Mig er búið að langa í eitt lítið búr heima undir gróður og smáfiska en þar sem ég fann engan stað, datt mér snjallræði í hug.

Ég ákvað að smíða rúmgafl með innbyggðu fiskabúri.©
Búrið sem ég átti í skúrnum var 140x20x20, langt og mjótt og hentaði mjög vel í rúmgaflinn.
Frúnni leist ekkert svakalega vel á hugmyndina til að byrja með, enda þyrfti að vanda vel til verka. Þetta gæti komið mjög vel út... eða mjög illa.
Búrinu var komið fyrir í gær og vatn og fiskar fóru í það.
Enn á ég eftir að saga toppinn, opnanlegan hlera og lakka rúmgaflinn en að öðru leiti er þetta nokkuð tilbúið.
Grindin er sett saman úr hefðbundnum milliveggjarspýtum og klædd með krossvið. Krossviðurinn verður til að byrja með lakkaður í eikarlit en hugsanlega klæddur með eik seinna.
Búrið er 140x20x20 og rúmar u.þ.b. 50L, bakhlið máluð blá.
Hreinsibúnaður er lítil Rena dæla sem dælir 300l/klst en þar sem búrið er svo langt er lítil hreyfing í hinum enda búrsins.
Lýsing kemur frá 28W flúrperu og verður bara gervigróður til að byrja með.
Það fóru rúmlega 20 fiskar í búrið í gær, tegundir eru:
Kardinálatetrur
Hvítar svarttetrur
Venusarfiskar
Zebradanio
Rósabarbar
Gúbbýkallar
Kínversk glersuga
og einn eineygður albino bláhákarl sem fær að stækka aðeins í búrinu.
ég er ekki með neinar myndir í tölvunni en þær koma fljótlega
