96L Nano Reef
Moderators: keli, Squinchy, ulli
96L Nano Reef
Búrið er loks að taka á sig mynd keypti slatta af live rock í dag og fékk eitthvað af live sand með, er búinn að raða öllu upp og er mjög ánægður með útkomuna.
Hér er búrið eftir að nýbúið var að fylla það af sjó, notaði líka svartan sand úr fjörunni og eitthvað skraut.
Hérna er svo búrið eftir að allt er komið á sinn stað og lítur bara helvíti vel út nema það að ég er ekki nógu sáttur með bakgrunninn, en það var það eina sem að var til hérna heima. Mun seinna skipta yfir í einlitan /bláan/svartan bakgrunn eða eitthvað með sjávarþema.
Og stolt mitt og gleði þessi litli hitch hiker var á einum live-rockinum, lítill sæfífill ég er að deyja úr spenningi yfir þessum litla gaur
En hvernig er fólki annars að lítast á þetta? Ég mun panta krabba og snigla í búrið til að halda því hreinu eftir um það bil 2-3 vikur og svo seinna meir mun ég kaupa nokkra kórala og eflaust par af trúðfiskum

Þennan litla sæta sæfífil skaltu drepa við fyrsta tækifæri. Þetta er gler anemóna (glass anemone/aiptasia) og verður fljótt algjör plága.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Kemur mjög vel út en ég er smmála með bakgrunninn, hann er ekki alveg að gera sig.
Flottur littli sæfífillinn, örugglega gaman að fylgjast með þessu.
Mér líst mjög vel á trúðfiskaparið. Kannski fjölgar það sér í sæfíflinum.
Trúðfiskar sækjast oft helst í ákveðnar tegundir sæfífla, getur séð meira um það inná tjorvi.is

400L Ameríkusíkliður o.fl.
Lýst vel á búrið fyrir utan svarta sandinn
Ef þú ætlar að vera með kórala myndi ég taka sæfífilinn en ef þú hefur ekki planað að fá þér kórala þá er fífillinn alveg meinslaus
Þessir fíflar eiga það til að færa sig úr stað oft og eiga það til að stinga aðra kórala
Sílkiðan: Myndi ekki halda í þér andanum meðan maður bíður eftir að trúða par fjölgi sér , svo er oft erfitt að fá trúða til að sækja í anemone

Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is
Svosem meinlaus, en þeir fjölga sér hratt, og þótt að einn líti ágætlega út, þá er þetta ekki fallegt útum allt búr, og þegar þetta er orðið þannig þá er það hálf vonlaus barátta að losna við þá alla. Ég hef lent í þessum kvikindum persónulega og ég mæli með því að drepa þetta á meðan maður hefur séns á því.Squinchy wrote:Ef þú ætlar að vera með kórala myndi ég taka sæfífilinn en ef þú hefur ekki planað að fá þér kórala þá er fífillinn alveg meinslaus
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Já ég myndi losa þig við sæfífilinn ef þú ætlar að fá þér kóralla, ég er með 2 stóra og nokkra litla fífla, alveg gaman af þeim en þeir fara strax ef ég ætla út í kóralinn
Síkliðan já það eru líkur á því að trúðarnir fjölgi sér en líkurnar á því að ná upp seiðunum eru nánast engar
Þurfa sérstakan þörunga til að lifa á fyrst, þá þarf að rækta sér við sérstakar aðstæður sem er ekkert auðvelt

Pabbi minn gaf mér hann fyrir nokkrum árum, hann fékk hann víst í netið á einhverjum togara sem að hann vann áSvakalega flott hjá þér Ég er rosalega hrifinn af þessum kuðung hvar náðirðu í svona flykki?
Það sést að mikið líf var í live rockinu því að það er þörungur að vaxa á hraða ljóssins í búrinu Sem að er góðs viti
- Sirius Black
- Posts: 842
- Joined: 12 Oct 2007, 19:11
- Location: Hafnarfjörður
Ég var að skoða búrið áðan og mér til mikillar undrunar og gleði þá kom ég auga á nýjar lífverur er búinn að telja sex feather duster orma á stærsta live rockinum í miðjuni á búrinu
Næ bara lélegum myndum því að þeir eru svo litlir og myndavélin ekki sú besta, en læt samt eina fylgja
Snilld að sjá hvernig þeir draga sig inní pípuna þegar að þeim bregður
Veit ekki hvursu hratt þessi dýr stækka en ég vona að þeir nái fullri stærð

