jæææja..
ég hef sterkan grun um að gubby kerlan mín ætli nú að fara púnga út börnum..
ég tými nú ekki að fara kaupa mér gotbúr þar sem ég er ekkert að fara rækta en tými heldur ekki að láta éta þau!!
er ekki í lagi að fersta bara einhvað svona lítið box ofaní búrið og leyfa seiðunum að vera þar? eða þarf ég alveg spes stórt búr undir þau?
Ég á reyndar fiskikúlu sem er ekki í notgun ætti ég frekar að hafa þau þar? og þurfa þau þá ekki dælu og hitara og allan pakkann?
Þú getur svo sem gert hvort tveggja
en ekki búast við að þau stækki hratt nema þau fái sér búr
ef þú setur box ofan í búrið, boraðu þá á það slatta af litlum götum til að vatnið endurnýist í boxinu
ef þú notar kúluna ( trúlega enginn hitari og dæla ) þá væri got að hafa vel af javamosa og skifta um part af vatni daglega
Ef þú ert ekki með neina aðstöðu fyrir seiðin þá mundi ég mæla með að kerla fengi bara að gjóta í búrið í ró og næði, það eru góðar líkur á að eitthvað af seiðunum fái að vera í friði og ef ekki þá koma seiði aftur eftir mánuð.
Ég er með seiðin mín í kúlubúri, þau stækka að vísu ekkert á neinum methraða, en þeim líður vel. Er með loftstein og lifandi plöntu þar ofaní Minna vesen en að hafa þau í kassa í búrinu.
krissag wrote:Ég er með seiðin mín í kúlubúri, þau stækka að vísu ekkert á neinum methraða, en þeim líður vel. Er með loftstein og lifandi plöntu þar ofaní Minna vesen en að hafa þau í kassa í búrinu.
já var með þau í kúlubúri en þau stækkuðu ekki neitt!
þau eru núna komin í 20L búr með hitara hreinsi/loftdælu og lifandi plöntum og núna er farið að teygjast úr þeim;)

ég var með 18 seiði í kúlubúri með hitara og lofdælu og eftir mánuð voru þau nógu stór til að fara í "fullorðins" búrið
Alger óþarfi að nota tilvísunar hnappinn þegar þið eruð að svara pósti sem er síðasti póstur á undan ykkar.
Það er frekar leiðinlegt að lesa þræði sem eru svona.