Stærð á búri fyrir convict fer eftir því hvort þú ert með stakan fisk eða par og hvort þú ætlar að vera með aðra fiska með þeim. Sjálfur hef ég verið með fullorðið par í 100 l búri, ca. 45x45cm botnflot. Það gengur fínt en ég tek seiðin alltaf frá þeim smátt og smátt.
Ef þú ætlar að vera með par með öðrum fiskum þá þarftu stórt búr ef parið er fullvaxið. Hrygnandi par er alltaf með tómt vesen. Ég hef verið með par og aðra fiska í 240 l, það gekk en stundum með heljarinnar hamagang.
Eitt par í 300 l er alveg draumur og yrði gaman að fylgjast með þeim fylla búrið.
Stakur convict, sérstaklega karl, gengur hinsvegar nokkuð vel og er yfirleitt frekar friðsamur með öðrum sikliðum.
Mig hefði ekki grunað að convictar gætu verið svona skemmtilegir. Þótt þeir teljist frekar "einfaldir" þá eru þeir bæði flottir, og með gríðarlega skemmtilegan karakter.
Ég er ný fluttur sjálfur og setti upp nýtt c.a. 240lítra búr og í því er ég m.a. með eitt convictpar, ekki fullvaxið samt. Þau eignuðust nýlega sín fyrstu afkvæmi. Þegar ég kom heim úr vinnu í gær voru þau í fyrsta sinn tilbúin að sýna mér þau, og brágst ég auðvitað við með því að stela af þeim eins og 20 seiðum. Þau eiga þó nóg eftir sem þau forðuðu aftur inn í kókoshnetuna sem þau eiga fyrir heimili. Held það sé enn smá fíla í gangi því það var ekkert seiði komið út í morgun þegar ég vaknaði. Ég er jafnvel að hugsa mig um að taka ekki fleirri seiði af þeim og leyfa þeim að spreita sig sem foreldrar, það verður án efa gaman að fylgjast með því
Convictar er fínir foreldrar og stórskemmtilegt að fylgjast mep uppeldinu hjá þeim, stundum sinnast parinu og þá fara seiðin oft fyrir lítið. Það getur eimmitt verið snjallt að taka frá hluta af seiðunum til að eiga eitthvað fari allt fjandans til.