400L búrið mitt

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

400L búrið mitt

Post by Sirius Black »

Jæja hef ekkert komið með neinar fréttir af nýja meðlimnum í búraflórunni :P En ég og kærastinn fórum og keyptum eitt stykki 400L Juwel búr hjá Varginum. Það var svo sett upp fyrir nokkrum vikum og var það hryllilega gruggugt til að byrja með og héldum við að þetta ætlaði aldrei að setjast eða hverfa :S það er enn smá gruggugt en er ekki alveg viss hvort að þetta sé bara enn smá ryk eða svifþörungur.

Annars var bætt eiginlega strax í búrið 3 polypterusum, 2 senegalusum og 1 palmas polli. Stuttu síðar voru keyptir 2 convictar sem sómuðu sér vel í búrinu og fínt að hafa þá svona til að fá smá hreyfingu í búrið þar sem polypterusarnir eru ekkert svo aktívir sundfiskar (þó að þeir taki sína tíma og synda eins og brjálæðingar :P). Síðan gátum við ekki staðist einn lítinn Green Terror og erum við að vona að þetta sé kk, en hann er allavega rosalega fallegur. Einhverju síðar var svo stóra gibbanum bætt út í og líður honum held ég mun betur í svona stærra búri, var farinn að pirrast yfir plássleysi stundum í 180L búrinu. Svo var ætlunin að setja óskarana útí og þegar við sáum hvernig Green Terrorinn lét við þá, þá voru þeir færðir aftur yfir í 60L búrið, og eftir um viku var reynt aftur en þá held ég að convictarnir hafi leikið þá ansi grátt og er hreistrið aðeins farið af þeim á hliðunum og uggar rifnir. Convictarnir voru því færðir yfir í 60L búrið í skammakrókinn og vonandi munu óskararnir jafna sig :)

Þannig að núna eru í búrinu
1x polypterus palmas polli
2x polypterus senegalus
1x Green Terror
2x Oscar
1x Gibbi

Plöntur:
Sverðplanta
Cabomba

Hérna koma svo myndir af búri og fiskum :)
Image

Image
Palmas polli

Image
Hann aftur :P

Image
Senegalus

Image
Smá nærmynd af pollanum

Image
Green Terror

Image
Hann aftur :)

Image
Finnst hann svo flottur að hér er ein enn :P

Image
Gibbinn Anúbis :) uppáhaldsfiskurinn held ég :)

Image
Smá nærmynd af honum líka :D

Image
Annar convictinn sem var í búrinu og er nú í skammakróknum

Image
Og svo hinn líka :)



Jæja læt þetta vera nóg í bili :D
200L Green terror búr
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

glæsilegt
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Fjög fallega uppsett búr og gott val af fiskum, mjög góðar myndir sem að þú ert að taka, hvaða vél ertu að nota?
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Arnarl
Posts: 1233
Joined: 15 Feb 2008, 22:26

Post by Arnarl »

Ekkert smá flott búr og rosa flottar myndir :D en ég er orðinn soldið forvitinn, hvað er fiskar.net? :P
Minn fiskur étur þinn fisk!
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Arnarl wrote: hvað er fiskar.net? :P
Einhver umfjöllun um fiskana okkar og þannig en erum ekki alveg búin að ákveða hvað verður á henni hehe :P en það mun vonandi koma í ljós fljótlega :)
Bara svo kúl að þetta lén var til að það var stokkið til að kaupa það :P svo þarf bara að finna eitthvað til að vera á þessari síðu :)
200L Green terror búr
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Síkliðan wrote:hvaða vél ertu að nota?
Nikon vél kærastans :P en hann átti reyndar heiðurinn í þetta skiptið að taka myndirnar :) eru svo hrikalega snöggir að erfitt er að ná myndum af þeim þannig að ég lét hann í að ná myndum :P tók heillangan tíma hehe :P
200L Green terror búr
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Snyrtilegt og fínt búrið og myndirnar ery frábærar
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Jaguarinn
Posts: 1141
Joined: 20 Oct 2007, 16:07

Post by Jaguarinn »

glæsilegt búr :)
:)
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Glæsilegt búr og mjög flottar myndir :góður:
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Fínar myndir, og ekkert að búrinu heldur :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
sirarni
Posts: 624
Joined: 18 Jan 2009, 17:46
Location: Kópavogur

Post by sirarni »

Flott búr :)
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

Post by malawi feðgar »

virkilega fallegt búr og þessar myndir eru alveg keppnis.
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Glæsilegt og myndirnar alveg keppnis :)
Pippi
Posts: 276
Joined: 29 Nov 2007, 17:21

Post by Pippi »

Svakalega flott :D
Post Reply