ég er að hugsa um að láta Óskarinn minn frá mér. Hann er eflaust tæplega 9 ára gamall. Ég er búinn að eiga hann í 8 ár eða síðan hann var kríli. Hann er full vaxinn núna og töluvert stór.
Félagi hans dó fyrir nokkrum mánuðum og hann er bara einn í búri.
Hæ ég er með 300l búr og einn óskar sem er um 20cm vinur hans dó þannig ég er i svipaðri stöðu og þú... Ég myndi hafa áhuga að taka fiskinn og hugsa um hann. Hvað finnst þér?
gunnarfiskur wrote:Hæ ég er með 300l búr og einn óskar sem er um 20cm vinur hans dó þannig ég er i svipaðri stöðu og þú... Ég myndi hafa áhuga að taka fiskinn og hugsa um hann. Hvað finnst þér?
Myndi samt vera viðbúinn því að þeir taki hvor öðrum ekki vel, er með einn sem er að nálgast 20 cm og hann hefði getað drepið einn á 2 klst, sem ég setti sem vin hjá honum og var aðeins minni. Þannig að ég bjargaði nýja uppúr. En svo var ég með tvo sem ólust upp saman og þeir voru ágætir vinir (en voru svo drepnir af fiski af annarri tegund). Bara svona að benda á að þeir verða ekki sjálfkrafa vinir þó að þeir hafi alist upp og verið með öðrum óskar í búri áður held ég En svo gæti þetta gengið vel , maður veit aldrei En minn hefur reyndar alltaf verið eini óskarinn í búrinu þannig að kannski er hann ekki eins félagslegur og ef hann hefði alist upp með öðrum .
já er samála þér sirius. Ef ég fæ hann þá rugla ég goggunnar röðinni fyrst breyti búrinu og tek minn uppúr set svo báða oní i einu þá á hvorugur búrið.
Takk fyrir áhugann allir. Hann "Gremlin" var búinn að bjóðast til að taka hann. En ég er haldinn mikilli ákvörðunarfælni í augnablikinu.
Síðasta og eina skiptið sem ég þurfti að flytja hann (1.5 ár síðan) borðaði hann varla í næstum 2 mánuði og ég veit eiginlega ekki hvernig hann bregst við ef hann verður með öðrum fiskum. Ég get samt ekki haft búrið þar sem það er núna og þarf þar af leiðandi að flytja hann hvort eða er. Gah!