draumaaðstaða hjá þér :D væri til í að geta verið með svona mikið :D
Búrin okkar:
viewtopic.php?t=3835
fishy fishy fish :P
forsetinn
Posts: 305
Joined: 10 Oct 2006, 13:32

Post by forsetinn »

Fékk nýtt skalapar í kvöld....hvítt með perluáferð...

Fæ vonandi hrygningu frá þeim bráðlega...

Kem með myndir á næstunni...
Post Reply