- Agnes Helga
- Posts: 1580
- Joined: 18 Nov 2006, 14:05
Ertu bara með sand úr íslenskri fjöru (þessi svarti)? Ertu þá að blanda sjó í svona lítið búr eða ertu með íslenskan sjó? Hreinsaru hann eitthvað áður þá og hvernig? Hvernig er með dælur, skimmar og þannig nauðsynlegt dót? hehe, flott búr, væri til í að prufa þetta
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Er með svartan sand úr fjörunni, sauð hann í stórum potti og setti ofan í tómt búr, fyllti af vatni með slöngu og aus jafn óðum úr því með fötu þar til vatnið varð tært (var brúnt fyrst).Ertu bara með sand úr íslenskri fjöru (þessi svarti)? Ertu þá að blanda sjó í svona lítið búr eða ertu með íslenskan sjó? Hreinsaru hann eitthvað áður þá og hvernig? Hvernig er með dælur, skimmar og þannig nauðsynlegt dót? hehe, flott búr, væri til í að prufa þetta
Er með íslenskan sjó tekin beint úr fjörunni, hreinsaði hann bara í búrinu með tveimur litlum dælum því að hann var frekar skýjaður fyrst. Fékk svo live rock og hvítan live sand sem að ég setti ofan á þann svarta, en sandurinn mun á endanum blandast allur saman þegar ég fæ mér sand shifters í búrið, er núna bara með eina eheim dælu sem að fylgdi búrinu og eina rena filstar iv2 dælu, en fæ RIO 180 Aqua Powerhead eftir ca. viku og þá fara hinar uppúr.
Þarf engan skimmer því að í svona litlu búri sjá örverurnar í live rockinu og live sandinum um að hreinsa fyrir mig og ég skipti um 5%-10% af vatninu vikulega til að halda nítratinu niðri, svo mæli ég með seltumæli saltmagnið í búrinu daglega og bæti við fersku vatni til að vega á móti uppgufun úr búrinu
Var áðan að panta eina tylft af blue leg hermit crab og eina tylft af bumble bee sniglum, ættu að koma eftir 2-4 vikur
Svo eru hellingur af feather duster ormum á steinunum, og líka af einhverjum litlum pöddum sem að skoppa í þörungnum, veit ekki nákvæmlega hvað þar er, svo kom ég auga á annan gler sæfífil áðan sem að ég þarf að eyða við fyrsta tækifæri.
Ég setti líka helling af sea monkey eggjum út í vatnið um daginn og þeir eru gjörsamlega út um allt, ættu að vera fínasta fæða fyrir síarana í búrinu og fiskana, þegar þeir koma
Blue leg hermit crab
Bumble Bee Snails
Þessi dýr eiga að sjá um að halda búrinu hreinu og róta upp sandinum og rífa í sig þörunginn sem að er að taka yfir búrinu
- Agnes Helga
- Posts: 1580
- Joined: 18 Nov 2006, 14:05
Ég ætla að hafa tvo trúðfiska í búrinu, ég verð aðallega með inverts og kóralla en mér finnst þessir fiskar bara svo flottir að þeir verða að vera með Það munu líða einhverjar vikur þangað til fiskarnir koma í búrið, ætla helst að vera búinn að fá krabbana, sniglana og kóralana áður en að fiskarnir komatakk fyrir svarið, finnst þetta ekkert smá spennandi og er mjög spennt fyrir svona.
Hvernig fiskar verða svo fyrir valinu? Trúðfiskar eða? Hve langur tími líður þar til þú setur þá í
Ég er bara með peruna sem að fylgdi búrinu, en langar í bláa peru eða sterkari perur til að geta verið með fleiri kóralaJá!, mjög athyglivert, en hvaða lýsingu ertu með?
Þetta er í minna lagi, jafnvel fyrir anemónur og kóralla sem þurfa "lítið" ljós.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Það er til Marine 10000 Kelvin 18W T8 pera upp í Dýralíf á eitthvað lítið
Verst að mitt búr notar 15W væri annars búinn að fá mér
p.s. Já 18w eru 60cm
Verst að mitt búr notar 15W væri annars búinn að fá mér
p.s. Já 18w eru 60cm
Last edited by Squinchy on 08 Apr 2008, 13:55, edited 1 time in total.
Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is
Því hærri sem W tala en því lengri er peran þannig að peran a ekki eftir að passa í lokið, síðan styður ballestið sem er í lokinu örugglega bara 18W perur
En 10000k og 20000Kelvin er mjög mikið notað í saltinu, dregur fram flottu litina
En 10000k og 20000Kelvin er mjög mikið notað í saltinu, dregur fram flottu litina
Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is